Afmælisbörn 30. ágúst 2015

Afmælisbörnin eru þrjú talsins í dag: Agnar Már Magnússon píanóleikari er fjörutíu og eins árs í dag. Agnar Már sem nam á Íslandi og í Hollandi, hefur einna mest verið áberandi í djassgeiranum og eftir hann liggja nokkrar plötur, auk þess sem hann hefur starfrækt Tríó Agnars Más og unnið nokkuð við leikhústónlist. Hann hefur…

Afmælisbörn 29. ágúst 2015

Sex afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Benóný Ægisson (Benni Ægizz) leikari og tónlistarmaður er sextíu og þriggja ára. Benóný hefur sent frá sér sólóplötur, nú síðast fyrir fáeinum vikum, en hann hefur einnig verið viðloðandi hljómsveitir eins og Kamarorghesta, Sódó ódó og Orghesta. Herdís Hallvarðsdóttir er fimmtíu og níu ára…

Afmælisbörn 28. ágúst 2015

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður er sextíu og sjö ára gamall. Magnús Þór er auðvitað kunnastur fyrir samstarf sitt með Jóhanni Helgasyni, sbr. Magnús & Jóhann, en saman störfuðu þeir líka sem Pal brothers og í hljómsveitinni Change. Magnús Þór hefur ennfremur gefið út fjöldann allan af…

Afmælisbörn 27. ágúst 2015

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar í dag: Sigríður Maggý Magnúsdóttir (Sigga Maggý) söngkona átti afmæli á þessum degi en hún lést árið 2009. Sigga Maggý var fædd 1934, hún var gift harmonikkuleikaranum Ásgeiri Sverrissyni og söng lengi með gömludansasveit hans, Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar á öldurhúsum höfuðborgarinnar. Ein fjögurra laga plata kom út með…

Afmælisbörn 26. ágúst 2015

Eitt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Daníel Ágúst Haraldsson söngvari er fjörutíu og sex ára gamall í dag. Hann vakti fyrst athygli á menntaskólaárum sínum með hljómsveitinni Nýdanskri sem hann hefur starfað með, reyndar með hléum, allt til þessa dags. Áður hafði hann verið í hljómsveitinni Chorus. Daníel Ágúst hefur einnig verið…

„Wrong Place, Right Time“ – fyrirlestur um hljómsveitina The Fall

Kieran Curran Dr. Kieran Curran; írskur bókmenntafræðingur, tónlistarmaður og rýnir mun nú á laugardaginn flytja erindi um The Fall sem verður nokkurs konar akademískur listgjörningur. Pælingar um eðli og eigindir þessarar mögnuðu sveitar verða bornar fram með hljóðdæmum og innblásnu skurki. Arnar Eggert Thoroddsen mun kynna hann til leiks og á eftir verður opið fyrir…

Afmælisbörn 25. ágúst 2015

Í dag er eitt afmælisbarn á skrá hjá Glatkistunni en þar er reyndar á ferðinni stórt nafn með stórafmæli: Magnús Eiríksson laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngvari er sjötugur á þessum annars ágæta degi. Magnús er einn allra helsti lagahöfundur íslenskrar tónlistarsögu, á að baki sólóferil sem og feril með hljómsveitum á borð við Mannakorn,…

Nýtt myndband við Vísur Vatnsenda-Rósu

Söngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui tóku nýlega upp myndband við sjávarsíðuna í Reykjavík með hinu ástkæra lagi Vísur Vatnsenda-Rósu eftir Jón Ásgeirsson. Myndbandið gerði Torfi Frans Ólafsson. Guðrún Jóhanna hefur unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum söngkeppnum svo sem the Kathleen Ferrier Song Prize í Wigmore Hall og komið fram á…

Afmælisbörn 24. ágúst 2015

Eitt afmælisbarn í íslenskri tónlistarsögu kemur við sögu Glatkistunnar í dag: Ólafur Haukur Símonarson er sextíu og átta ára gamall. Ólafur er fyrst og fremst laga- og textahöfundur og skipta lög hans hundruðum, oftar en ekki tengt leikhúsinu. Þarna má nefna t.d. Hatt og Fatt, Gauragang, Fólkið í blokkinni og Kötturinn fer sínar eigin leiðir…

Afmælisbörn 23. ágúst 2015

Afmælisbörnin eru tvö talsins á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Elvar Hafsteinsson gítarleikari og kokkur er fjörutíu og átta ára gamall. Margir muna eftir honum síðhærðum með Stjórninni þegar Eitt lag enn tröllreið öllu hér á landi en Jón Elvar hefur einnig leikið með sveitum eins og Sigtryggi dyraverði, Singultus, Hjartagosunum, Dykk, Delizie Italiane,…

Stofutónleikar á Gljúfrasteini

Duo Ingolfsson-Stoupel (Judith Ingólfsson fiðluleikari og Vladimir Stoupel píanóleikari) mun flytja verk eftir Robert Schumann, Johannes Brahms og Albert Dietrich á stofutónleikum Gljúfrasteins sunnudaginn 23. ágúst klukkan 16:00. Miðaverð er kr. 1500. Efnisskráin verður sem hér segir: Schumann / Dietrich / Brahms: Sónata fyrir fiðlu og píanó „Frei Aber Einsam“ Brahms: Ungverskur dans nr. 4…

Afmælisbörn 22. ágúst 2015

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Stórsöngvarinn frá Bíldudal, Jón Kr. (Kristján) Ólafsson er sjötíu og fimm ára. Jón vakti fyrst landsathygli með bílddælsku hljómsveitinni Facon en áður hafði hann reyndar sungið með Kvartettnum og Kristjáni, og Hljómsveit Jóns Ástvaldar Hall. Eftir að sögu Facons lauk starfaði Jón um tíma í Reykjavík,…

Afmælisbörn 21. ágúst 2015

Glatkistan hefur upplýsingar um eitt afmælisbarn þennan daginn: Erling Ólafsson baritónsöngvari hefði átt afmæli á þessum degi. Erling fæddist 1910, hann var einn þriggja kunnra bræðra sem allir lögðu fyrir sig söng og tónlist, hinir voru Jónatan og Sigurður en frá þeim síðarnefnda er kominn fjöldinn allur af þekktu tónlistarfólki. Erling nam söng hjá Sigurði…

Afmælisbörn 20. ágúst 2015

Þrjú afmælisbörn koma við sögu á þessum degi: Einar Júlíusson söngvari er sjötíu og eins árs. Einar söng með ýmsum hljómsveitum s.s. Saxon kvintett, H.J. kvartettnum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar áður en hann gerðist fyrsti söngvari Hljóma frá Keflavík. Síðar átti hann eftir að syngja með Pónik, t.d. lagið Léttur í lundu, og fleiri sveitum…

Afmælisbörn 18. ágúst 2015

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni: Þórður Árnason gítarleikari oftast kenndur við hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, er sextíu og þriggja ára í dag. Nokkur ár eru liðin síðan hann yfirgaf sveitina en hann hefur í gegnum tíðina leikið með fjölmörgum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna Frugg, Sókrates, Rifsberju, Brunaliðið, Litla matjurtagarðinn, Stóla og…

Afmælisbörn 17. ágúst 2015

Í dag er eitt afmælisbarn í tónlistargeiranum skráð hjá Glatkistunni: Skagamaðurinn Jón Trausti Hervarsson er sjötugur í dag en hann er kunnastur fyrir framlag sitt með hljómsveitinni Dúmbó sextett og Steina frá Akranesi sem starfaði í um tvo áratugi en hann var einn þeirra sem var allan tímann í sveitinni. Jón Trausti gegndi stöðu saxófónleikara…

Afmælisbörn 16. ágúst 2015

Tvö afmælisbörn eru á skrá í dag: Sigurður (Pétur) Bragason baritónsöngvari er sextíu og eins árs. Sigurður nam söng og tónfræði frá Tónlistarskólanum í Reykjavík en stundaði síðan framhaldsnám á Ítalíu og Þýskalandi. Hann hefur sungið ýmis óperuhlutverk heima og erlendis, gefið út sjö plötur með söng sínum, auk þess að stýra nokkrum kórum s.s.…

Afmælisbörn 15. ágúst 2015

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Þingeyingurinn Baldur Ragnarsson tónlistarmaður og áhugaleikari er þrjátíu og eins árs gamall í dag. Þótt flestir tengi Baldur við gítarleik og söng í  hljómsveitinni Skálmöld hefur hann komið við í miklum fjölda sveita af ýmsu tagi, sem vakið hafa athygli með plötum sínum. Þar má…

Afmælisbörn 14. ágúst 2015

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Stórsöngvarinn Geir Ólafson er fjörutíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Geir eða Ice blue eins og hann er oft kallaður, hefur gefið út nokkrar sólóplötur og plötur með hljómsveit sinni Furstunum, sem samanstendur af tónlistarmönnum í eldri kantinum og er eins konar stórsveit. Hrönn Svansdótir…

Afmælisbörn 13. ágúst 2015

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fjögur talsins í dag: Norðfirðingurinn Einar Ágúst Víðisson tónlistarmaður á fjörutíu og tveggja ára afmæli. Einar Ágúst var í hljómsveitum á yngri árum á heimaslóðum s.s. Kannsky, Fiskilykt og Ozon áður en hann gekk til liðs við Selfyssingana í Skítamóral og varð þjóðþekktur söngvari. Síðan hefur hann verið í ýmsum skammlífum hljómsveitum…

Jazz- og blúshátíð á Blómstrandi dögum

Blús-sveit Jonna Ólafs (Pelican) ásamt Halldóri Bragasyni (Vinir Dóra) verður aðal númer Jazz- og blúshátíðar Hveragerðis þann 14. ágúst næstkomandi. Jonna og félaga þarf vart að kynna enda landsþekktir og margverðlaunaðir blúsarar þar á ferð. Beebee and the Bluebirds koma einnig fram en þar eru á ferðinni ungir og upprennandi tónlistarmenn. Vigdís Ásgeirsdóttir ásamt jazzhljómsveitinni…

Afmælisbörn 12. ágúst 2015

Glatkistan hefur þrjú tónlistartengd afmælisbörn á skrá sinni í dag: Fyrsta skal nefna Halldóru Geirharðsdóttur (Dóru Wonder) leik- og tónlistarkonu en eins og margir muna var hún söngkona og saxófónleikari hljómsveitarinnar Risaeðlunnar eða Reptile eins og hún kallaðist á erlendri grundu. Sú sveit gaf út nokkrar plötur en söng hennar má einnig heyra á plötum…

Afmælisbörn 11. ágúst 2015

Afmælisbörn úr fórum Glatkistunnar eru fjögur talsins að þessu sinni: Bragi Ólafsson bassaleikari og rithöfundur er fimmtíu og þriggja ára. Upphaf ferils Braga á tónlistarsviðinu miðast við pönkið en hann var bassaleikari Purrks Pillnikk og síðan nokkurra náskyldra hljómsveita s.s. Pakk, Stuðventla, Brainer, Amen, Bacchus og P.P. djöfuls ég, áður en hann gekk til liðs við…

Afmælisbörn 10. ágúst 2015

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Nikulás Róbertsson hljómborðsleikari frá Vopnafirði er sextíu og tveggja ára gamall. Nikulás lék á sínum tíma með mörgum af vinsælustu hljómsveitunum og má þar nefna sveitir eins og Dínamít, Dögg, Fjörefni, Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar, Paradís, Gneista og Hljómsveit Róberts Nikulássonar, föður Nikulásar. Ólafur Elíasson píanóleikari er fjörutíu…

Afmælisbörn 9. ágúst 2015

Afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins að þessu sinni en ekkert þeirra er á lífi: Sigurður Birkis óperusöngvari átti afmæli á þessum degi. Sigurður (1893-1960) var tenórsöngvari sem menntaði sig í list sinni í Danmörku og Ítalíu en sneri heim að því loknu og vann hér mikið brautryðjendastarf, stofnaði fjölda kirkjukóra, kenndi söng og gegndi fyrstur…

Afmælisbörn 8. ágúst 2015

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á lista Glatkistunnar að þessu sinni: Sigrún Hjálmtýsdóttir eða bara Diddú á stórafmæli á þessum degi en hún er hvorki meira né minna er sextug. Diddu vakti fyrst athygli með Spilverki þjóðanna og Brunaliðinu en síðan varð sólóferillinn öðru yfirsterkara. Hún hefur sungið í fjölmörgum óperuuppfærslum og tónleikum af ýmsu…

Afmælisbörn 7. ágúst 2015

Í dag koma tvö afmælisbörn við sögu Glatkistunnar: Rannveig Jóhannsdóttir er sextíu og sex ára gömul en margir hinna eldri muna eftir henni frá fyrstu árum Sjónvarpsins en hún sá þá um Stundina okkar ásamt hrafninum Krumma. Reyndar kom einnig út lítil plata með þeim Rannveigu og Krumma. Rannveig var lítið áberandi eftir þetta sjónvarpsævintýri…

Afmælisbörn 6. ágúst 2015

Þrjú afmælisbörn í tónlistargeiranum líta dagsins ljós að þessu sinni: Jóhann Helgason er sextíu og sex ára í dag. Jóhann er einn okkar fremsti lagahöfundur og söngvari og á ógrynni laga sem allir þekkja, meðal þeirra má nefna Söknuður, Seinna meir, Take your time og Karen svo fáein dæmi séu nefnd. Jóhann hefur starfað með…

Afmælisbörn 5. ágúst 2015

Tónlistartengdu afmælisbörnin eru fjögur talsins á þessum degi: Haukur Heiðar Ingólfsson píanóleikari er sjötíu og þriggja ára gamall. Haukur Heiðar hefur gefið út fjöldann allan af plötum þar sem hann leikur oftast instrumental lög í félagi við aðra, sem hvarvetna hafa fengið góða dóma. Haukur Heiðar var lengi þekktastur fyrir að vera undirleikari Ómars Ragnarssonar…

Afmælisbörn 3. ágúst 2015

Eitt afmælisbarn tengt íslenskri tónlist er á skrá í dag: Bjarki Sveinbjörnsson doktor í tónvísindum er sextíu og tveggja ára. Bjarki starfaði fyrrum sem tónmenntakennari en eftir að hann lauk doktorsnámi sínu 1998 um tónlist á Íslandi á 20. öld með áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90, hefur hann mestmegnis starfað…

Afmælisbörn 1. ágúst 2015

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Fyrst skal nefna sjálfan Steina í Dúmbó, Skagamanninn Sigurstein Harald Hákonarson söngvara en hann er sextíu og átta ára gamall. Sigursteinn er auðvitað þekktastur fyrir framlag sitt með Dúmbó, lög eins og Glaumbæ og Angelíu þekkja allir en einnig var Sigursteinn í Sönghópnum Sólarmegin sem starfaði…

Afmælisbörn 31. júlí 2015

Glatkistan hefur tvær tónlistarkonur á skrá sinni á þessum degi, þær eru nöfnur: Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari er sjötug í dag. Rut nam sína tónlist fyrst hér heima en síðan í Svíþjóð og Belgíu. Hún hefur starfað sem konsertmeistari m.a. með Karmmersveit Reykjavíkur en hefur einnig starfað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Pólýfónkórnum og með Bachsveitinni í Skálholti svo…

Afmælisbörn 28. júlí 2015

Í dag eru á skrá Glatkistunnar tvö tónlistartengd afmælisbörn: Söngkonan Birgitta Haukdal frá Húsavík er þrjátíu og sex ára á þessum degi. Birgitta hafði sungið í sýningum á Hótel Íslandi þegar hún gerðist söngkona Írafárs haustið 1999 og sló þar heldur betur í gegn. Hún varð síðar fulltrúi Íslands í úrslitum Eurovision keppninnar 2002, hefur…

Afmælisbörn 27. júlí 2015

Afmælisbörn dagsins í tónlistargeiranum eru tvö að þessu sinni: Keflvíkingurinn Baldur Þórir Guðmundsson er fimmtíu og eins árs. Baldur (sonur Rúnars Júl. og Maríu Baldursdóttur) lék á hljómborð og ýmis önnur hljóðfæri með hljómsveitum á unglingsárum sínum s.s. Box, Kjarnorkublúsurunum, CTV og Pandóru en sneri sér síðar í auknum mæli að upptökufræðum enda var fjölskyldufyrirtækið…

Afmælisbörn 26. júlí 2015

Tvö afmælisbörn eru á listanum í dag hjá Glatkistunni: Sigríður (María) Beinteinsdóttir söngkona er fimmtíu og þriggja ára gömul í dag. Hún vakti fyrst athygli fyrir sönghæfileika sína með HLH flokknum og með hljómsveitinni Kikk en varð með tímanum ein af ástsælustu söngkonum landsins, einkum í kjölfar þess að hún tók þátt fyrir hönd Íslands…

Afmælisbörn 25. júlí 2015

Í dag eru afmælisbörnin þrjú í Glatkistunni: Þorsteinn Konráð Ólafsson raftónlistarmaður, sem gengur undir nafninu Prins Valium í tónlistarsköpun sinni, er fertugur í dag. Prins Valium hefur komið við sögu á mörgum safnplötum í rafgeiranum sem og splitplötum en hann hefur einnig gefið út plötur sjálfur síðan 2006. Hann var einnig í hljómsveitinni Semen, sem…

Afmælisbörn 24. júlí 2015

Afmælisbörn Glatkistunnar eru að þessu sinni tvö talsins: Rangæingurinn Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona er fimmtíu og fjögurra ára gömul í dag. Hún nam fyrst píanóleik og söng í heimabyggð en síðan í Reykjavík, á Ítalíu og Bretlandseyjum, hún starfaði um tíma á Ítalíu en mestmegnis hér heima þar sem hún hefur t.a.m. sungið ýmis óperuhlutverk.…

Afmælisbörn 23. júlí 2015

Í dag er einn tónlistarmaður á afmælislista Glatkistunnar: Sá heitir Jóhann (Jón) Þórisson og á fimmtíu og níu ára afmæli á þessum degi. Jóhann lék á bassa í nokkrum hljómsveitum á áttunda áratug liðinnar aldar og má nefna sveitir eins og Dögg, Fjörefni, Helþró, Dínamít og Paradís en hann mun hafa haft stuttan stans í…

Afmælisbörn 22. júlí 2015

Eitt afmælisbarn kemur við sögu Glatkistunnar að þessu sinni: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson tónlistarmaður er sextugur á þessum annars ágæta degi. Hann starfrækir útgáfufyrirtækið Dimmu sem hann stofnaði ásamt Önnu Pálínu Árnadóttur eiginkonu sinni (d. 2004), en þau gáfu út fjölda platna saman og í sitt hvoru lagi undir merkinu. Aðalsteinn hefur einnig unnið mikið með…

Afmælisbörn 21. júlí 2015

Í dag eru afmælisbörn íslensks tónlistarlífs fjögur talsins samkvæmt skrá Glatkistunnar: Steinar Berg (Ísleifsson) er sextíu og þriggja ára. Steinar var lengstum hljómplötuútgefandi, starfrækti Steina í áratugi og síðar Steinsnar. Hann hefur einnig verið virkur tónlistarmaður hin síðari ár, leikið á gítar og sungið með hljómsveitum eins og Fírunum og Grasösnum, sem hefur gefið út…

Ríó tríó [2] (1965-2011)

Ríó tríó á eina lengstu ferilssögu íslenskrar dægurlagasögu og þó sú saga hafi ekki verið alveg samfleytt spannar hún tæplega hálfa öld og um tuttugu og fimm plötur sem selst hafa í mörgum tugum þúsunda eintaka. Samstarfið hófst sem þjóðlagatríó, þróaðist um tíma í popp með þjóðlagaívafi, jafnvel með áherslu á jólatónlist um tíma en…

Ríó tríó [2] – Efni á plötum

Ríó tríó – [ep] Útgefandi: Hljómplötuútgáfan Útgáfunúmer: HÚ 003 Ár: 1968 1. Sagan um upptrekkta karlinn 2. Vina mín 3. Sumarnótt 4. Jón Pétursson Flytjendur: Helgi Pétursson – söngur og kontrabassi Halldór Fannar – söngur og gítar Ólafur Þórðarson – söngur og gítar [engar upplýsingar er að finna um aðra flytjendur] Ríó tríó – [ep]…

Júníus Meyvant gefur út stuttskífu

Vestmannaeyingurinn Unnar Gísli Sigurmundsson stimplaði sig rækilega inn á íslenska tónlistarlandakortið þegar hann gaf út smáskífuna „Color Decay“ vorið 2014. Unnar Gísla þekkja margir landsmenn undir listamannsnafninu Júníus Meyvant. Það er óhætt að segja að þegar Júníus steig fram á sjónarsviðið hafi hann komið til vits og ára og augljóst að tónlist hans hafi fengið…

Afmælisbörn 18. júlí 2015

Afmælisbörn dagsins í íslensku tónlistarlífi eru þrjú talsins á skrá Glatkistunnar en þau eru öll látin: Fyrstan skal nefna Fritz (von) Weisshappel píanóleikara. Hann var Austurríkismaður, fæddur 1908, og kom hingað til lands 1928. Fritz starfaði lengstum sem undirleikari bæði hjá einsöngvurum og kórum, t.a.m. starfaði hann sem undirleikari Karlakórs Reykjavíkur í áratugi og lék…

Afmælisbörn 17. júlí 2015

Í dag eru þrjú afmælisbörn tengd íslenskri tónlist á lista Glatkistunnar, þau eru eftirfarandi: Erdna (Ragnheiður) Varðardóttir söngkona er fjörutíu og eins árs gömul í dag. Hún hefur einkum sérhæft sig í trúarlegri og gospeltónlist, sungið til að mynda með Gospelkór Fíladelfíu en einnig hefur komið út jólaplata með henni. Einar (Einarsson) Markan baritónsöngvari (f.…

Afmælisbörn 16. júlí 2015

Þrjú afmælisbörn koma við sögu Glatkistunnar í dag: Trommuleikarinn og Stuðmaðurinn Ásgeir Óskarsson er 62 ára. Hljómsveitalisti trymbilsins er líklega með þeim lengri í bransanum en Ásgeir hafði leikið með mörgum bítla- og hippasveitum áður en að Stuðmannaævintýrinu kom, þar má nefna Scream, Fjörefni, Terso, Arfa, Trix, Andrew, Menninguna, Apple, Paradís, Pelican og Eik. Í seinni…

Afmælisbörn 14. júlí 2015

Glatkistan hefur í fórum sínum upplýsingar um eitt afmælisbarn úr tónlistargeiranum: Engel (Gagga) Lund (1900-96) hefði átt afmæli á þessum degi, hún var dönsk en fædd hér á landi svo hún hafði alltaf taugar hingað. Hún varð þekkt þjóðlagasöngkona, starfaði víða um heim og lagði alltaf áherslu á íslensk þjóðlög, sem hún lagði sig sérstaklega…

Afmælisbörn 13. júlí 2015

Að þessu sinni eru þrjú tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Stórsöngvarinn Sigurður Johnny Þórðarson (Siggi Johnny) er sjötíu og fimm ára í dag. Siggi var upp á sitt besta á blómaskeiði rokksins á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, söng þá með ýmsum sveitum eins og hljómsveitum Svavars Gests, Björns R. Einarssonar og José Riba, auk KK-sextett…

Afmælisbörn 12. júlí 2015

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Ríó-liðinn góðkunni Ágúst Atlason er sextíu og fimm ára í dag en hann er eins og allir vita einn af þeim sem skipuðu Ríó tríó, sem gaf út fjölda platna á árum áður. Ágúst hafði verið í Komplex, Næturgölum og Nútímabörnum áður en hann gekk…