Afmælisbörn 18. nóvember 2015

Í dag er eitt afmælisbarn á skrá í gagnabanka Glatkistunnar: Þorleifur J. Guðjónsson bassaleikari er hvorki meira né minna en fimmtíu og níu ára á þessum degi. Þorleifur hefur starfað í ótal hljómsveitum fyrst sem gítarleikari en síðan á bassa, sumum þekktum en öðrum minna þekktum. Hér eru nefndar nokkrar en þeim fer fjölgandi: KK-band, Egó,…

Afmælisbörn 17. nóvember 2015

Afmælisbarn dagsins eru tvö að þessu sinni á skrá Glatkistunnar: Gauti Þeyr Másson rappari (Emmsjé Gauti / MC Gauti) er tuttugu og sex ára gamall á þessum degi en hann hefur verið í rappeldlínunni síðan 2002 þegar hann birtist í Rímnaflæði aðeins þrettán ára gamall, hann hefur verið í sveitum eins og 32C og starfað…

Afmælisbörn 16. nóvember 2015

Afmælisbörn dagsins eru þrjú en allir er þeir farnir yfir móðuna miklu: Jónas Hallgrímsson (1807-45) er eitt af þjóðskáldunum, allir þekkja og hafa sungið lög við ljóð og ljóðaþýðingar hans s.s. Álfareiðina (Stóð ég úti í tunglsljósi), Vísur Íslendinga (Hvað er svo glatt) og Ég bið að heilsa (Nú andar suðrið). Það er engin tilviljun…

Afmælisbörn 15. nóvember 2015

Tveir tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag: Richard Scobie sem helst var þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Rikshaw er fimmtíu og fimm ára gamall í dag. Scobie söng einnig með hljómsveitum eins og Spooky boogie, Beaverly brothers, The Boy brigade, Sköllóttu músinni og Loðinni rottu. Hann gaf einnig út sólóefni á sínum tíma og hefur skotið…

Afmælisbörn 14. nóvember 2015

Eitt tónlistartengt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Geir Jóhannsson trommuleikari er fertugur í dag. Jón Geir hefur spilað með fleiri þekktum hljómsveitum en flestir aðrir hljóðfæraleikarar, meðal sveita sem hann hefur leikið með eru Skálmöld, Kalk, Bris, Ampop, Sýróp, Klamidía X, Hraun, Trassarnir og Urmull.

Afmælisbörn 13. nóvember 2015

Afmælisbörn dagsins eru tvö að þessu sinni: Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og kórstjórnandi er fimmtug í dag. Hún gaf út plötu með óperuaríum fyrir um tíu árum og einnig djassskotnu plötuna Ó ó Ingibjörg, ásamt bræðrum sínum tveim árum síðar, hún hefur aukinheldur sungið inn á nokkrar aðrar plötur. Ingibjörg hefur stjórnað Kvennakór Garðabæjar og kvennakórnum…

Afmælisbörn 12. nóvember 2015

Tvö tónlistartengd afmælisbörn dagsins eru eftirfarandi: Natalía Chow Hewlett kórstjórnandi frá Hong Kong er fimmtíu og þriggja ára á þessum degi, hún hefur stýrt kórum eins og Kvennakór Kópavogs, Englakórnum og Kór Ytri-Njarðvíkurkirkju. Emilía Björg Óskarsdóttir söngkona (Emilía í Nylon) er þrjátíu og eins árs gömul í dag. Emilía staldraði styst í Nylon-flokknum, kom síðust inn…

Afmælisbörn 11. nóvember 2015

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjölmörg á þessum degi: Ásgerður Flosadóttir er sextíu og eins árs gömul í dag. Ásgerður var þekktust fyrir framlag sitt á plötu Samsteypunnar sem út kom 1970 og hafði m.a. að geyma lagið Friður á jörð (Give peace a change). Hún hefur lítið verið viðloðandi tónlist seinni ár. Jóhann Davíð Richardsson trommuleikari…

Afmælisbörn 10. nóvember 2015

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Gylfi (Viðar) Ægisson söngvari, gítarleikari, sprellari, söngleikjahöfundur, útgefandi, laga- og textasmiður er sextíu og níu ára gamall í dag, hann hefur mest starfað sem sólólistamaður og gefið út fleiri tugi platna sem slíkur en hefur einnig unnið með GRM, Áhöfninni á Halastjörnunni, auk annarra. Kormákur…

Afmælisbörn 9. nóvember 2015

Tvö afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Pjetur Stefánsson tónlistar- og myndlistarmaður er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Hann hefur gefið út plötur undir eigin í nafni se, PS en einnig með öðrum s.s. PS & Bjóla, Big nós band og PS&CO, hann vann svolítið með Megasi um tíma sem og Vinum…

Afmælisbörn 7. nóvember 2015

Afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Guðlaugur (Auðunn) Falk gítarleikari er fimmtíu og sex ára í dag. Guðlaugur hefur starfað með mörgum rokkhljómsveitum, sumum í þyngri kantinum, og má þar m.a. nefna Exizt, Fist, Gildruna, Dark harvest, Stálfélagið og C.o.T. Hann hefur einnig gefið út tvær sólóplötur. Óttarr Ólafur Proppé…

Afmælisbörn 6. nóvember 2015

Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Jónas Sen er fimmtíu og þriggja ára gamall í dag. Jónas er píanóleikari, tónskáld og tónlistargagnrýnandi á Fréttablaðinu og hefur fengist við tónlist af ýmsu tagi, hann gaf t.d. út plötu með píanóverkum fyrir um tveimur áratugum og hefur einnig gefið út plötu með söngkonunni Ásgerði…

Nýtt myndband Ylju í tilefni af Airwaves

Í tilefni af tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem nú er hafin, ákvað hljómsveitin Ylja að klippa saman myndband frá tónleikum sveitarinnar í Kaldalóni í tónlistarhúsinu Hörpu, og birta í þessari spennandi viku. Um er að ræða lifandi flutning á laginu DIM sem birtist fyrst á síðustu plötu Ylju sem heitir Commotion og koma út seint á síðasta ári.…

Afmælisbörn 3. nóvember 2015

Afmælisbarn dagsins er aðeins eitt að þessu sinni: Ólafur Þór Arnalds tónlistarmaður er 29 ára á þessum degi. Ólafur hefur að mestu leyti starfað sjálfstætt og gefið út fjöldann allan af plötum og hlotið fyrir þær viðurkenningar en hann hefur einnig leikið á trommur með sveitum eins og Mannamúl, Celestine, Fighting shit og I adapt…

Afmælisbörn 2. nóvember 2015

Í dag eru afmælisbörn á skrá Glatkistunnar þrjú talsins: Troels Bendtsen er sjötíu og tveggja ára í dag. Troels var einkum þekktur fyrir framlag sitt í Savanna tríóinu og Þremur á palli en báðar sveitirnar nutu vinsælda á sjöunda áratugnum, síðarnefnda sveitin starfaði einkum í nánu samstarfi við Jónas Árnason og leikhúsið en allir þekkja…

Afmælisbörn 1. nóvember 2015

Afmælisbörn dagsins hjá Glatkistunni að þessu sinni eru: Jón Sigurbjörnsson söngvari, leikari og hestamaður er 93 ára í dag. Jón nam leiklist í Bandaríkjunum og samhliða því lærði hann söng. Hann hélt áfram söngnámi á Ítalíu og hér heima en vann þó fyrst og fremst í leiklistinni. Söng hans má heyra á fjölmörgum plötum, mörgum…

Afmælisbörn 29. október 2015

Að þessu sinni eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Þorvaldur Halldórsson söngvari frá Siglufirði er sjötíu og eins árs í dag. Þorvald þekkja auðvitað allir fyrir lagið Á sjó, sem gefið var út 1966 en þá þegar var hann orðinn einn ástsælasti söngvari landsins. Þorvaldur lék á gítar og bassa, og söng með sveitum eins…

Afmælisbörn 28. október 2015

Afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins að þessu sinni: Egill Eðvarðsson er sextíu og átta ára gamall. Egill er kunnastur fyrir störf sín hjá Sjónvarpinu en hann var einnig tónlistarmaður á árum áður, hann lék til að mynda með gjörningasveitinni Combó Þórðar Hall sem vakti mikla athygli á sínum tíma en aðrar hljómsveitir sem hann hefur…

Afmælisbörn 27. október 2015

Afmælisbarn dagsins kemur úr einni vinsælustu hljómsveit síðari ára: Jens Hansson saxófón- og hljómborðsleikari úr Sálinni hans Jóns míns er fimmtíu og tveggja ára gamall í dag. Jens vakti fyrst athygli með Das Kapital þar sem hann lék saxófónssólóið í Blindsker en síðar lék hann með hljómsveitum eins og Faraldi, Strákunum, Lost, Klakabandinu, Fínt fyrir…

Afmælisbörn 26. október 2015

Tvö tónlistartengd afmælisbörn Glatkistunnar að þessu sinni eru: Ragnar Danielsen hjartalæknir og fyrrverandi Stuðmaður er sextíu og fjögurra ára gamall í dag. Ragnar var einn af þeim sem fyrst skipuðu þá sveit sem síðar var kölluð hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn. Sú útgáfa sveitarinnar sendi löngu síðar frá sér plötu undir nafninu Frummenn en Ragnar hefur…

Afmælisbörn 25. október 2015

Afmælisbarn dagsins er eftirfarandi: Ingibjörg Þorbergs tónlistarkona áttatíu og átta ára gömul í dag. Ingibjörg kom snemma að tónlist, hún söng t.d. í barnakórnum Sólskinsdeildinni og söng einsöng með honum einhverju sinni. Hún lærði síðan á gítar og píanó, lauk tónmenntakennaraprófi og varð fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi á klarinettu. Ingibjörg söng fjölmörg þekkt…

Afmælisbörn 24. október 2015

Í dag er afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Karl Ottó Runólfsson tónskáld hefði átt afmæli í dag. Karl fæddist aldamótaárið 1900, nam trompet- og píanóleik, auk þess ljúka námi í hljómsveitaútsetningum og tónsmíðum. Hann var einn af stofnendum Lúðrasveitar Reykjavíkur og stýrði nokkrum lúðrasveitum og danshljómsveitum víða um land, hann sinnti ennfremur tónlistarkennslu en lék jafnframt…

Afmælisbörn 23. október 2015

Tvö afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Hjörleifur Jónsson tenórsöngvari er níutíu og tveggja ára. Þótt Jón hafi gegnt ýmsum tónlistartengdum störfum í gegnum tíðina, t.d. sem stjórnandi Karlakórs Akureyrar og Kirkjukórs Hveragerðis og Kotstrandarsókna þá var hann orðinn áttræður þegar út kom plata með söng hans en það voru vinir og…

Afmælisbörn 22. október 2015

Tveir tónlistarmenn eru á afmælisbarnaskrá Glatkistunnar í dag: Steinn Kárason tónlistarmaður og umhverfishagfræðingur frá Sauðárkróki er sextíu og eins árs á þessum degi. Steinn starfaði á árum áður með hljómsveitunum Djöflahersveitinni og Háspennu lífshættu í Skagafirði en gaf út sólóplötuna Steinn úr djúpinu fyrir fáeinum árum, hann hefur einnig gefið út smáskífu í samstarfi við Schola…

Afmælisbörn 21. október 2015

Eitt tónlistartengt afmælisbarn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Karl Olgeir Olgeirsson hljómborðsleikari og lagahöfundur frá Akureyri er fjörutíu og þriggja ára á þessum degi. Hann hefur starfað ýmist í hljóðverum sem upptökumaður eða hljóðfæraleikari en einnig með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina. Sem dæmi um sveitir sem hann hefur verið í má nefna…

Afmælisbörn 20. október 2015

Afmælisbörn dagsins í dag eru þrjú: Þóra Einarsdóttir sópransöngkona er fjörutíu og fjögurra ára í dag. Þóra lærði píanóleik og söng hér heima en fór til Englands í framhaldsnám í söng, þar bjó hún um tíma sem og í Svíþjóð og Þýskalandi. Hún hefur sungið á fjölmörgum plötum og óperuhlutverk hennar skipta tugum en hún…

Afmælisbörn 19. október 2015

Þrjú afmælisbörn eru á skrá hjá Glatkistunni í dag: Guðmundur S. Steingrímsson (Papa Jazz) trommuleikari með meiru er áttatíu og sex ára á þessum degi. Guðmundur lék á sínum tíma með fjöldanum öllum af djass- og danshljómsveitum þess tíma og alltof langt mál yrði að telja þær allar upp en sem dæmi má nefna Unga…

Afmælisbörn 18. október 2015

Í dag kemur eitt tónlistartengt afmælisbarn við sögu Glatkistunnar: Magni Friðrik Gunnarsson gítarleikari frá Akureyri er fjörutíu og átta ára gamall á þessum degi. Magni er kunnastur fyrir framlag sitt með Stuðkompaníinu sem sigraði Músíktilraunir 1987 en hefur svosem komið mun víðar við á sínum tónlistarferli, hann hefur leikið og sungið í sveitum eins og…

Afmælisbörn 16. október 2015

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jóhanna Guðrún (Jónsdóttir) söngkona er tuttugu og fimm ára í dag. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún gefið út nokkrar plötur, þar af höfðu komið út þrjár plötur með henni þegar hún var aðeins tólf ára gömul. Hún gaf einnig út plötuna Butterflies and Elvis árið…

Afmælisbörn 15. október 2015

Á þessum degi koma fjögur afmælisbörn við sögu á skrá Glatkistunnar: Fyrstan skal nefna Ísfirðinginn Baldur Geirmundsson sem er sjötíu og átta ára gamall í dag. Baldur sem leikur á ýmis hljóðfæri starfrækti á árum áður ýmsar sveitir undir eigin nafni, Hljómsveit Baldurs Geirmundssonar og BG kvintettinn voru dæmi um slíkar sveitir en frægust þeirra…

Afmælisbörn 14. október 2015

Afmælisbörn Glatkistunnar er aðeins eitt í dag: Bjarni Þorsteinsson þjóðlagasafnari frá Siglufirði (1861-1938) átti afmæli þennan dag. Bjarni var þekktur fyrir þjóðlagasafn sitt en hann safnaði íslenskum þjóðlögum um tuttugu fimm ára skeið og gaf út undir nafninu Íslenzk þjóðlög árið 1905. Um var að ræða þúsund blaðsíðna rit sem hafði að geyma um fimm…

Afmælisbörn 13. október 2015

Eitt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar í dag: Sigurður Bjóla Garðarsson tónlistarmaður er sextíu og þriggja ára gamall. Bjólan eins og hann er oft kallaður hefur að margra mati haldið sig alltof mikið til hlés í tónlistinni en hann er kunnastur fyrir framlag sitt með Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum, hann var til að mynda hugmyndasmiðurinn…

Afmælisbörn 12. október 2015

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Páll Ísólfsson tónskáld og Dómorganisti hefði átt afmæli á þessum degi. Hann fæddist 1893 á Stokkseyri og nam þar fyrst orgelleik, sem og í Reykjavík en fór síðan til Þýskalands og síðar Frakklands til framhaldsnáms. Þegar heim var komið gerðist hann organisti fyrst hjá Fríkirkjunni en…

Afmælisbörn 11. október 2015

Afmælisbörnin á þessum degi eru fimm talsins: Jón Ásgeirsson tónskáld er áttatíu og sjö ára í dag. Jón fæddist á Ísafirði en nam fræði sín í Reykjavík og síðar í Skotlandi, hann hefur komið að tónlistinni með margs konar hætti, til að mynda hefur hann stjórnað kórum og lúðrasveitum eins og Fóstbræðrum og Lúðrasveit verkalýðsins,…

Afmælisbörn 10. október 2015

Aðeins eitt tónlistartengt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar í dag: Hilmar Jensson gítarleikari er fjörutíu og níu ára gamall á þessum degi. Hilmar sem hefur síðustu árin fyrst og fremst starfað í djassgeiranum hefur gefið út nokkrar sólóplötur og með hljómsveitunum Tyft og Mógil en einnig hefur hann gefið út plötur í samstarfi við Skúla…

Afmælisbörn 9. október 2015

Glatkistan hefur eitt tónlistartengt afmælisbarn á sinni skrá á þessum degi: Fjölnir Stefánsson tónskáld og tónlistarfrömuður hefði átt afmæli þennan dag en hann lést árið 2011. Fjölnir (f. 1930) lærði á selló auk hljómfræði og tónsmíða hér heima áður en hann fór til London til framhaldsnáms í tónsmíðum. Þegar heim var komið kenndi hann við…

Afmælisbörn 8. október 2015

Afmælisbörnin eru þrjú að þessu sinni: Ingimar Oddsson söngvari hljómsveitarinnar Jójó frá Skagaströnd er fjörutíu og sjö ára gamall. Jójó sigraði Músíktilraunir Tónabæjar árið 1988 en náði ekki sömu hæðum og margir sigurvegarar keppninnar fyrr og síðar hafa náð. Ingimar var viðloðandi fleiri hljómsveitir en þær vöktu litla athygli, þetta voru verkefni eins og Lærisveinar Fagins,…

Afmælisbörn 7. október 2015

Á þessum degi eru fjögur afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Söngvarinn (Sveinberg) Skapti Ólafsson er sjötíu og átta ára gamall á þessum degi. Skapti var af fyrstu rokkkynslóðinni, söng og lék á trommur með ýmsum sveitum eins og Fjórum jafnfljótum, Hljómsveit Baldurs Kristjánssonar, Hljómsveit Carls Billich og Hljómsveit Magnúsar Randrup auk eigin sveitar en hann varð…

Blúsveisla Skúla mennska á Stofunni

Miðvikudagskvöldið 7. október bjóða Skúli mennski og hljómsveit til lítillar blúsveislu á Stofunni við Vesturgötu 3, í miðbæ Reykjavíkur. Á efnisskránni verða að mestu frumsamdir blúsar en efni eftir Elmore James, John Lee Hooker og Tom Waits fær að fljóta með svo dæmi séu tekin. Ragnheiður Gröndal lítur við og veitir drengjunum liðsinni sitt í…

Afmælisbörn 6. október 2015

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Lárus Ingi Magnússon söngvari er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Lárus kemur upphaflega frá Hvolsvelli og söng þar með sveitaballahljómsveitum á borð við Durex, Frk. Júlíu og Nonna og mönnunum en hlaut sína frægð þegar hann sigraði fyrstu Söngkeppni framhaldsskólanna vorið 1990. Lárus…

Afmælisbörn 4. október 2015

Fjögur afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Ásgeir H. (Hermann) Steingrímsson trompetleikari er fimmtíu og átta ára gamall. Ásgeir byrjaði tónlistarnám sitt á Húsavík og síðan í Reykjavík en hann lauk einleikara- og kennaraprófi áður en hann fór til Bandaríkjanna til framhaldsnáms. Hann hefur gegnt stöðu fyrsta trompetleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan 1985, hefur…

Afmælisbörn 3. október 2015

Að þessu sinni eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Þorlákur (Hilmar) Kristinsson Morthens eða bara Tolli Morthens er sextíu og tveggja ára í dag. Allir þekkja listmálarann Tolla en margir muna líka eftir tónlistarferli hans, hann gaf út plötuna The boys from Chicago ásamt hljómsveitinni Ikarus árið 1983 en platan var einmitt lokaverkefni Tolla…

Afmælisbörn 2. október 2015

Afmælisbörn dagsins eru tvö í dag, í báðum tilfellum er um trommuleikara að ræða: Birgir Baldursson trommuleikari er fimmtíu og fjögurra ára gamall. Birgir hefur leikið með ógrynni hljómsveita þar sem fjölbreytileikinn er í fyrirrúmi og hann er án efa sá trommuleikari sem leikið hefur með flestum sveitum hérlendis, hér eru einungis fáein sýnishorn: S.H.…

Afmælisbörn 1. október 2015

Eitt tónlistartengt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar þennan fyrsta dag október mánaðar: Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari og tónmenntakennari er þrjátíu og níu ára gamall á þessum degi. Þráinn hefur komið víða við í fjölbreytileika tónlistarinnar síðan hann lék með unglingahljómsveitinni Pain en þar má nefna sveitir eins og Sága, Klamidía X, Blóð, Innvortis, Kalk, Moonboot, Sikk og…

Afmælisbörn 29. september 2015

Þrjú afmælisbörn koma við sögu á skrá Glatkistunnar í dag: Óli Ágústsson söngvari er sjötíu og níu ára gamall í dag en hann var einn þeirra fyrstu sem lagði rokksöng fyrir sig á Íslandi á seinni hluta sjötta áratug síðustu aldar. Hann var iðulega kallaður Óli rokkari eða Óli Presley en hann sérhæfði sig í…

Afmælisbörn 28. september 2015

Að þessu sinni eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Haffi Haff (Hafsteinn Þór Guðjónsson) tónlistarmaður er þrjátíu og eins árs gamall á þessum degi. Haffi fæddist í Bandaríkjunum og hefur búið þar nánast alla sína ævi en kom til Íslands 2006 og hefur verið hérlendis með annan fótinn síðan. Fljótlega fór hann að vekja…

Afmælisbörn 27. september 2015

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar í dag: Benedikt (Árnason) Elfar tenórsöngvari hefði átt afmæli þennan dag. Hann fæddist 1892 á Eyjafjarðarsvæðinu og ólst upp þar en fluttist suður til Reykjavíkur á unglingsárum. Þar nam hann guðfræði og söng en hætti síðar í guðfræðinni til að fara erlendis til frekara söngnáms í Danmörku og síðar…

Afmælisbörn 26. september 2015

Tvö afmælisbörn koma við sögu á þessum degi: Reynir Jónasson harmonikkuleikari og organisti er áttatíu og þriggja ára gamall í dag. Reynir kemur upphaflega úr Suður-Þingeyjasýslu en tónlistarferillinn hófst þó á Akureyri um tvítugt. Þegar hann flutti suður lék hann með sveitum eins og Hljómsveit Svavars Gests, Rómeó kvartettnum og Tríói Trausta Thorberg en síðar…

Afmælisbörn 25. september 2015

Í dag koma tvö afmælisbörn við sögu hjá Glatkistunni: Dalvíkingurinn Matthías Matthíasson söngvari er fertugur, hann vakti fyrst athygli með Reggae on ice en hafði reyndar áður keppt í Músíktilraunum með hljómsveitinni Dagfinni dýralækni. Samhliða reggíævintýrinu lék hann og söng í Hárinu og Súperstar en svo tóku við hljómsveitir eins og Papar, Poppvélin, Dúndurfréttir og…