Afmælisbörn 20. febrúar 2015
Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni: Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona er 66 ára, hún nam söng við Tónlistarkóla Kópavogs og síðar í Þýskalandi, Ítalíu og Austurríki og þegar hún kom heim að námi loknu hóf hún að kenna söng auk þess að syngja, bæði opinberlega og á plötum. Hún hefur ætíð verið viðloðandi Kór Langholtskirkju…