Dagalag

Dagalag
(Lag og texti: Ólafur Haukur Símonarson)

Ég heiti Helga á helgidögum,
ég heiti Þura á þurrum dögum,
ég heiti Sunna á sunnudögum.

Er þetta nóg,
er núna komið nóg?
Og þó.

Ég stjórna bæði veðri og vindunum,
ég vef skýin ofan af tindunum,
ég græði grasið inni í dölunum,
ég geng um fjöll með smölunum.

Ég heiti Lauga á laugardögum,
ég heiti Birta á björtum dögum,
ég heiti Helga á helgidögum.

Er þetta nóg,
er núna komið nóg?
Og þó.

Ég anda upp ölduhryggjum út á sjó,
ég sáldra regndropum á runna og mó,
ég kveiki kvöldstjörnur á himninum,
ég kyndi upp í morgninum.

[af plötunni Olga Guðrún Árnadóttir – Eniga meniga]