Inri – Efni á plötum

Inri – Viðnámshvörf [snælda] Útgefandi: Inri Útgáfunúmer: [engar upplýsingar] Ár: 1992 1. Aleindarmessa 2. Viljunarkerfi 3. Birting Inri 4. Skynheimahvörf 5. Orkukerfi viðbragðs 6. Virkjun 7. Frestunarendun 8. Uppgjöf 9. Skynheimahvörf tvö Flytjendur: Magnús A.G. Jensson – allur flutningur

Inri (1989-98)

Margt er á huldu varðandi spuna- og gjörningasveitina Inri (I.N.R.I.) en sveitin starfaði í um áratug seint á síðustu öld. Inri, sem eins og flestir átta sig á er skírskotun í áletrun á kross Krists, mun hafa verið stofnuð 1989 og í upphafi voru tveir meðlimir sem skipuðu sveitina, það voru þeir Þórhallur Magnússon gítarleikari…

Innrás (1971)

Hljómsveitin Innrás var starfandi sumar og haust 1971 en sveitin tók þátt í hljómsveitakeppni í Húsafelli sem var árviss viðburður um verslunarmannahelgina á þessum árum. Innrás lenti í fjórða sæti keppninnar af fimm sveitum en engar upplýsingar finnast um hverjir skipuðu hana.

Inniskórnir hans afa (1992)

Litlar sem engar upplýsingar finnast um hljómsveit sem bar heitið Inniskórnir hans afa og starfaði að öllum líkindum í Njarðvík í skamman tíma, líklega 1992. Hugsanlega var um eins konar skammtíma grínverkefni að ræða en meðal meðlima sveitarinnar voru hjónin Ásgeir Snær Guðbjartsson og Ólöf Magnea Sverrisdóttir. Önnur heimild gefur til kynna að hér hafi…

Inner core (1993)

Inner core var dúett sem þeir Helgi Már Hübner og Lýður Þrastarson starfræktu 1993. Þeir félagar unnu heilmikið danstónlistarefni og eitthvað af því rataði til útvarpsstöðvanna en einungis eitt lag var gefið út á plötu, safnplötunni Reif í tætlur sem kom út vorið 1993.

Ingvi (1988)

Afar takmarkaðar upplýsingar er að finna um hljómsveit sem bar nafnið Ingvi og starfaði að öllum líkindum við Menntaskólann á Akureyri árið 1988. Sveitin sigraði þá tónlistarkeppnina Viðarstauk sem haldin var í MA en hún hlaut einnig viðurkenningu fyrir bestu búningana og bestu sviðsframkomuna. Því er hér óskað eftir frekari upplýsingum um þessa sveit, hverjir…

Insurcion (1998)

Insurcion var ein sveita sem keppti í Músíktilraunum vorið 1998. Meðlimir sveitarinnar, sem kom úr Reykjavík, voru Guðjón Albertsson söngvari og gítarleikari, Hjörtur Hjartarson trymbill, Magnús Unnar Georgsson bassaleikari og Jón Arnar Helgason hljómborðsleikari. Insurcion komst ekki áfram í úrslit Músíktilraunanna og dó líklega drottni sínu fljótlega eftir keppnina.

Instrument (1968)

Instrument virðist hafa verið skammlíf hljómsveit úr Reykjavík, starfandi 1968. Sveitin keppti í árlegri hljómsveitakeppni sem fram fór um verslunarmannahelgina í Húsafelli en engar sögur fara af því hvernig henni reiddi þar af. Ekkert er heldur að finna um hverjir skipuðu þessa sveit.

Afmælisbörn 5. desember 2016

Þá er komið að afmælisbarni Glatkistunnar en að þessu sinni er aðeins eitt á skrá: Lýður Árnason læknir og tónlistarmaður frá Flateyri er fimmtíu og fjögurra ára gamall, hann hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, verið í hljómsveitum á borð við Kartöflumúsunum, Vítamíni, Grjóthruni í Hólahreppi og Göglum svo fáeinar séu nefndar. Hann var…

Afmælisbörn 4. desember 2016

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar eftirfarandi: Ágúst Fannar Ásgeirsson hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Jakobínurínu er tuttugu og sex ára gamall á þessum degi. Jakobínarína vann sér meðal annars til frægðar á sínum tíma að vinna Músíktilraunir (2005) en eftir að sveitin hætti árið 2009 hefur lítið spurst til Ágústs. Hann hefur þó starfað með hljómsveitinni Kosijama. Sigurður…

Afmælisbörn 3. desember 2016

Afmælisbörn dagsins eru tvö á þessum degi: Pétur Östlund trommuleikari er sjötíu og þriggja ára í dag, hann lék með mörgum af þekktustu sveitum bítlatímabilsins og eru Hljómar og Óðmenn þeirra þekktastar en einnig með sveitum eins og Hljómsveit Finns Eydal, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Musica prima og Útlendingahersveitinni. Hann var síðar kunnari fyrir djasstrommuleik og…

Afmælisbörn 2. desember 2016

Á þessum degi koma tvö afmælisbörn við sögu á Glatkistuvefnum: Tónlistarmaðurinn Toggi (Þorgrímur Haraldsson) er þrjátíu og sjö ára, hann hefur gefið út tvær sólóplötur en er e.t.v. þekktastur fyrir að hafa samið lagið Þú komst við hjartað í mér, sem bæði hljómsveitin Hjaltalín og söngvarinn Páll Óskar hafa gert sígilt. Ragnar Sólberg (Rafnsson) eða…

Afmælisbörn 1. desember 2016

Afmælisbörn fullveldisdagsins eru eftirfarandi: Bakkgerðingurinn (Guðmundur) Magni Ásgeirsson söngvari Á móti sól er þrjátíu og átta ára gamall á þessum degi, Magni hefur einnig sungið með hljómsveitum eins og Shape, gefið út sólóplötur og sungið í undankeppnum Eurovision svo eitthvað sé nefnt, Magni hlaut sína fimmtán mínútna alþjóðafrægð þegar hann tók þátt í Rock star…

Afmælisbörn 30. nóvember 2016

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fimm á þessum degi: Pálína Vagnsdóttir söngkona frá Bolungarvík er fimmtíu og tveggja ára gömul, hún er af mikilli tónlistarfjölskyldu frá Bolungarvík, söng m.a. með hljómsveitinni Septu og hefur sungið inn á nokkrar plötur, þar má nefna plötuna Hönd í hönd: uppáhalds lögin hans pabba, sem hún og systkini hennar gáfu út…

Afmælisbörn 29. nóvember 2016

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni: Skáldkonan Didda eða bara Sigurlaug Jónsdóttir er fimmtíu og tveggja ára gömul á þessum degi. Segja má að hún hafi fyrst vakið athygli fyrir textann við lagið Ó Reykjavík með Vonbrigðum sem var upphafslag kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík en textar hennar hafa birst víðar. Hún gaf á sínum…

Afmælisbörn 28. nóvember 2016

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessum sinni: Páll Jóhannesson einsöngvari og bóndi frá Þverá í Öxnadal er sextíu og sex ára á þessum degi, hann nam söng á Ítalíu á sínum tíma og gaf út tvær einsöngsplötur á níunda áratug síðustu aldar þar sem hann naut m.a. aðstoðar Karlakórsins Geysis og…

Afmælisbörn 27. nóvember 2016

Afmælisbörn dagsins í Glatkistunni eru fimm talsins í dag, flest þeirra eru söngkonur: Björg Þórhallsdóttir sópran söngkona frá Akureyri er fimmtíu og tveggja ára gömul í dag. Hún hefur sent frá sér þrjár plötur, þar af eina jólaplötu. Björg var bæjarlistamaður Akureyrar árið 2007. Klara Ósk Elíasdóttir, Klara í Nylon, er þrjátíu og eins árs…

Afmælisbörn 26. nóvember 2016

Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni: Sveinbjörn B. Thorarensen (Hermigervill) er þrjátíu og tveggja ára gamall. Hermigervill hefur gefið út nokkrar sóló raftónlistarplötur en hann hefur einkum sérhæft sig í vinna úr eldri tónlist, t.d. gömlum íslenskum dægurlögum í nýjum búningi. Hann hefur unnið með ýmsum tónlistarmönnum hér heima s.s. Retro Stefson, Þórunni Antoníu og…

Ingólfur Sveinsson (1914-2004)

Ingólfur Sveinsson lögregluþjónn (f. 1914) var kannski ekki tónlistarmaður í eiginlegum skilningi en hann kom þó að íslenskri tónlist með ýmsum hætti. Ingólfur, sem var faðir Rósu Ingólfsdóttur tónlistarkonu, þulu, teiknara, leikara o.fl., var tónskáld og samdi nokkur þeirra laga við íslenskar þjóðvísur sem komu út á plötu Rósu 1972, fleiri lög útgefin á plötum…

Ingvar Jónasson – Efni á plötum

Þorkell Sigurbjörnsson – Kisum / Intrada Útgefandi: Expo Norr Útgáfunúmer: LPRP 3 Ár: 1971 1. Kisum: Naturmusik / Gudamusik / Människomusik / Människomusik 2. Intrada 3. Tonsättaren berättar om Kisum och Intrada Flytjendur: Gunnar Egilson – klarinetta Þorkell Sigurbjörnsson – píanó Ingvar Jónasson – fiðla   Einar Sveinbjörnsson, Ingvar Jónasson og Guido Vecchi – Hilding Rosenberg: Divertimento / John Fernström: Trio…

Ingvar Jónasson (1927-2014)

Ingvar Jónasson var einn af fremstu fiðluleikurum á Íslandi á sínum tíma og af fyrstu kynslóð fiðluleikara sem átti eftir að manna Sinfóníuhljómsveit Íslands á upphafsárum hennar. Ingvar var fæddur og uppalinn á Ísafirði 1927 og var af kunnum tónlistarættum, sonur Jónasar Tómassonar tónskálds sem var mikill framámaður í vestfirsku tónlistarlífi. Hann var því alinn…

Ingimar Guðjónsson (1935-78)

Ingimar Guðjónsson harmonikkuleikari lék með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma, þeirra á meðal voru Tónatríóið og Ásar. Ingimar kom ennfremur oft fram á böllum og öðrum skemmtunum einn með nikkuna. Ingimar (fæddur 1935) var upphaflega Strandamaður en fluttist til Reykjavíkur um tvítugt hvar hann starfaði við tónlist til æviloka, hans aðalstarf var þó akstur með…

Ingimar Eydal og félagar (1976-90)

Ingimar Eydal starfrækti um tíma djasshljómsveit undir nafninu Ingimar Eydal og félagar. Ingimar hafði lent í bílslysi vorið 1976 og slasast nokkuð, hljómsveit hans, Hljómsveit Ingimars Eydal var því lögð í salt um óákveðinn tíma en það leið ekki á löngu þar til Ingimar stofnaði nýja sveit (um haustið), sveit sem sérhæfði sig í djasstónlist…

Ingimar Eydal – Efni á plötum

Ingimar Eydal – Allt fyrir alla (x3) Útgefandi: Sena Útgáfunúmer: SCD 521 Ár: 2011 1. Atlantic kvartettinn – Magga 2. Atlantic kvartettinn – Ég skemmti mér 3. Atlantic kvartettinn – Manstu ekki vinur (Í rökkurró) 4. Atlantic kvartettinn – Ó, nei 5. Atlantic kvartettinn – Enn á ný 6. Atlantic kvartettinn – Einsi kaldi úr…

Ingunn Bjarnadóttir – Efni á plötum

Amma raular í rökkrinu – ýmsir Útgefandi: Hallgrímur Hróðmarsson, Þórhallur Hróðmarsson og Bjarni E. Sigurðsson Útgáfunúmer: HH, ÞH og BS Ár: 1975 1. Sigríður Ella Magnúsdóttir – Amma raular í rökkrinu 2. Kór Langholtskirkju – Mjúkt er svefnsins sængurlín 3. Kór Langholtskirkju – Fagra haust 4. Kór Langholtskirkju – Stundin deyr 5. Sigrún Gestsdóttir –…

Ingunn Bjarnadóttir (1905-72)

Alþýðutónskáldið Ingunn Bjarnadóttir var uppgötvuð fyrir tilviljun en eftir hana liggur ógrynni sönglaga sem varðveist hafa fyrir tilstilli góðra manna. Ingunn fæddist í A-Skaftafellssýslu 1905, var elst fimmtán systkina og byrjaði snemma að semja tónlist, elsta varðveitta lagið hennar er síðan hún var fjórtán ára en hún hafði ekki tök á að raddsetja laglínur sínar…

Ingólfur Guðbrandsson (1923-2009)

Ingólfur Guðbrandsson var frumkvöðull og brautryðjandi með tvenns konar hætti í íslensku samfélagi, annars vegar á tónlistarsviðinu, hins vegar á sviði ferðamála. Ingólfur fæddist vorið 1923 á Kirkjubæjarklaustri þar sem hann ólst upp. Hann fékkst eitthvað við tónlist í æsku, lék t.a.m. á orgel en þegar hann fluttist til Reykjavíkur hófst hinn eiginlegi tónlistarferill. Hann…

Ingólfsbandið (1993-94)

Litlar upplýsingar finnast um Ingólfsbandið sem starfaði í fáeina mánuði 1993-94 eftir því sem heimildir herma. Meðlimir Ingólfbandsins voru Ingólfur [?], Tómas [?], Pétur [?], Jón [?], Steini [?] og Hafliði [?] en frekari upplýsingar um þá er hvergi að finna. Þær væru því vel þegnar.

Ingimundur fiðla (1873-1926)

Ingimundur fiðla var kunnur flökkumaður og fiðluleikari, af mörgum álitinn furðufugl en var að öllum líkindum bráðgreindur og með framúrskarandi tónlistarhæfileika. Ingimundur Sveinsson fæddist í Meðallandinu í Vestur-Skaftafellssýslu haustið 1873 og ólst upp í sárri fátækt en hann var einn af systkinum sem töldu líklega á annan tug, Jóhannes Kjarval listmálari var á meðal þeirra…

Ingimundur Árnason (1895-1964)

Ingimundur Árnason kórstjórnandi var mikils metinn í tónlistarlífi Akureyringa meðan hans naut við en segja má að hann hafi byggt upp karlakóramenningu bæjarins. Ingimundur sem fæddist á Grenivík árið 1895 lærði á orgel í æsku og tónlistaráhugi hans og -hæfileikar urðu til þess að hann var orðinn organisti í heimabyggð fyrir fermingu. Um tvítugt stjórnaði…

Ingimundur (?)

Hljómsveit sem bar nafnið Ingimundur starfaði hér á landi, hvenær eða hvar liggur ekki fyrir. Allar upplýsingar um þessa sveit óskast sendar Glatkistunni.

Afmælisbörn 24. nóvember 2016

Nokkrir tónlistarmenn koma við sögu afmælisskrár Glatkistunnar að þessu sinni: Sigurdór Sigurdórsson söngvari er sjötíu og átta ára, hann söng með ýmsum danshljómsveitum á sínum tíma s.s. hljómsveitum Svavars Gests og Eyþórs Þorlákssonar. Hann er þó þekktastur fyrir flutning sinn á Þórsmerkurljóðinu sem flestir þekkja undir nafninu María María. Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari Todmobile…

Afmælisbörn 23. nóvember 2016

Afmælisbörnin í dag eru fjögur talsins á skrá Glatkistunnar: Erlingur Björnsson (Kristján Erlingur Rafn Björnsson) gítarleikari Hljóma er sjötíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Erlingur varð ungur ein táknmynda bítilæðisins á Íslandi þótt hann væri ekki þeirra mest áberandi. Hann var gítarleikari Hljóma og Thor‘s hammer en hafði áður spilað með Skuggum og…

Afmælisbörn 22. nóvember 2016

Afmælisbarn dagsins er eitt að þessu sinni: Guðrún Ágústsdóttir (f. 1897) hefði átt afmæli á þessum degi en þessi sópransöngkona var með fyrstu óperusöngkonum okkar Íslendinga, hún tók þátt í fyrstu óratoríunni sem sett var á svið á Íslandi og söng í tilraunaútsendingum útvarps fyrir 1930. Hún lést 1983.

Afmælisbörn 21. nóvember 2016

Sex afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Björk Guðmundsdóttir tónlistarkona er fimmtíu og eins árs á þessum degi. Björk hefur fengist við tónlist frá barnsaldri, var þá í hljómsveitum eins og Jam ´80, Exodus og Draumsýn en síðar í sveitum eins og Tappa tíkarrassi, Kukli og Sykurmolunum. Útgáfuferill Bjarkar er einstakur en auk…

Afmælisbörn 19. nóvember 2016

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Elst afmælisbarna dagsins er Trausti Thorberg Óskarsson gítarleikari en hann er áttatíu og níu ára gamall. Trausti lék með ýmsum danshljómsveitum á árum áður, s.s. Krummakvartettnum, Neistum og hljómsveitum Eyþórs Þorlákssonar, Carls Billich og Þóris Jónssonar, auk KK-sextetts en hann var einn af stofnmeðlimum þeirrar…

Afmælisbörn 18. nóvember 2016

Í dag er eitt afmælisbarn í gagnabanka Glatkistunnar: Þorleifur J. Guðjónsson bassaleikari á stórafmæli en hann er sextugur á þessum degi. Þorleifur hefur starfað í ótal hljómsveitum fyrst sem gítarleikari en síðan á bassa, sumum þekktum en öðrum minna þekktum. Hér eru nefndar nokkrar en þeim fer fjölgandi: KK-band, Egó, Samsara, Strákarnir, Vinir Dóra, Ómar og…

In men (1991)

In men var hljómsveit sem var starfandi sumarið 1991, hún var líkast til í rokkgeiranum og skipuð ungum meðlimum. Upplýsingar um þessa sveit óskast sendar Glatkistunni.

Ingibjörg Þorbergs (1927-2019)

Ingibjörg Þorbergs er án nokkurs vafa eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu, hún söng og samdi fjölda þekktra laga og texta sem komið hafa út á ótal plötum, hún átti einnig þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með…

Ingibjörg Smith – Efni á plötum

Ingibjörg Smith – Draumljóð / Við gengum tvö Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: HMV JOR 227 Ár: 1956 1. Draumljóð 2. Við gengum tvö Flytjendur: Ingibjörg Smith – söngur kvartett Árna Ísleifssonar – [engar upplýsingar um flytjendur]     Ingibjörg Smith – Kom nótt / Oft spurði ég mömmu Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: HMV JOR 234 Ár: 1957…

Ingibjörg Smith (1929-2024)

Ingibjörg Smith var ein af fyrstu dægurlagasöngkonum Íslands og söng þrjú lög sem kalla mætti stórsmelli, inn á plötur. Ingibjörg var Stefánsdóttir og fæddist 1929, engar heimildir er að finna um hvenær hún hóf að syngja en hún kynntist Bandaríkjamanni sem starfaði á Keflavíkurflugvelli, giftist honum 1950 og tók upp nafn hans, Smith. Þau fluttust…

Ingibjörg Þorbergs – Efni á plötum

Smárakvartettinn í Reykjavík og Ingibjörg Þorbergs – Hríslan og lækurinn / Játning Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: HMV JOR 201 Ár: 1953 1. Hríslan og lækurinn 2. Játning Flytjendur: Ingibjörg Þorbergs – söngur Smárakvartettinn: – Sigmundur R. Helgason – söngur – Halldór Sigurgeirsson – söngur – Guðmundur Ólafsson – söngur – Jón Haraldsson – söngur Carl Billich…

Ingi T. Lárusson (1892-1946)

Þótt Ingi T. Lárusson tónskáld hafi ekki endilega hlotið þá viðurkenningu fyrir framlag sitt til tónlistarinnar sem hann hefði átt skilið í lifanda lífi, hefur hún birst með margs konar hætti í seinni tíð. Ingi Tómas Lárusson fæddist 1892 á Seyðisfirði hvar hann ólst upp. Hann var af tónelsku fólki kominn og í heimabæ hans…

Indíana (1991)

Pönkdúettinn Indíana (Indiana) var ein sveita sem kom við sögu á safnkassettunni Gallery Krunk sem kom út haustið 1991, þar átti sveitin þrjú lög – Kúkur og kanill, Nóatún og Ómótstæðileg þvæla. Hljómsveitina skipuðu þeir Haraldur Unnar Guðmundsson söngvari og gítarleikari og Magnús Þór Magnússon trommuleikari. Engar frekari upplýsingar er að finna um þessa sveit…

The Incredibles (1976-77)

Hljómsveitin The Incredibles starfaði í nokkra mánuði, spilaði balltónlist og sérhæfði sig aðallega í tónlist frá sjöunda áratugnum. The Incredibles var stofnuð í árslok 1976 í Garðabænum og voru meðlimir hennar Pétur Grétarsson trommuleikari, Pétur Jónasson gítarleikari, Runólfur Birgir Leifsson gítarleikari, Jón Yngvi Björnsson bassaleikari og Sigríður Thorsteinsson (Dusty) söngkona. Linda Walker tók síðan við…

Ingibjartur Bjarnason – Efni á plötum

Ingibjartur Bjarnason – Ingibjartur Bjarnason syngur íslensk sönglög Útgefandi: Ingibjartur Bjarnason Útgáfunúmer: IB 001 Ár: 1977 1. Göngulag 2. Vorljóð 3. Vögguljóð 4. Erla 5. Í skógi 6. Fjallið eina 7. Huggast við Hörpu 8. Örlögin 9. Lindin 10. Mamma ætlar að sofna 11. Vor 12. Það er svo margt 13. Sólskríkjan 14. Smaladrengurinn 15.…

Ingibjartur Bjarnason (1921-81)

Ingibjartur Bjarnason (f. 1921) var alþýðumaður sem hafði mikinn áhuga á söng og lét draum sinn rætast um plötuútgáfu. Ingibjartur fæddist í Dýrafirðinum en ólst upp í Borgarfirði, hann bjó þó lengst af í Ölfusinu, var bústjóri við Hlíðardalsskóla, starfaði við dvalarheimilið Ás í Hveragerði og síðan til æviloka við Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði. Hann…

Ingi T. Lárusson – Efni á plötum

Einsöngvarakvartettinn – Einsöngvarakvartettinn syngur lög Inga T. Lárussonar Útgefandi: SG-hljómplötur Útgáfunúmer: SG – 117 Ár: 1978 1. Litla skáld 2. Lífið hún sá í ljóma þeim 3. Ég bið að heilsa 4. Í svanalíki 5. Sólskríkjan 6. Nú sé ég og faðma þig syngjandi vor 7. Sumargleði 8. Íslands hrafnistumenn 9. Átthagaljóð 10. Það er…

Inga Jónasar – Efni á plötum

Inga Jónasar frá Súgandafirði – Vinnukonugripin [snælda] Útgefandi: Ingibjörg Jónasdóttir Útgáfunúmer: [án útgáfunúmers] Ár: 1993 1. Litli fjörðurinn minn 2. Portkona 3. Bréf til hans 4. Eru fangar ekki menn 5. Ég sakna þín 6. Ó ertu ekki sofnuð enn 7. Móðir mín kær 8. Geta karlmenn kokkað? 9. Friðarsöngur 10. Sú minning 11. Stattu…

Inga Jónasar (1926-2012)

Inga Jónasar tónlistarkona frá Suðureyri við Súgandafjörð var allt í senn, söngkona, trúbador og söngkennari, hún samdi ennfremur lög og texta og gaf út snældu með eigin lögum. Inga Jónasar (Ingibjörg Jónasdóttir) fæddist 1926 á Siglufirði og var tónlist henni í blóð borin en faðir hennar var Jónas Sigurðsson harmonikkuleikari. Fjölskyldan fluttist til Suðureyrar við…