Sem (?)

Hljómsveit sem bar nafnið Sem starfaði á Bíldudal á áttunda áratug síðustu aldar. Engar heimildir finnast um nöfn meðlima sveitarinnar – Jón Ástvaldur Hall Jónsson var einn þeirra, en þeir voru að líkindum mestmegnis kennarar við grunnskólann í plássinu. Allar frekari upplýsingar um Sem væru vel þegnar.

Selma Hrönn Maríudóttir – Efni á plötum

Selma Hrönn Maríudóttir – Einkamál Útgefandi: Tónaflóð Útgáfunúmer: TF001 Ár: 1990 1. Praying on an evening star 2. Einkamál 3. Í huga mér 4. Saltfiskrokk 5. Vonbrigði í G-dúr 6. Einn í húmi nætur 7. Rúna Rokk 8. I heard it said 9. Á þjóðhátíð ég fer 10. Hugleiðing Flytjendur: Jóhannes Eiðsson – söngur Sigurður…

Selma Hrönn Maríudóttir (1969-)

Nafn Selmu Hrannar Maríudóttur kemur víða við sögu íslenskrar menningarsögu, þótt hún sé í seinni tíð þekktust fyrir margverðlaunaðar barnabækur og vefgerð tengt því, á hún að baki tónlistarferil sem telur eina sólóplötu og aðra dúettaplötu auk þess sem hún hefur leikið inn á og átt efni á nokkrum plötum. Selma Hrönn (f. 1969) á…

Self realization in the experience of sensual love (1997)

Aðalsteinn Guðmundsson raftónlistarmaður, sem skapað hefur tónlist undir ýmsum aukasjálfum í gegnum tíðina s.s. Plastik, Yagya, Sanasol o.fl., kallaði sig Self realization in the experience of sensual love og átti efni á safnplötunni Tún en hún kom út vorið 1997, hún hafði að geyma tónleikaupptökur úr Norðurkjallara Menntaskólans við Hamrahlíð en Aðalsteinn var þá nemandi…

Seinar express (1982)

Seinar express var samstarfsverkefni Einars Arnar Benediktssonar (Purrkur Pillnikk, Sykurmolarnir o.fl.) og Torfa Rafns [?] orgelleikara en dúóið kom fram í örfá skipti haustið 1982. Ekki varð framhald á samstarfi þeirra.

Segulbandið [1] (1987-91)

Á Sauðárkróki var starfandi unglingahljómsveit undir nafninu Segulbandið árið 1987. Meðlimir sveitarinnar voru Fjölnir Ásbjörnsson söngvari (síðar prestur), Kristinn Kristjánsson bassaleikari, Kristján Kristjánsson trommuleikari, Óskar Örn Óskarsson gítarleikari, Arnbjörn Ólafsson hljómborðsleikari og Björgvin Reynisson gítarleikari. Ekki liggur fyrir hversu lengi Segulbandið starfaði en sveit með þessu nafni lék norðanlands 1990 og aftur 1991, að öllum…

Afmælisbörn 12. mars 2017

Á þessum degi er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar: Hjördís Elín Lárusdóttir (Dísella) söngkona, hljómborðs- og trompetleikari er fertug í dag og fagnar því stórum tímamótum. Hún er ein Þriggja systra, dóttir Lárusar Sveinssonar trompetleikara og hefur komið víða við sögu í tónleikahaldi og plötuútgáfu. Hún gaf t.d. út plötuna Solo noi árið 2007,…

Afmælisbörn 11. mars 2017

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni Þuríður Pálsdóttir óperusöngkona og ein þekktasta söngkona íslenskrar tónlistarsögu er níræð í dag. Þuríður er dóttir Páls Ísólfssonar, lærði söng hér heima og síðan á Ítalíu og þar reis hennar söngferill einna hæst þótt hún hefði alltaf sungið hér heima líka. Fjölmargar plötur komu út…

Afmælisbörn 10. mars 2017

Á þessum annars ágæta degi koma fyrir fjögur afmælisbörn á lista Glatkistunnar Hanna Valdís Guðmundsdóttir söngkona var ein af fyrstu barnastjörnunum og enn í dag heyrist reglulega lag hennar um Línu Langsokk, auk annarra. Hún var einnig ein af stúlkunum sem prýddi Sólskinskórinn og söng lagið Sól sól skín á mig, sem margir þekkja. Hanna…

Afmælisbörn 9. mars 2017

Tvö afmælisbörn úr tónlistargeiranum eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni Símon H. Ívarsson gítarleikari og kórstjórnandi er sextíu og sex ára gamall. Hann er kunnur gítarleikari, nam gítarleik og tónlistarkennarafræði hér heima auk þess að fara í framhaldsnám í Austurríki. Þrjár plötur hafa komið út með gítarleik hans, sú síðasta 2004. Símon var formaður…

Afmælisbörn 8. mars 2017

Tvö tónlistarmenn eiga afmæli í dag og eru í gagnabanka Glatkistunnar Karl Hermannsson söngvari úr Keflavík er sjötíu og tveggja ára gamall á þessum degi en hann fæddist 1945. Fyrsta hljómsveit hans mun líklega hafa verið Skuggar en einnig var hann söngvari um tíma í Hljómum. Söngferil sinn lagði Karl að mestu á hilluna en…

Blúshátíð í Reykjavík 2017

Blúshátíð í Reykjavík (Reykjavik blues festival) er framundan en hún fer fram í aðdraganda páskanna, 8.-13. apríl nk. Að vanda verða þrennir stórtónleikar á Reykjavík Hilton Nordica í dymbilviku, þriðjudags- miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Það verður dúndrandi stemning á Klúbbi Blúshátíðar á hótelinu eftir alla stórtónleikana. Þar getur allt gerst. Blúshátíð í Reykjavík hefst laugardaginn 8. apríl…

Afmælisbörn 6. mars 2017

Fjögur tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi Árni Guðmundsson (Árni úr Eyjum) f. 1913 átti þennan afmælisdag, hann var fyrst og fremst texta- og ljóðaskáld og samdi marga kunna texta við lög Oddgeirs Kristjánssonar. Þar má nefna lögin Góða nótt, Vor við sæinn, Ágústnótt, Blítt og létt og Bjartar vonir vakna. Árni…

Lame dudes og Strákarnir hans Sævars á Café Rosenberg

Blúsfélag Reykjavíkur efnir til Blúskvölds mánudagskvöldið 6. mars klukkan 21, á Café Rosenberg. Tvær sveitir, Lame dudes og Strákarnir hans Sævars munu þá troða upp. Hljómsveitin Lame Dudes fagnar 10 ára starfsafmæli á þessu ári en meðlimir sveitarinnar sem munu spila á blúskvöldinu eru: Hannes Birgir Hjálmarsson söngvari og gítarleikari, Snorri Björn Arnarson gítarleikari, Gauti…

Afmælisbörn 5. mars 2017

Tvö afmælisbörn eru skráð að þessu sinni í afmælisdagbók Glatkistunnar Þórunn Björnsdóttir kórstjórnandi og tónmenntakennari er sextíu og þriggja ára gömul í dag en hún er að sjálfsögðu kunnust fyrir störf sín sem stjórnandi Skólakórs Kársnesskóla til margra áratuga. Hún stýrði ennfremur Vallagerðisbræðrum sem var afsprengi kórsins en hefur aukinheldur komið að ýmsum félagsmálum tengt…

Afmælisbörn 3. mars 2017

Þrír tónlistarmenn koma við afmælissögu Glatkistunnar í dag Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari er fimmtíu og fimm ára en hann nam söng hér heima, í Þýskalandi og Sviss, og starfaði erlendis þar til hann sneri heim til Íslands. Hér heima hefur hann lítið fengist við söng síðustu árin, starfar sem yfirtollvörður en hefur reyndar kennt við Söngskóla…

Afmælisbörn 2. mars 2017

Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar. Fyrst skal nefna Jón Bjarna Pétursson gítarleikara hljómsveitarinnar Diktu en hann kemur m.a. við sögu í hinu þekkta lagi Thank you, sem ómaði um allt land 2009 og 10. Jón Bjarni er þrjátíu og fimm ára gamall í dag. Einnig á bassaleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, Guðmundur…

Um 600 textar bætast við Glatkistuna

Heilmikið efni bættist í Glatkistuna nú í vikunni þegar um sex hundruð íslenskir lagatextar voru settir inn á vefsíðuna. Um er að ræða texta og ljóð úr ýmsum áttum og ýmsum tímum, allt frá barnagælum til jólasálma og auðvitað allt þar á milli en mestmegnis eru þetta dægurlagatextar. Hér er um að ræða hreina viðbót við…

Afmælisbörn 1. mars 2017

Í dag eru fjögur tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar: Árni Johnsen Vestmannaeyingur og fyrrverandi alþingismaður er sjötíu og þriggja ára gamall í dag. Hann var framarlega í þjóðlagasöngvaravakningunni um og upp úr 1970, m.a. í félagsskapnum Vikivaka og kom oft fram á samkomum því tengt. Hann var einnig hluti af Eyjaliðinu sem gaf út plötu…