Sólskinsdeildin (1938-46 / 1951-52)

Barnakórinn Sólskinsdeildin er langt frá því að teljast fyrsti barnakór sem starfaði á Íslandi en hann var klárlega sá fyrsti sem eitthvað kvað að, en hann varð landsfrægur og söng marg oft í barnatíma Útvarpsins auk þess sem hann fór í söngferðalög um land allt við fádæma vinsældir. Það var Guðjón Bjarnason sem setti kórinn…

Spangólín (1978-80)

Hljómsveitin Spangólín mun hafa verið starfandi á Egilsstöðum eða á Fljótsdalshéraði á árunum 1978 til 80. Litlar upplýsingar er að finna um þessa sveit aðrar en að meðlimir hennar voru Þórarinn Rögnvaldsson bassaleikari, Stefán Jökulsson trommuleikari, Eyþór Hannesson hljómborðsleikari og Andrés Einarsson gítarleikari, engar upplýsingar finnast um hver var söngvari sveitarinnar.

Sótarinn (um 1970)

Glatkistan óskar eftir upplýsingum um hljómsveit sem mun hafa borið nafnið Sótarinn og starfað í Vestmannaeyjum um eða eftir 1970. Meðlimir Sótarans voru á unglingsaldri og voru þeir Georg Ólafsson gítarleikari, Hlöðver Guðnason bassaleikari, Jónas Gíslason [?] og Herbert Þorleifsson [?]. Þessi sveit mun hafa starfaði í um eitt ár en þegar Halli Geir [?]…

Sónata [1] (1980)

Hljómsveitin Sónata starfaði á Héraði, hugsanlega á Egilsstöðum árið 1980 en meira liggur ekki fyrir um starfstíma hennar s.s. hversu lengi hún starfaði. Meðlimir Sónötu voru þau Stefán Víðisson gítarleikari, Sigurður Jakobsson trommuleikari, Eyþór Hannesson hljómborðsleikari, Björn Vilhjálmsson bassaleikari, Linda Sigbjörnsdóttir og Alda Jónsdóttir en þær tvær síðast töldu voru söngkonur sveitarinnar. Óskað er eftir…

Sónar [1] (1964-66)

Bítlasveitin Sónar starfaði á Akranesi um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar og naut töluverðra vinsælda meðal unglinga á Skaganum. Sónar voru að öllum líkindum stofnaðir haustið 1964 og gæti hafa verið gítarsveit í upphafi, þ.e. leikið tónlist í anda The Shadows. Sveitin starfaði að minnsta kosti fram til 1966 og lék mestmegnis á dansleikjum í…

Sólstöðubandið (1981)

Sólstöðubandið var sett sérstaklega saman fyrir sólstöðuhátíð sem haldin var á Kirkjubæjarklaustri sumarið 1981 og var því skammlíf sveit sem lék einungis á þeim eina dansleik. Upplýsingar óskast um meðlimi og hljóðfæraskipan Sólstöðubandsins en væntanlega var um að ræða Klausturbúa og nærsveitunga.

Spark [2] (2003)

Hljómsveit starfaði sumarið og haustið 2003 undir nafninu Spark og var hún skipuð nokkrum þekktum tónlistarmönnum, hún gæti átt sér eldri rætur og gæti hafa starfað nokkru fyrr einnig. Meðlimir Sparks voru Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari, Halldór Gunnlaugur Hauksson trommuleikari, Jóhann Ásmundsson bassaleikari og Kristján Edelstein gítarleikari. Sveitin spilaði töluvert á Akureyri árið 2003.

Afmælisbörn 11. maí 2022

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Jóhann (Óskar) Hjörleifsson trommu- og slagverksleikari með meiru er fjörutíu og níu ára gamall. Jóhann er trommuleikari Sálarinnar hans Jóns míns en hefur aukinheldur leikið með sveitum eins og Jagúar, Rokkabillíbandi Reykjavíkur, Stórsveit Reykjavíkur, Trix, Ullarhöttunum, Tríó Björns Thoroddsen og Straumum & Stefáni. Session-mennska hefur þó…

Afmælisbörn 10. maí 2022

Fimm tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: (Guðbjörn) Reynir Guðsteinsson tenórsöngvari frá Vestmannaeyjum er áttatíu og níu ára í dag, hann hefur sungið einsöng með ýmsum kórum á plötum, þar má nefna Maíkórinn, Kór Snælandsskóla og Samkór Vestmannaeyja en Reynir hefur einnig sungið með Karlakór Reykjavíkur. Hann gaf út sólóplötuna Ég er gestur…

Afmælisbörn 9. maí 2022

Í dag eru afmælisbörn dagsins sex talsins: Páll Pampichler Pálsson tónskáld og tónlistarfrömuður er níutíu og fjögurra ára gamall í dag, hann er upphaflega Austurríkismaður sem hingað kom seint á fimmta áratugnum, stýrði lúðrasveitum, kórum og hljómsveitum á borð við Lúðrasveit Reykjavíkur, Karlakór Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess að vera einn stofnenda Kammersveitar Reykjavíkur.…

Afmælisbörn 8. maí 2022

Sjö tónlistartengd afmælisbörn eru í gagnagrunni Glatkistunnar að þessu sinni: Ari Jónsson söngvari og trommuleikari er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Auk þess að hafa gefið út sólóplötur og sungið á plötum ýmissa annarra listamanna, hefur Ari sungið og leikið með fjölmörgum hljómsveitum á borð við Roof tops, Ómum, Altó, Borgís, Pónik, Sheriff,…

Afmælisbörn 7. maí 2022

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum ágæta degi: Svavar Lárusson söngvari frá Neskaupstað er níutíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Svavar söng inn á fjölmargar 78 snúninga plötur hér á árum áður og meðal laga sem urðu vinsæl með honum má nefna Ég vild‘ ég væri og Hreðavatnsvalsinn. Svavar má með…

Afmælisbörn 6. maí 2022

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú í dag: Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, gítarleikari og stofnandi hljómsveitarinnar Of monsters and men er þrjátíu og þriggja ára gömul í dag. Nanna Bryndís, sem kemur úr Garði, kom fyrst í stað fram sem trúbador undir nafninu Songbird, hún hafði einnig tekið þátt í söngkeppni framhaldsskólanna og verið í hljómsveitinni Pointless…

Afmælisbörn 5. maí 2022

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Herbert Viðarsson bassaleikari frá Selfossi er fjörutíu og sex ára gamall á þessum degi. Hebbi er í hljómsveitinni Skítamóral eins og flestir vita en hann hefur einnig leikið með sveitum eins og Boltabandinu á Selfossi, Boogie knights, Ceres 4, Miðnesi, The Sushi‘s og Kántrýsveitinni Klaufum.…

Soffía og Anna Sigga (1958-61)

Tvíeykið Soffía og Anna Sigga voru víðfrægar í kringum 1960 og skipuðu sér þá í hóp skemmtikrafta dúetta eins og Baldur og Konni og Gunnar og Bessi, þær voru jafnframt meðal allra fyrstu barnastjarna Íslandssögunnar. Þær Soffía Árnadóttir (f. 1949) og Sigríður Anna Þorgrímsdóttir (f. 1947) voru ungar að árum þegar þær urðu stjörnur í…

Soffía og Anna Sigga – Efni á plötum

Soffía og Anna Sigga / Gerður Benediktsdóttir – Órabelgur / Æ, ó, aumingja ég [ep] Útgefandi: Stjörnuhljómplötur Útgáfunúmer: STPL 1 Ár: 1959 1. Órabelgur 2. Æ, ó aumingja ég Flytjendur: Soffía Árnadóttir – söngur Sigríður Anna Þorgrímsdóttir – söngur Gerður Benediktsdóttir – söngur Tríó Árna Ísleifs; – Árni Ísleifsson – píanó – Karl Lilliendahl – gítar – Pétur Urbancic – kontrabassi      …

Solveig Thorarensen – Efni á plötum

Jóhann Möller og Tóna systur [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfuár: IM 78 Ár: 1955 1. Þú ert mér kær 2. Pabbi vill mambó Flytjendur: Jóhann Möller – söngur hljómsveit Jan Morávek; – Jan Morávek – píanó – Pétur Urbancic – kontrabassi – José Riba – slagverk – Þorsteinn Eiríksson – trommur Tóna systur; – Eygló Viktorsdóttir – raddir – Hulda Viktorsdóttir –…

Solveig Thorarensen (1933-2020)

Solveig Thorarensen var ein af fyrstu dægurlagasöngkonum landsins og var orðin býsna þekkt um tvítugt, hún eins og svo margar aðrar slíkar söngkonur um það leyti hætti að mestu að syngja upp úr tvítugu og sneri sér að húsmóðurhlutverkinu. Solveig Óskarsdóttir Thorarensen (oft ritað Sólveig) fæddist í Reykjavík haustið 1933. Hún gekk í Menntaskólann í…

Sólarkvartettinn (1996-97)

Sólarkvartettinn var að öllum líkindum söngkvartett, starfandi á Ísafirði veturinn 1996-97 að minnsta kosti. Hér er giskað á að Sólarkvartettinn hafi verið starfræktur innan Sunnukórsins en frekari upplýsingar óskast um hann.

Sókrates [3] (um 1992)

Hljómsveit að nafni Sókrates mun hafa verið starfandi á höfuðborgarsvæðinu árið 1992 eða um það leyti, líkur eru á að um rokksveit hafi verið að ræða. Óskað er eftir upplýsingum um þessa sveit.

Sólskinsbræður (1972-73)

Sólskinsbræður var söngkvartett menntaskólanema sem kom nokkuð fram opinberlega veturinn 1972-73. Þetta voru þeir Egill Ólafsson, Páll Gunnlaugsson, Frosti Fífill Jóhannsson og Haukur Þórólfsson en Áslaug Halldórsdóttir annaðist undirleik hjá hópnum. Svo virðist sem Sólskinsbræður, sem komu út Menntaskólanum við Hamrahlíð, hafi fyrst komið fram í skemmtiþætti Ríkissjónvarpsins haustið 1972 og fengið þar nógu mikla…

Sólseturskórinn [1] (1982-94)

Lítið er vitað með vissu um kór eldri borgara sem starfaði við Neskirkju á níunda og tíunda áratugnum en hann mun á einhverjum tímapunktum hafa verið kallaður Sólseturskórinn (Sólseturkórinn). Fyrir liggur að Reynir Jónasson (harmonikkuleikari) stjórnaði kór eldri borgara við Neskirkju haustið 1982 en hann var þá organisti við kirkjuna. Svo virðist sem kórinn hafi…

Sólblóma [4] (2012)

Glatkistan óskar eftir upplýsingum um hljómsveit sem starfaði árið 2012 undir nafninu Sólblóma. Líklegt er að hér hafi verið á ferð eins konar ballsveit en ekkert liggur fyrir um hana, hvorki upplýsingar um meðlimi hennar eða hljóðfæraskipan né starfstíma eða annað.

Sólblóma [2] (1994)

Hljómsveitin Sólblóma var ekki starfandi hljómsveit en það nafn var sett á hljómsveitina SSSól þegar Þorsteinn G. Ólafsson söngvari Vina vors og blóma tróð upp með sveitinni með skömmum fyrirvara sumarið 1994 eftir að Helgi Björnsson hafði forfallast en hann hafði þá hlotið blæðandi magasár á Gauki á Stöng og lá á sjúkrahúsi. Líklega lék…

Sólblóma [1] (1991)

Upplýsingar óskast um hljómsveitina Sólblóma sem starfaði haustið 1991 en sveitin lék um það leyti á Hótel Borg. Líklegt er að Sólblóma hafi verið af höfuðborgarsvæðinu en allar upplýsingar vantar um þessa sveit, meðlimi hennar og hljóðfæraskipan, starfstíma og annað.

Sex í kór (1991)

Sönghópur skipaður ungum tónlistarmenntuðum söngvurum undir nafninu Sex í kór tróðu upp á bindindismótinu í Galtalæk um verslunarmannahelgina 1991 og líklega víðar, og söng dægurlög og aðra létta tónlist án undirleiks. Hópurinn sem fyrst um sinn gekk undir vinnuheitinu Eldfjörug, var skipaður þeim Dagnýju Þórunni Jónsdóttur, Guðrúnu Ingimarsdóttur, Hönnu Björgu Guðjónsdóttur, Jennýju Gunnarsdóttur, Guðjóni Halldóri…

Viridian green – Efni á plötum

Viridian green – Viridian green [ep] Útgefandi: Sigurjón Georg Ingibjörnsson Útgáfunúmer: [án útgáfunúmers] Ár: [án útgáfuárs] 1. Angel 2. Rosie 3. Singin in the sun 4. Rose gone bananas Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur]

Afmælisbörn 4. maí 2022

Afmælisbörn dagsins á Glatkistunni eru fimm talsins að þessu sinni: Jakob Frímann Magnússon er sextíu og níu ára gamall. Hann er auðvitað einna þekktastur fyrir framlag sitt með Stuðmönnum en Jakob á ennfremur sólóferil sem spannar um tug platna. Hann lék á árum áður með öðrum sveitum eins og Rifsberju, Bone symphony, Hvítárbakkatríóinu (White Bachman…

Afmælisbörn 3. maí 2022

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Ólafur Helgi Helgason trommuleikari er sextíu og sjö ára á þessum degi en hann var áberandi í poppsveitum áttunda áratugar síðustu aldar. Ólafur lék með hljómsveitum á borð við Dögg, Tilfinningu og Kvintett Ólafs Helgasonar sem síðar hlaut nafnið Tívolí. Helga Marteinsdóttir veitingakona (1893-1979) átti afmæli þennan…

Afmælisbörn 2. maí 2022

Á þessum öðrum degi maímánaðar eru sjö tónlistartengd afmælisbörn á skrá: Garðar Thor Cortes tenórsöngvari er fjörutíu og átta ára gamall í dag. Garðar lærði söng fyrst hér heima en fór að því loknu í framhaldsnám til Austurríkis, Danmerkur og Bretlands. Hann lét fyrst að sér kveða á plötu Samkórs Selfoss árið 1995 og hefur…

Afmælisbörn 1. maí 2022

Fjögur afmælisbörn dagsins eru á dagskrá Glatkistunnar á þessum degi verkalýðsins: Baldvin Albertsson hljómborðsleikari er þrjátíu og níu ára en hann lék með hljómsveitinni Lokbrá á tíunda áratug síðustu aldar. Lokbrá skildi eftir sig breiðskífuna Army of soundwaves, sem vakti nokkra athygli. Trausti Laufdal Aðalsteinsson er einnig þrjátíu og níu ára en hann starfaði með…