Afmælisbörn 7. ágúst 2015

Rannveig og Krummi2

Rannveig Jóhannsdóttir

Í dag koma tvö afmælisbörn við sögu Glatkistunnar:

Rannveig Jóhannsdóttir er sextíu og sex ára gömul en margir hinna eldri muna eftir henni frá fyrstu árum Sjónvarpsins en hún sá þá um Stundina okkar ásamt hrafninum Krumma. Reyndar kom einnig út lítil plata með þeim Rannveigu og Krumma. Rannveig var lítið áberandi eftir þetta sjónvarpsævintýri en birtist reyndar löngu síðar aftur í Ríkissjónvarpinu með morgunsjónvarp fyrir börn.

Skúli Gestsson bassaleikari Diktu á einnig afmæli í dag en hann er þrjátíu og þriggja ára gamall. Skúli, sem reyndar leikur bæði á bassa og hljómborð, hefur starfað með Diktu síðan sveitin var stofnuð 1997 og tók þátt í tvennum Músíktilraunum með sveitinni áður en fyrsta platan kom út. Síðan hafa komið út fimm plötur með sveitinni.