Pólland (1981)

Hljómsveitin Pólland lék á skemmtistöðum á höfuðborgarsvæðinu sumarið 1981, einkum í Hafnarfirði, sveitin gæti því hafa starfað í Firðinum. Engar upplýsingar er að finna um Pólland, starfstíma hennar eða meðlimi nema að Hilmar Sverrisson [hljómborðsleikari?] var einn þeirra.

Pólar (1965)

Litlar sögur fara af bítlahljómsveitinni Pólum sem starfaði á Siglufirði 1965 og e.t.v. lengur. Meðlimir þessarar sveitar munu hafa verið Theódór Júlíusson (síðar leikari) sem lék á trommur, Sigurður Örn Baldvinsson gítarleikari, Magnús Guðbrandsson sem einnig lék á gítar og Guðbrandur Sveinn Gústafsson saxófónleikari. Ekki liggur fyrir hver þeirra félaga söng. Allar frekari upplýsingar um…

Pónik [2] (1961-)

Saga hljómsveitarinnar Pónik (hinnar síðari) er með lengri hljómsveitasögum hérlendis og þótt sveitin hafi nú ekki komið fram í nokkur ár er ekki enn hægt að gefa út dánarvottorð á hana, tilurð hennar spannar um hálfa öld. Ýmsar heimildir hafa komið fram um hvenær Pónik var stofnuð og nokkrar þeirra gefa upp ártalið 1964, það…

Pónik [1] (1962-63)

Hljómsveitin Pónik frá Akureyri starfaði í um eitt ár og var skipuð ungum tónlistarmönnum. Hún var stundum nefnd Pónik og Bjarki. Meðlimir Pónik voru Garðar Karlsson gítarleikari [?], Örn Bjarnason gítarleikari [?], Kristján Gunnarsson orgelleikari [?], Jörundur Guðmundsson trommuleikari (síðar skemmtikraftur og eftirherma) og Bjarki Tryggvason söngvari og bassaleikari [?] (síðar kenndur við Póló og…

Póló (1964-69)

Hljómsveitin Póló frá Akureyri var með vinsælustu hljómsveitum norðan heiða um árabil þótt ekki hafi hún skákað veldi Hljómsveitar Ingimars Eydal. Póló sem lék bítlatónlist jafnt á við gömlu dansana, var stofnuð vorið 1964 og mun hafa leikið fyrst opinberlega í Mývatnssveit, meðlimir sveitarinnar voru þá Pálmi Stefánsson harmonikku- og bassaleikari, Gunnar Tryggvason gítarleikari, Steingrímur…

Pónik [2] – Efni á plötum

Pónik og Einar [ep] Útgefandi: U.F. hljómplötur Útgáfunúmer: P-150e STEF003 Ár: 1967 1. Jón á líkbörunum 2. Ævisaga 3. Í gær og í dag 4. Ég veit Flytjendur: [engar upplýsingar um flytjendur]   Pónik og Einar [ep] Útgefandi: U.F. útgáfan Útgáfunúmer: STEF 003 Ár: 1968 1. Herra minn trúr 2. Ástfanginn 3. Viltu dansa 4. Léttur í lundu Flytjendur: Einar Júlíusson – söngur…

Afmælisbörn 7. ágúst 2016

Í dag koma tvö afmælisbörn við sögu Glatkistunnar: Rannveig Jóhannsdóttir er sextíu og sjö ára gömul en margir hinna eldri muna eftir henni frá fyrstu árum Sjónvarpsins en hún sá þá um Stundina okkar ásamt hrafninum Krumma. Reyndar kom einnig út lítil plata með þeim Rannveigu og Krumma. Rannveig var lítið áberandi eftir þetta sjónvarpsævintýri…

Afmælisbörn 6. ágúst 2016

Þrjú afmælisbörn í tónlistargeiranum líta dagsins ljós að þessu sinni: Jóhann Helgason er sextíu og sjö ára í dag. Jóhann er einn okkar fremsti lagahöfundur og söngvari og á ógrynni laga sem allir þekkja, meðal þeirra má nefna Söknuður, Seinna meir, Take your time og Karen svo fáein dæmi séu nefnd. Jóhann hefur starfað með…

Afmælisbörn 5. ágúst 2016

Tónlistartengdu afmælisbörnin eru fimm talsins á þessum degi: Haukur Heiðar Ingólfsson píanóleikari er sjötíu og fjögurra ára gamall. Haukur Heiðar hefur gefið út fjöldann allan af plötum þar sem hann leikur oftast instrumental lög í félagi við aðra, sem hvarvetna hafa fengið góða dóma. Haukur Heiðar var lengi þekktastur fyrir að vera undirleikari Ómars Ragnarssonar…

Afmælisbörn 3. ágúst 2016

Eitt afmælisbarn tengt íslenskri tónlist er á skrá í dag: Bjarki Sveinbjörnsson doktor í tónvísindum er sextíu og þriggja ára. Bjarki starfaði fyrrum sem tónmenntakennari en eftir að hann lauk doktorsnámi sínu 1998 um tónlist á Íslandi á 20. öld með áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90, hefur hann mestmegnis starfað…

Poppvélin (1998-99)

Poppvélin var skammlíf ballsveit skipuð þungavigtarmönnum úr íslensku popplífi. Sveitin mun hafa verið stofnuð haustið 1998 og voru meðlimir hennar frá upphafi þeir Kristinn Gallagher bassaleikari, Jónas Sigurðsson trommuleikari og söngvari, Matthías Matthíasson söngvari og gítarleikari, Pétur Örn Guðmundsson hljómborðsleikari og söngvari og Tómas Tómasson gítarleikari og söngvari. Poppvélin starfaði einungis í fáeina mánuði og…

Poppland [1] (1994-95)

Hljómsveitin Poppland starfaði í nokkra mánuði um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Reyndar hafði Poppland verið sett saman til að fylgja eftir plötu Björns Jörundar Friðbjörnssonar, BJF fyrir jólin 1994 en sveitin fékk þó ekki nafn fyrr en í upphafi árs 1995 þegar hún var formlega stofnuð. Meðlimir sveitarinnar voru auk Björns Jörundar sem söng,…

Poppblaðið [fjölmiðill] (1977)

Poppblaðið var skammlíft tímarit um popptónlist og kom út í fáein skipti snemma árs 1977. Það var Gunnar Salvarsson sem var ritstjóri, eigandi og ábyrgðarmaður Poppblaðsins sem áætlað var að kæmi út á þriggja vikna fresti í fimm þúsund eintökum, hann hafði þá ritað um popptónlist í Tímanum um tíma. Útgáfu Poppblaðsins var hætt eftir…

Popdogs (1995-97)

Popdogs var rokksveit í harðari kantinum, starfandi allavega á árunum 1995-97. Sveitin var að öllum líkindum af höfuðborgarsvæðinu en þar spilaði hún mest. Ekki er að finna neinar áreiðanlegar upplýsingar um meðlimi Popdogs en þeir gengu undir nöfnunum Jói, Eyjó, Svanberg og Raggi. Allar nánari upplýsingar um þessa sveit eru vel þegnar.

Possibillies – Efni á plötum

Possibillies – Mát Útgefandi: Possiplötur Útgáfunúmer: PLP 001 Ár: 1985 1. “Móðurást” 2. Óskipulögð eyðimörk 3. Skák 4. Bælt er bóndans gras 5. Ágústkvöld 6. Fyrir rímið (jive) 7. Nú syng ég rokk (twist) 8. “Móðurást” freestyle 9. Lagið um bílinn (hringdans) Flytjendur: Jón Ólafsson – söngur, raddir, flygill og hljómborð Stefán Hjörleifsson – gítarar…

Possibillies (1985-90)

Possibillies var dúett þeirra fóstbræðra Jóns Ólafssonar og Stefáns Hjörleifssonar en þeir hafa leikið saman í ógrynni hljómsveita frá unglingsárum, og eru reyndar enn í samstarfi í hljómsveitinni Nýdanskri. Þótt upphaf Possibillies miðist við árið 1985 þegar fyrri plata þeirra kom út höfðu þeir Jón og Stefán starfað saman tveir og skapað tónlist allt frá…

Portó (1981-85)

Danshljómsveitin Portó var starfrækt á Akureyri á árunum 1981 til 1985 að minnsta kosti. Sveitin sem var stofnuð haustið 1981 lék einkum á heimaslóðum norðanlands og voru meðlimir hennar Erla Stefánsdóttir söngkona, Guðmundur Meldal trommuleikari, Frosti Meldal bassaleikari, Fróði Oddsson gítarleikari, Björgvin Baldursson söngvari og gítarleikari og Sverrir Meldal hljómborðsleikari. Ekki er kunnugt um mannabreytingar…

Pops [1] – Efni á plötum

Flosi Ólafsson og Pops – Það er svo geggjað að geta hneggjað / Ó, ljúfa líf [ep] Útgefandi: SG-hljómplötur Útgáfunúmer: SG 549 Ár: 1970 1. Það er svo geggjað að geta hneggjað 2. Ó ljúfa líf Flytjendur:  Flosi Ólafsson – söngur Pops: – Sævar Árnason – gítar – Ómar Óskarsson – gítar – Pétur W.…

Pops [1] (1966-70)

Hljómsveitin Pops var fyrsta hljómsveit Péturs Kristjánssonar en hún starfaði um fimm ára skeið á tímum bítla-, hippa- og proggrokks. Tíð mannaskipti einkenndu Pops. Pops var stofnuð í Laugalækjarskóla vorið 1966 og var eins konar skólahljómsveit þar en Pétur var þá aðeins fjórtán ára og nýfermdur, aðrir meðlimir sveitarinnar sem voru á svipuðu reki voru…

Afmælisbörn 1. ágúst 2016

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Fyrstan skal nefna sjálfan Steina í Dúmbó, Skagamanninn Sigurstein Harald Hákonarson söngvara en hann er sextíu og níu ára gamall. Sigursteinn er auðvitað þekktastur fyrir framlag sitt með Dúmbó, lög eins og Glaumbæ og Angelíu þekkja allir en einnig var Sigursteinn í Sönghópnum Sólarmegin sem starfaði…