Afmælisbörn 10. júlí 2017

Helgi Björnsson

Fjögur afmælisbörn í tónlistargeiranum koma við sögu Glatkistunnar á þessum degi:

Helgi Björnsson söngvari og leikari er fimmtíu og níu ára í dag. Nafn hans varð fyrst þekkt þegar hann gekk til liðs við ísfirsku hljómsveitina Grafík en áður hafði hann verið í hljómsveitinni Berb. Í kjölfarið hófst farsæll söngferill Helga og eftir að hafa verið í Næturgölunum frá Venus, stofnaði hann ásamt öðrum Síðan skein sól, sem síðar varð SSSól. Helgi hefur leikið á sviði og í kvikmyndum og sungið á plötum tengt því en einnig hefur hann gefið út sólóefni, gefið út dúettaplötu með Bergþóri Pálssyni, plötur með Reiðmönnum vindanna og sungið með Astral sextett, svo fátt eitt sé nefnt.

Stefán Karl Stefánsson leikari er fjörutíu og tveggja ára á þessum degi. Þrátt fyrir að vera fyrst og fremst leikari er söng hans einnig að finna á nokkrum plötum, einkum tengdum Latabæ en eins og margir vita hefur hann gegnt lykilhlutverki í þeim bæ. Hann hefur sungið sem gestur á nokkrum plötum, á plötum sem geyma tónlist úr leikritum og kvikmyndum en gaf einnig út grínplötuna Í túrrett og moll árið 2009.

Guðmundur Haukur Jónsson söngvari og hljómborðsleikari er sjötugur og er því stórafmælisbarn dagsins. Hann hefur leikið og sungið með ýmsum þekktum og óþekktum hljómsveitum í gegnum tíðina og má þar nefna sveitir eins og Blues company, Uncle John‘s band, Alfa beta, Ástandið, Dúmbó sextett, Næturgalarnir, Roof tops, Tónatríóið og Karma. Guðmundur Haukur hefur einnig gefið út sólóplötur.

Þá hefði Þorvaldur Friðriksson harmonikkuleikari frá Eskifirði ennfremur átt afmæli á þessum degi en hann lést 1996. Þorvaldur (f. 1923) þótti einnig liðtækur söngvari og söng í kórum eystra en hann samdi einnig lög sem sum hver rötuðu inn á plötu, Lögin hans Valda, sem fjölskylda hans gaf út að honum látnum.