Þremill (1975-76)

Þjóðlagatríóið Þremill starfaði í nokkra mánuði 1975 og 76 og flutti blöndu af þjóðlögum og frumsömu efni. Sverrir Guðjónsson, Sæmundur Grétar Haraldsson og Kjuregej Alexandra skipuðu tríóið, öll sungu þau og léku á ásláttarhljóðfæri en Sverrir og Sæmundur léku einnig á gítara. Þremill var stofnaður haustið 1975 og kom þónokkuð oft fram á þeim tíma…

Þrek (1983-85)

Hljómsveitin Þrek var starfandi í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar, sveitin var ekki áberandi í skemmtanalífinu en mun hafa notið nokkurra vinsælda á Vesturlandi þaðan sem tveir meðlimir hennar voru ættaðir. Þrek var stofnuð í upphafi ársins 1983 og voru meðlimir hennar þá Halldór Erlendsson gítarleikari, Kristján Óskarsson hljómborðsleikari (Upplyfting o.fl.), Gústaf Guðmundsson…

Þras (1983)

Hljómsveitin Þras starfaði á Ísafirði 1983 og átti þá efni á safnsnældunni Ísfizkar nýbylgjugrúbbur (dauðar og lifandi) sem kom út þá um haustið á vegum Ísafjörður überalles, útgáfufyrirtækis Sigurjóns Kjartanssonar, síðar Tvíhöfða o.m.fl.. Sigurjón mun hafa verið einn meðlima Þrass en engar upplýsingar er að finna um aðra meðlimi sveitarinnar, líftíma hennar eða annað.

Þórunn Franz – Efni á plötum

Ragnar Bjarnason og hljómsveit hans – Ragnar syngur lög eftir Þórunni Franz [45 rpm] Útgefandi: SG-hljómplötur Útgáfunúmer: SG 519 Ár: 1967 1. Mamma 2. Ég sakna þín 3. Föðurbæn sjómannssins 4. Ísland Flytjendur: Ragnar Bjarnason – söngur Jón Sigurðsson – gítar Guðmundur Steingrímsson – trommur Árni Scheving – bassi Grettir Björnsson – kordovox Rósa Ingólfsdóttir…

Þórunn Frans (1931-2018)

Þórunn Frans lét nokkuð að sér kveða í dægurlagasamkeppnum fyrri ára en varð síðar öllu þekktari á öðrum vettvangi. (Sigríður) Þórunn Fransdóttir fæddist 1931 í Reykjavík hvar hún bjó alla tíð. Hún vakti athygli fyrir liprar lagasmíðar á árum árum og vann fyrst til verðlauna vorið 1955 fyrir lagið Bergmál sem sigraði í flokki gömlu…

Þrír á palli [1] (1987-88)

Kvartettinn Þrír á palli var starfræktur 1987 og var eins konar útibú frá Frökkunum, meðlimir sveitarinnar voru Björgvin Gíslason gítarleikari, Þorleifur Guðjónsson bassaleikari, Gunnar Erlingsson trommuleikari og Ásgeir Óskarsson gítarleikari og söngvari en sá síðast nefndi er öllu þekktari sem trommari. Stundum söng Ólafía Hrönn með þeim félögum en Ásgeir var ekki í þeirri útgáfu…

Þríhornið (1992)

Feðgarnir Guðmundur Steingrímsson og Steingrímur Guðmundsson ásamt Áskeli Mássyni starfræktu slagverkstríóið Þríhornið sumarið 1992 og léku þeir m.a. á Listahátíð í Reykjavík. Þríhornið starfaði einungis þetta eina sumar.

Þristar (1978-81)

Fáar heimildir er að hafa um gömludansahljómsveitina Þrista en samkvæmt auglýsingum fjölmiðla var sveitin starfandi a.m.k. á árunum 1978-81 en höfuðvígi hennar var þá Lindarbær. Meðlimir Þrista á þeim árum voru Gunnar Páll Ingólfsson söngvari og gítarleikari, Haukur Sighvatsson trommuleikari og Þorvaldur Jónsson harmonikkuleikari. Ein heimild segir Þorvald hafa verið í sveit með þessu nafni…

Þriðja hæðin [1] (1983)

Þriðja hæðin (3. hæðin) var hljómsveit sem starfaði í nokkra mánuði árið 1983. Sveitin var stofnuð í upphafi árs og voru meðlimir sveitarinnar forsprakkinn Rúnar Þór Pétursson söngvari og gítarleikari, Þórarinn Gíslason hljómborðsleikari, Jakob Viðar Guðmundsson bassaleikari og Birgir Kristinsson trommuleikari. Tekið var sérstaklega fram í kynningu á sveitinni að hún væri vímulaus. Halldór Fannar…

Þriðja eyrað (1991)

Hljómsveitin Þriðja eyrað starfaði í skamman tíma vorið 1991. Engar upplýsingar er hins vegar að finna um hverjir skipuðu sveitina, hugsanlega tónlistarfólk í yngri kantinum. Glatkistan óskar eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.

Afmælisbörn 14. júlí 2017

Glatkistan hefur í fórum sínum upplýsingar um eitt afmælisbarn úr tónlistargeiranum: Engel (Gagga) Lund (1900-96) hefði átt afmæli á þessum degi, hún var dönsk en fædd hér á landi svo hún hafði alltaf taugar hingað. Hún varð þekkt þjóðlagasöngkona, starfaði víða um heim og lagði alltaf áherslu á íslensk þjóðlög, sem hún lagði sig sérstaklega…

Afmælisbörn 13. júlí 2017

Að þessu sinni eru fimm tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Stórsöngvarinn Sigurður Johnny Þórðarson (Siggi Johnny) hefði orðið sjötíu og sjö ára í dag en hann lést á síðasta ári. Siggi var upp á sitt besta á blómaskeiði rokksins á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, söng þá með ýmsum sveitum eins og hljómsveitum Svavars…

Afmælisbörn 12. júlí 2017

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Ríó-liðinn góðkunni Ágúst Atlason er sextíu og sjö ára gamall í dag en hann er eins og allir vita einn af þeim sem skipuðu Ríó tríó, sem gaf út fjölda platna á árum áður. Ágúst hafði verið í Komplex, Næturgölum og Nútímabörnum áður en hann…

Afmælisbörn 11. júlí 2017

Fjögur afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: Söngvarinn og hljómborðsleikarinn Grétar (Þorgeir) Örvarsson er fimmtíu og átta ára. Grétar sló í gegn með hljómsveit sinni Stjórninni þegar hann og Sigga Beinteins sungu framlag Íslands í Eurovision keppninni 1990. Í kjölfarið gaf Stjórnin út nokkrar plötur sem allar nutu vinsælda en einnig hefur Grétar starfað…

Afmælisbörn 10. júlí 2017

Fjögur afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar á þessum degi: Helgi Björnsson söngvari og leikari er fimmtíu og níu ára í dag. Nafn hans varð fyrst þekkt þegar hann gekk til liðs við ísfirsku hljómsveitina Grafík en áður hafði hann verið í hljómsveitinni Berb. Í kjölfarið hófst farsæll söngferill Helga og eftir að hafa…

Afmælisbörn 9. júlí 2017

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar fjögur talsins og eru eftirfarandi: Birgir Hrafnsson gítarleikari er sextíu og sex ára gamall í dag. Birgir hafði leikið með ýmsum hljómsveitum s.s. Pops áður en hann varð einn liðsmanna Ævintýris. Hann var síðar í Svanfríði, Change, Haukum og Celsius, og hafði jafnvel stuttan stans í sveitum eins og Hljómum,…

Afmælisbörn 8. júlí 2017

Í dag eru tvö afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Söngkonan og lagahöfundurinn Védís Hervör Árnadóttir er þrjátíu og fimm ára gömul. Védís vakti fyrst athygli fyrir söng sinn á Nemendamótum Verzló en hún hefur einnig gefið út tvær sólóplötur, 2001 og 07. Hún hefur einnig komið fram sem gestur á ýmsum útgefnum plötum og var ein…

Afmælisbörn 7. júlí 2017

Fjórir tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru á skrá Glatkistunnar: Aðalbjörn Tryggvason söngvari og gítarleikari Sólstafa er fertugur í dag og á stórafmæli dagsins, Sólstafir hefur starfað síðan 1995 og liggja vel á annan tug útgáfa eftir sveitina. Sólstafir er þó ekki eina sveitin sem Aðalbjörn starfar með því hann hefur einnig leikið með…

Afmælisbörn 6. júlí 2017

Fimm afmælisbörn í tónlistargeiranum hafa þennan afmælisdag samkvæmt kokkabókum Glatkistunnar: Magnús Kjartansson tónlistarmaður er sextíu og sex ára gamall. Hann sleit barnskónum í Keflavík og hóf þar tónlistarferil sinn en fáir hafa leikið með jafn mörgum þekktum hljómsveitum og Magnús. Svo nokkrar þeirra séu upp taldar skal nefna hér Hauka, Galdrakarla, Júdas, Óðmenn, Sléttuúlfana, Trúbrot,…

Afmælisbörn 5. júlí 2017

Hvorki fleiri né færri en sjö afmælisbörn er að finna í Glatkistunni í dag: Kristín Lilliendahl söngkona er sextíu og tveggja ára gömul í dag. Kristín vakti upphaflega athygli í hljómsveitinni Formúla ´71 en síðar var hún annar Söngfuglanna sem gaf út barnaplötu um miðjan áttunda áratuginn og lagið Ég skal mála allan heiminn elsku…

Afmælisbörn 4. júlí 2017

Glatkistan hefur fjögur afmælisbörn á skrá sinni á þessum degi: Fyrstan skal nefna rokkarann og Eurovision-farann Eirík Hauksson ern hann er fimmtíu og átta ára gamall. Eiríkur hefur hin síðustu ár starfað í Noregi og verið þar í hljómsveitum s.s. Artch en hér heima gerði hann garðinn frægan með ýmsum hljómsveitum, Start, Drýsill, Wanted, Þeyr,…

Þórir og grislingarnir (1997)

Þórir og grislingarnir störfuðu sumarið 1997 og léku djasstónlist í nokkur skipti opinberlega. Það var Þórir Baldursson Hammond-orgelleikari sem var fyrirliði sveitarinnar en aðrir meðlimir hennar voru Einar Valur Scheving trommuleikari, Róbert Þórhallsson bassaleikari, Jóel Pálsson saxófónleikari og Veigar Margeirsson trompet- og flygelhornleikari.

Þórscafé [tónlistartengdur staður] (1945-2003)

Veitinga- og skemmtistaðurinn Þórscafé (Þórskaffi) er meðal langlífustu og vinsælustu skemmtistöðum sem hér hafa starfað en saga hans spannaði ríflega hálfa öld. Þórscafé er fyrst nefndur í fjölmiðlum þess tíma haustið 1945 en þá var staðurinn opnaður sem veitingastaður. Það er svo ári síðar sem hann er auglýstur sem skemmtistaður einnig og við þau tímamót…

Þórhallur Árnason (1891-1976)

Þórhallur Árnason sellóleikari var einn frumherja í íslensku tónlistarlífi á síðustu öld og átti einnig þátt í eflingu félagsstarfs og réttinda tónlistarmanna. Þórhallur fæddist í Njarðvíkum 1891 en ólst að mestu upp á Hjalteyri. Hann fór tvítugur til Þýskalands til náms í trompetleik en endaði í Danmörku og lærði þar á selló. Hann var þó…

Þórgunnur nakin (1997-98)

Hljómsveitin Þórgunnur nakin frá Selfossi (og Hólmavík) vakti á sínum tíma fremur litla athygli nema e.t.v. fyrir nafnið sem þótti frumlegt. Sveitin tók þátt í Músíktilraunum vorið 1997 og spilaði þar eins konar hart rokk í ætt við það dauðarokk sem tilheyrði samnefndri senu í kringum 1990. Meðlimir Þórgunnar nakinnar í Músíktilraunum voru Gunnlaugur Pétursson…

Þórður Kristleifsson (1893-1997)

Þórður Kristleifsson var mikill tónlistarfrömuður og átti þátt í að kynna Íslendingum tónlist með ýmsum hætti. Þórður fæddist (1893) og ólst upp í Borgarfirðinum, ekki liggur fyrir um tónlistaráhuga hans í æsku en hann mun einhverja tilsögn hafa fengið í píanóleik. Hann fékkst að mestu við landbúnað í sveitinni sem ungur maður og það er…

Söngsystur [3] (1967)

Systurnar Þórdís og Hanna María Karlsdóttir skemmtu með söng víða um landið árið 1967, stundum við undirleik hljómsveita en oftar við eigin undirleik á gítar. Þær skemmtu m.a. á héraðsmótum framsóknarmanna um sumarið og komu svo fram í sjónvarpsþætti um haustið. Þær systur komu úr Keflavík og voru aðeins tuttugu og eins og átján ára…

Þórsmenn [3] (?)

Hljómsveit með þessu nafni var starfrækt á Þórshöfn á Langanesi á sjöunda eða áttunda áratug 20. aldarinnar, hvenær nákvæmlega liggur ekki fyrir. Engar upplýsingar er að finna um skipan hinnar langnesku Þórsmanna utan þess að Hilmar Arason saxófónleikari var meðal meðlima.

Þórsmenn [2] (1968-71)

Hljómsveitin Þórsmenn frá Stykkishólmi starfaði í nokkur ár og lék víða á Snæfellsnesinu, Borgarfirði og allt norður í Húnavatnssýslu. Meðlimir þessarar sveitar voru Lárus Pétursson söngvari og gítarleikari, Sigurður Grétar Hjörleifsson bassaleikari, Hafsteinn Sigurðsson söngvari, trommu- og orgelleikari og Ólafur Geir Þorvarðarson saxófón- og trommuleikari. Sveitin var stofnuð sumarið 1968 og starfaði að minnsta kosti…

Þórsmenn [1] (1969-71)

Þórsmenn var hljómsveit starfandi á höfuðborgarsvæðinu um 1970 og mun hafa leikið mestmegnis á Keflavíkurflugvelli en einnig á skemmtistöðum eins og Þórscafé. Meðlimir sveitarinnar voru leiðtoginn Þór Nielsen söngvari og gítarleikari, Ólafur Benediktsson trommuleikari, Sigmundur Júlíusson [?] og Guðmann Kristbergsson bassaleikari. Helga Sigþórsdóttir og Kalla [?] Karlsdóttir sungu ennfremur með sveitinni sem gestasöngvarar í einhver…

Afmælisbörn 3. júlí 2017

Í dag eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá hjá Glatkistunni: Lýður Ægisson tónlistarmaður er sextíu og níu ára gamall á þessum degi. Lýður, sem er bróðir Gylfa Ægissonar tónlistarmanns og faðir Þorsteins Lýðssonar sem einnig hefur gefið út efni, hefur sent frá sér nokkrar sólóplötur í gegnum tíðina, þá fyrstu 1985. Lýður starfaði á þeim…

Afmælisbörn 2. júlí 2017

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Gunnar Bjarni Ragnarsson tónlistarmaður er fjörutíu og átta ára. Margir muna eftir honum sem gítarleikara og lagahöfundi í hljómsveitinni Jet Black Joe sem fór mikinn upp úr 1990 en hann hefur einnig starfrækt fjöldann allan af hljómsveitum frá unga aldri, þar má nefna sveitir eins…

Afmælisbörn 1. júlí 2017

Þrjú afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag: Fyrstan skal nefna Hreim Örn Heimisson söngvara, eða bara Hreim í Landi og sonum en hann er þrjátíu og níu ára. Hreimur söng og spilaði með nokkrum hljómsveitum áður en Land og synir komu til sögunnar, þar má nefna Föroingabandið, Sexappeal, Eins og hinir, Richter og nú…

Afmælisbörn 30. júní 2017

Á þessum síðasta degi júnímánaðar koma tvö afmælisbörn við sögu: Hjörtur Howser píanó- og hljómborðsleikari er fimmtíu og sex ára gamall. Hann hefur komið mjög víða við í íslensku tónlistarlífi, fyrst með sveitum eins og Tívolí og Fermata um 1980 en síðan með Bogart, Dúndrinu, Gömmum, Grafík, Hljómsveit Björgvins Halldórssonar, Partýtertunni, Stormsveitinni og að ógleymdri…

Afmælisbörn 29. júní 2017

Afmælisbörn Glatkistunnar eru þrjú að þessu sinni: Bryndís Sunna Valdimarsdóttir er fjörutíu og átta ára í dag. Bryndís lærði söng og píanóleik, hefur sungið inn á nokkrar plötur og verið í hljómsveitum eins og 8villt og Doríu, og sönghópum eins og Afródítum og Söngsystrum en líka sungið í sýningum eins og Bítlaárunum, sem sett var…

Afmælisbörn 28. júní 2017

Tvö afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Barnastjarnan og söngkonan Katla María (Gróa) Hausmann er fjörutíu og átta ára gömul í dag. Margir muna eftir henni í kringum 1980 en um það leyti komu út fjórar plötur með henni. Lög eins og Lítill Mexíkani, Ég fæ jólagjöf, Rúdolf og Prúðuleikararnir urðu feikilega vinsæl…

Afmælisbörn 27. júní 2017

Afmælisbörnin í dag eru þrjú talsins og eru þessi: Hallberg Daði Hallbergsson er tuttugu og sjö ára í dag en hann var gítarleikari hljómsveitarinnar Jakobínurínu sem sigraði Músíktilraunir vorið 2005. Jakobínarína fór víða um lönd eftir sigurinn en lítið hefur farið fyrir Hallberg eftir að sveitin hætti störfum í ársbyrjun 2008. Hann hefur þó starfrækt…

Afmælisbörn 26. júní 2017

Eitt afmælisbarn kemur við sögu í dag og það er í þekktari kantinum: Stefán Hilmarsson söngvari Sálarinnar hans Jóns míns á afmæli í dag en hann er fimmtíu og eins árs gamall. Stefán kom fyrst fram með hljómsveitum eins og Bjargvættinum Laufeyju, Bóas, Tvöfalda bítinu og Reðr áður en hann steig á stokk með Sniglabandinu…

Afmælisbörn 25. júní 2017

Í dag er eitt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: María (Einarsdóttir) Markan óperusöngkona átti afmæli á þessum degi en hún lést 1995, níræð að aldri. María (f. 1905) var af miklu söngfólki komin og söng t.a.m. oft með systkinum sínum bæði opinberlega sem og á plötum. Hún lagði stund á söngnám í Þýskalandi og starfaði þar…

Afmælisbörn 24. júní 2017

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar í dag: Gunnar (Bergmann) Ragnarsson á tuttugu og átta ára afmæli á þessum degi. Gunnar er söngvari hljómsveitarinnar Grísalappalísu sem hefur vakið athygli undanfarið fyrir tónlist sína en margir muna einnig eftir Gunnari sem söngvara í Jakobínurínu sem sigraði Músíktilraunir 2005. Sú sveit hugði á landvinninga, fékk plötusamning erlendis…

Þórbergur Þórðarson – Efni á plötum

Þórbergur Þórðarson – Þórbergur Þórðarson les úr eigin verkum vol. I Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: KALP 38 Ár: 1970 1. Brúðkaupsveizlan þríheilaga (Upphafið á bókinni Steinarnir tala) 2. Vélstjórinn frá Aberdeen 3. Upphafningin mikla (Byrjun á bókinni Íslenzkur aðall) Flytjendur: Þórbergur Þórðarson – upplestur     Þórbergur Þórðarson – les úr eigin verkum vol. II Útgefandi:…

Þórbergur Þórðarson (1888-1974)

Rithöfundurinn Þórbergur Þórðarson er ekki beinlínis tengdur íslenskri tónlistarsögu en þrjár plötur hafa þó verið gefnar út með upplestri hans og öðru efni. Þórbergur fæddist árið 1888 á Hala í Suðursveit og kenndi sig alltaf við þann bæ, hann fluttist til Reykjavíkur um unglingsaldur og vakti fljótlega athygli fyrir greinaskrif og ljóð, og síðar ævisögulegar…

Þórarinn Sigríðarson (?)

Þórarinn Sigríðarson var meðal flytjenda á safnplötunni Sándkurl sem kom út 1994. Hann syngur þar eigið lag og hefur Eyþór Arnalds og Hrafn Thoroddsen sér til aðstoðar. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um þennan flytjanda og væru þær þ.a.l. vel þegnar.

Þórarinn Óskarsson (1930-2024)

Þórarinn Óskarsson básúnuleikari var einn af fyrstu djassleikurum íslenskrar tónlistarsögu og var lengi meðal þeirra fremstu en hann lék með fjölda danshljómsveita auk annarra sveita. Þórarinn fæddist norður í Húnavatnssýslu 1930, ólst upp að mestu leyti á Blönduósi og nærsveitum en flutti suður til Reykjavíkur þar sem eiginlegur tónlistarferill hans hófst. Þórarinn nam sín básúnufræði…

Þórarinn Jónsson – Efni á plötum

Þórarinn Jónsson tónskáld: 1900 – 1974 Heildarútgáfa einsöngslaga og karlakórverka – ýmsir (x2) Útgefandi: Smekkleysa Útgáfunúmer: SMK29 Ár: 2004 1. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Ave Maria 2. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Herzeleid 3. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Hjarðljóð 4. Sigrún Hjálmtýsdóttir – Sólskríkjan 5. Ingveldur Ýr Jónsdóttir – Püppchens Wiegenlied 6. Ingveldur Ýr Jónsdóttir – In questa tomba…

Þórarinn Jónsson (1900-74)

Þórarinn Jónsson er e.t.v. ekki meðal allra þekktustu tónskálda hér á landi en ástæðan fyrir því er væntanlega að hann starfaði lungann úr starfsævi sinni í Þýskalandi, og skóp sér þar nafn sem og í Bandaríkjunum. Þórarin má telja meðal fyrstu tónskálda Íslendinga. Þórarinn fæddist aldamótaárið 1900 í Mjóafirði og framan af var fátt sem…

Þórarinn Guðmundsson – Efni á plötum

Hljómsveit Þórarins Guðmundssonar [78 sn.] Útgefandi: Fálkinn Útgáfunúmer: HMV X 3621 Ár: 1930 1. Íslenzk þjóðlög 2. Íslenzk þjóðlög Flytjendur: Þórarinn Guðmundsson – [?] [engar upplýsingar um aðra flytjendur] Lög eftir Þórarin Guðmundsson sungin og leikin – ýmsir Útgefandi: Frímúrarareglan á Íslandi Útgáfunúmer: FRM 001 Ár: 1978 1. Sigurður Björnsson – Þú ert 2. Guðmundur…

Þórarinn Guðmundsson (1896-1979)

Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari og tónskáld hefur verið kallaður faðir íslenskra fiðluleikara en hann var fyrstur Íslendinga til að fullnema sig á hljóðfærið á sínum tíma. Hann kenndi jafnframt mörgum af þeim fiðluleikurum sem síðar léku með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þórarinn fæddist vorið 1896 á Akranesi. Fiðla var til á æskuheimilinu en fáir spiluðu á slíkt hljóðfæri…

Þór og Mjölnir (1993)

Hljómsveitin Þór og Mjölnir [Mjöllnir?] var starfandi sumarið 1993 og lék þá á Óháðu listahátíðinni „Ólétt ´93“. Engar frekari upplýsingar er þó að finna um þessa hljómsveit.