
Rósa Ingólfsdóttir
Tónlistartengdu afmælisbörnin eru fjögur talsins á þessum degi:
Haukur Heiðar Ingólfsson píanóleikari er sjötíu og þriggja ára gamall. Haukur Heiðar hefur gefið út fjöldann allan af plötum þar sem hann leikur oftast instrumental lög í félagi við aðra, sem hvarvetna hafa fengið góða dóma. Haukur Heiðar var lengi þekktastur fyrir að vera undirleikari Ómars Ragnarssonar á skemmtunum en hann starfrækti einnig eigin hljómsveit á sínum tíma, HH kvintett.
Rósa Ingólfsdóttir er sextíu og átta ára gömul í dag. Rósu þekkja margir síðan hún var sjónvarpsþula í Ríkisútvarpinu en áður starfaði hún sem tónlistarkona, var ein af fyrstu kventrúbadorum landsins og skemmti með söng og gítarleik, hún söng einnig með hljómsveitum um tíma s.s. Orion og Sóló. Rósa er menntuð leikkona og myndlistakona og var um þriggja áratuga skeið aðal teiknari Ríkissjónvarpssins. Hún hefur gefið út þrjár sólóplötur og sungið sem gestur á fjölmörgum öðrum plötum.
Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi) er þrjátíu og átta ára. Söng Sveppa er víða að finna á plötum, einkum tengdar börnum en hann hefur aukinheldur sungið á fjölmörgum plötum sem innihalda tónlist úr leikhúsi og kvikmyndum, auk jólaplatna. Sveppi gaf ennfremur út barnaplötu í samstarfi við Vilhelm Anton Jónsson (Villa naglbít) fyrir nokkrum árum.
Grétar Ingimarsson trommuleikari Facon frá Bíldudal hefði einnig átt afmæli á þessum degi en hann lést 1990. Grétar (fæddur 1942) kemur því við sögu í laginu Ég er frjáls sem margir þekkja en hann hafði einnig áður verið í bílddælsku hljómsveitinni Kvartettinn og Kristján.