Þusl – Efni á plötum

Þusl – Ekki dugir ófreistað! Útgefandi: Geimsteinn Útgáfunúmer: GSCD 166 Ár: 1996 1. Vísir að gleði 2. Sól 3. Kastalinn 4. Bikarinn 5. Ljósvakinn 6. Svei mér þá 7. 1997 8. Engisprettan 9. Café flug 10. Búri 11. Blómagarðurinn 12. Myrkur Flytjendur: Arnór Brynjar Vilbergsson – hammond, hljómborð, rhodes, kassagítar og raddir Bjarni Rafn Garðarsson…

Þuríður Sigurðardóttir (1949-)

Söngkonan ástsæla Þuríður (Svala) Sigurðardóttir var með vinsælustu söngkonum landsins á sínum tíma þótt hún syngi ekki beinlínis hvern stórsmellinn á fætur öðrum. Hún er af miklu tónlistarfólki komin og hafa þau tengsl án efa átt sinn þátt í að hún fetaði söngstíginn en í blaðaviðtali hefur hún sagt að það hefði aldrei verið ætlunin,…

Þuríður Pálsdóttir – Efni á plötum

Þuríður Pálsdóttir [78 sn.] Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: IM 29 Ár: 1953 1. Blítt er undir björkunum 2. Hrosshár í strengjum 3. Sofðu unga ástin mín Flytjendur: Þuríður Pálsdóttir – söngur Robert A. Ottósson – píanó   Óperettan Í álögum (Spellbound: An operette in four acts) – úr óperettu Útgefandi: Íslenzkir tónar Útgáfunúmer: EXP IM…

Þuríður Pálsdóttir (1927-2022)

Allir þekkja óperusöngkonuna Þuríði Pálsdóttur en hún var meðal þeirra allra fremstu hérlendis og söng í ótal mörgum óperuuppfærslum og við önnur tækifæri hérlendis. Þuríður var meðal frumherja kvensöngvara hérlendis, kenndi söng í áratugi, stuðlaði að varðveislu tónlistar s.s. í formi barnagæla og starfaði að ýmsum öðrum málum tengdum íslenskri tónlist, þá er jólaplata hennar…

Þuríður formaður og hásetarnir (1995-)

Hljómsveit hefur starfað á Akureyri a.m.k. frá árinu 1995 undir nafninu Þuríður formaður og hásetarnir. Ekki liggur fyrir hverjir hafa skipað þessa sveit önnur en þau Reynir Helgi og Þuríður Jóna Schiöth en sú síðarnefnda ku vera formaðurinn. Líklega er um eins konar harmonikkuband að ræða. Engar upplýsingar er heldur að finna um hvort sveitin…

Þuríður Baxter – Efni á plötum

Þuríður Baxter – Mitt er þitt Útgefandi: Þuríður Baxter Útgáfunúmer: BXA 001 Ár: 1995 1. Þrjár stemmur 2. Ég lít í anda liðna tíð 3. Tondeleyó 4. Maður hefur nú 5. Minning um Maríu A 6. Júkalí 7. Nannas Lied 8. Vi er venner 9. Ich spür’ in mir 10. Wien, du Stedt meiner Träume…

Þuríður Baxter (1945-2012)

Þuríður Baxter mezzósópran hafði verið þekkt fyrir ýmislegt annað en söng þegar hún birtist með fyrri plötu sína árið 1995 en hún hafði fram að því verið kunnust fyrir þýðingar sínar. Þuríður fæddist 1945 í Reykjavík, lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og menntaði sig m.a. í frönsku, íslensku og bókmenntafræði áður en hún hóf…

Þungavigtarbandið (?)

Hljómsveit starfandi á Akureyri, líkast til á áttunda áratug liðinnar aldar, gekk undir nafninu Þungavigtarbandið. Meðlimir Þungavigtarbandsins voru Mikael Jónsson trommuleikari (og hugsanlega söngvari), Árni Ingimundarson, Ingvi Rafn Jóhannsson og Hannes Arason, ekki liggur fyrir á hvaða hljóðfæri síðast töldu þremenningarnir léku.

Þusl (1993-96)

Keflvíska hljómsveitin Þusl starfaði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja um miðjan tíunda áratug síðustu aldar. Sögu sveitarinnar lauk um leið og skólagöngu meðlima hennar. Sveitin var líklega stofnuð haustið 1993 og það haust sigruðu þeir félagar hljómsveitakeppni sem haldin var í FS. Engar upplýsingar er að finna um meðlimaskipan í upphafi en einhverjar mannabreytingar urðu á Þusli…

Þuríður Sigurðardóttir – Efni á plötum

Lúdó sextett, Stefán Jónsson, Þuríður Sigurðardóttir [ep] Útgefandi: SG-hljómplötur Útgáfunúmer: SG 513 Ár: 1966 1. Er nokkuð eðlilegra 2. Ég bíð einn 3. Laus og liðugur 4. Elskaðu mig Flytjendur: Stefán Jónsson – söngur Þuríður Sigurðardóttir – söngur Karl Möller – píanó Baldur Már Arngrímsson – gítar og raddir Þorleifur Gíslason – tenór saxófónn Hans…

Spilverk þjóðanna – Efni á plötum

Spilverk þjóðanna – Spilverk þjóðanna Útgefandi: Egg Útgáfunúmer: Egg 0014 Ár: 1975 1. Muse 2. Plant no trees 3. Lazy Daisy 4. Lagið sem hefði átt að vera leikið 5. Of my life 6. Going home 7. The lemon song 8. Snowman 9. Icelandic cowboy 10. L’escalier 11. Sixpense only 12. Muse II 13. Old…

Afmælisbörn 22. ágúst 2017

Þrjú tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Stórsöngvarinn frá Bíldudal, Jón Kr. (Kristján) Ólafsson er sjötíu og sjö ára. Jón vakti fyrst landsathygli með bílddælsku hljómsveitinni Facon en áður hafði hann reyndar sungið með Kvartettnum og Kristjáni, og Hljómsveit Jóns Ástvaldar Hall. Eftir að sögu Facons lauk starfaði Jón um tíma í Reykjavík,…

Afmælisbörn 21. ágúst 2017

Glatkistan hefur upplýsingar um tvö tónlistartengd afmælisbörn þennan daginn: Theódór Júlíusson leikari á sextíu og átta ára afmæli í dag. Flestir tengja Theódór við leiklist og t.a.m. muna margir eftir honum í kvikmyndunum Mýrinni og Hrútum en hann hefur einnig sungið inn á margar plötur tengdar tónlist úr leikritum s.s. Evu Lúnu, Söngvaseið, Línu langsokk…

Afmælisbörn 20. ágúst 2017

Tvö afmælisbörn koma við sögu á þessum degi: Einar Júlíusson söngvari er sjötíu og þriggja ára. Einar söng með ýmsum hljómsveitum s.s. Saxon kvintett, H.J. kvartettnum og Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar áður en hann gerðist fyrsti söngvari Hljóma frá Keflavík. Síðar átti hann eftir að syngja með Pónik, t.d. lagið Léttur í lundu, og fleiri sveitum…

Afmælisbörn 19. ágúst 2017

Eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Jóhann Ólafur Haraldsson tónskáld hefði átt afmæli þennan dag en hann lést árið 1966 þá sextíu og fjögurra ára gamall. Jóhann, sem var fæddur 1902, ólst upp og bjó alla sína tíð við Eyjafjörðinn, hann var að mestu sjálfmenntaður í tónlist og varð organisti við a.m.k.…

Afmælisbörn 18. ágúst 2017

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni: Þórður Árnason gítarleikari oftast kenndur við hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, er sextíu og fimm ára í dag. Nokkur ár eru liðin síðan hann yfirgaf sveitina en hann hefur í gegnum tíðina leikið með fjömörgum hljómsveitum, þeirra á meðal má nefna Frugg, Sókrates, Rifsberju, Brunaliðið, Litla matjurtagarðinn, Stóla og…

STEFnumót við söngvaskáld á Menningarnótt

Söngvaskáld flytja eigin tónlist í bakgarði STEFs á Menningarnótt milli kl. 15 og 17. STEF býður alla velkomna á notalegt STEFnumót við fjögur söngvaskáld í bakgarðinum að Laufásvegi 40. Þeir sem koma fram eru allt landsþekktir höfundar og flytjendur, en það eru þau; Jón Ólafsson, Hildur, Valdimar og Ragga Gísla. Munu þau hvert í sínu…

Afmælisbörn 17. ágúst 2017

Í dag er eitt afmælisbarn í tónlistargeiranum skráð hjá Glatkistunni: Skagamaðurinn Jón Trausti Hervarsson er sjötíu og tveggja ár í dag en hann er kunnastur fyrir framlag sitt með hljómsveitinni Dúmbó sextett og Steina frá Akranesi sem starfaði í um tvo áratugi en hann var einn þeirra sem var allan tímann í sveitinni. Jón Trausti…

Afmælisbörn 16. ágúst 2017

Þrjú afmælisbörn eru á skrá í dag: Sigurður (Pétur) Bragason baritónsöngvari er sextíu þriggja ára. Sigurður nam söng og tónfræði frá Tónlistarskólanum í Reykjavík en stundaði síðan framhaldsnám á Ítalíu og Þýskalandi. Hann hefur sungið ýmis óperuhlutverk heima og erlendis, gefið út sjö plötur með söng sínum, auk þess að stýra nokkrum kórum s.s. Kór…

Afmælisbörn 15. ágúst 2017

Aðeins eitt afmælisbarn er á skrá Glatkistunnar á þessum degi: Þingeyingurinn Baldur Ragnarsson tónlistarmaður og áhugaleikari er þrjátíu og þriggja ára gamall í dag. Þótt flestir tengi Baldur við gítarleik og söng í  hljómsveitinni Skálmöld hefur hann komið við í miklum fjölda sveita af ýmsu tagi, sem vakið hafa athygli með plötum sínum. Þar má…

Þrumugosar (1986-87)

Hljómsveitin Þrumugosar starfaði a.m.k. einn vetur, 1986-87, í Framhaldsskólanum að Laugum en nafn sveitarinnar var fengið úr bókunum um teiknimyndahetjuna Viggó viðutan. Þrumugosar voru Bjarni Ómar Haraldsson gítarleikari, Pétur Davíðsson söngvari og gítarleikari, Helgi Guðbergsson bassaleikari, Valgeir Sigurðsson hljómborðsleikari og Ragnar Z Guðjónsson trommuleikari. Þrumugosar kepptu í hljómsveitakeppni sem Ríkisútvarpið á Akureyri stóð fyrir vorið…

Þróun (1971)

Upplýsingar óskast um hljómsveitina Þróun sem var starfandi haustið 1971 og var skipuð meðlimum á unglingsaldri. Fyrir liggur að Þorsteinn Magnússon gítarleikari (Eik Þeyr o.fl.) var í þessari sveit en engar upplýsingar er að hafa um aðra.

Þukl [2] (1991)

Hljómsveitin Þukl var starfandi sumarið 1991 og var um verslunarmannahelgina það árið skráð til leiks í hljómsveitakeppni sem haldin var á útihátíð í Húnaveri. Engar upplýsingar er að finna um þessa sveit, meðlimi hennar o.s.frv. og hvort hún mætti til leiks í Húnaveri. Þó er ekki útilokað að Þórður Bogason (Þrek o.fl.) hafi verið einn…

Þrælarnir (1981-82)

Hljómsveitin Þrælarnir starfaði í nokkra mánuði á árunum 1981 og 82. Sveitin var stofnuð sumarið 1981 og var meðlimaskipan hennar frá upphafi með þeim hætti að Halldór Bragason var söngvari og gítarleikari (Vinir Dóra o.fl.), Ríkharður Friðriksson gítar-, mandólín og þverflautuleikari (Fræbbblarnir, Snillingarnir o.fl.), Guðmundur Sigmarsson gítarleikari (C.o.t. o.fl.), Ólafur Friðrik Ægisson bassaleikari (Reflex o.fl.)…

Þrymur (1984)

Hljómsveitin Þrymur var eins konar skammlíft hliðarverkefni rekið samhliða hljómsveitinni Þrek en sveitirnar innihéldu sömu meðlimina sem voru Halldór Erlendsson gítarleikari, Þórður Guðmundsson bassaleikari, Pétur Einarsson trommuleikari, Kjartan Valdemarsson hljómborðsleikari og Þórður Bogason söngvari. Sveitin átti lag á safnplötunni SATT 1 sem gefin var út 1984.

Þrusk [2] (1995-96)

Hljómsveitin með þessu nafni lék á áramótadansleik á Blönduósi um áramótin 1995-96. Líkur eru á að sveitin hafi verið norðlensk en aðrar upplýsingar er ekki að finna um hana og óskast því sendar Glatkistunni.

Þrusk [1] (1993)

Hljómsveitin Þrusk starfaði sumarið 1993 og lék þá á rokktónlistarhátíð sem haldin var í Reykjavík. Engar upplýsingar er að hafa um meðlimi þessarar sveitar.

Þrumuvagninn – Efni á plötum

Tívolí / Þrumuvagninn – Rokk og ról; Þrumuvagninn [ep] Útgefandi: Steinar Útgáfunúmer: PLAT 1507 Ár: 1981 1. Syngdu með 2. Meira meira 3. Stórborgarablús Flytjendur: Eiður Örn Eiðsson – söngur Brynjólfur Stefánsson – bassi Einar Jónsson – gítar Ólafur Sigurðsson – trommur Þrumuvagninn – Þrumuvagninn Útgefandi: Steinar Útgáfunúmer: STLP 061 Ár: 1982 1. Þrumuvagninn 2.…

Þrumuvagninn (1981-82)

Sumir vilja meina að hljómsveitin Þrumuvagninn sé fyrsta þungarokksveit íslenskrar tónlistarsögu og líklega má færa nokkuð góð rök fyrir því. Tilurð Þrumuvagnsins er örlítið flókin en hún er í raun sama sveit og Tívolí sem hafði starfað í að minnsta kosti fimm ár við góðan orðstír og m.a.s. gefið út lag sem naut heilmikilla vinsælda…

Þrumurnar (1987)

Hljómsveitin Þrumurnar var skráð til leiks í hljómsveitakeppni sem haldin var á útihátíð í Húsafelli um verslunarmannhelgina 1987. Ekkert hefur spurst til Þrumanna eftir keppnina og væru allar upplýsingar varðandi þessa sveit vel þegnar og óskast sendar Glatkistunni.

Þungarokklingarnir (1992)

Heimildir eru af afar skornum skammti þegar kemur að unglingasveitinni Þungarokklingunum en hún starfaði vorið 1992 og lék þá á tónleikahátíð í Reykjavík. Allar tiltækar upplýsingar óskast um þessa sveit.

Afmælisbörn 14. ágúst 2017

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Stórsöngvarinn Geir Ólafson er fjörutíu og fjögurra ára gamall á þessum degi. Geir eða Ice blue eins og hann er oft kallaður, hefur gefið út nokkrar sólóplötur og plötur með hljómsveit sinni Furstunum, sem samanstendur af tónlistarmönnum í eldri kantinum og er eins konar stórsveit. Hrönn Svansdótir…

Afmælisbörn 13. ágúst 2017

Afmælisbörn Glatkistunnar eru fimm talsins í dag: Ingunn Gylfadóttir tónlistarkona er fjörutíu og átta ára gömul á þessum degi. Ingunn var aðeins þrettán ára gömul þegar plata með henni, Krakkar á krossgötum kom út en síðar vakti hún verulega athygli fyrir framlag sitt í undankeppnum Eurovision ásamt Tómasi Hermannssyni en þau gáfu út plötu saman…

Afmælisbörn 12. ágúst 2017

Glatkistan hefur þrjú tónlistartengd afmælisbörn á skrá sinni í dag: Fyrsta skal nefna Halldóru Geirharðsdóttur (Dóru Wonder) leik- og tónlistarkonu en eins og margir muna var hún söngkona og saxófónleikari hljómsveitarinnar Risaeðlunnar eða Reptile eins og hún kallaðist á erlendri grundu. Sú sveit gaf út nokkrar plötur en söng hennar má einnig heyra á plötum…

Afmælisbörn 11. ágúst 2017

Afmælisbörn í fórum Glatkistunnar eru fjögur talsins að þessu sinni: Bragi Ólafsson bassaleikari og rithöfundur er fimmtíu og fimm ára. Upphaf ferils Braga á tónlistarsviðinu miðast við pönkið en hann var bassaleikari Purrks Pillnikk og síðan nokkurra náskyldra hljómsveita s.s. Pakk, Stuðventla, Brainer, Amen, Bacchus og P.P. djöfuls ég, áður en hann gekk til liðs…

Afmælisbörn 10. ágúst 2017

Fimm afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag: Nikulás Róbertsson hljómborðsleikari frá Vopnafirði er sextíu og fjögurra ára gamall. Nikulás lék á sínum tíma með mörgum af vinsælustu hljómsveitunum og má þar nefna sveitir eins og Dínamít, Dögg, Fjörefni, Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar, Paradís, Gneista og Hljómsveit Róberts Nikulássonar, föður Nikulásar. Ólafur Elíasson píanóleikari er fimmtugur…

Afmælisbörn 9. ágúst 2017

Afmælisbörn dagsins eru þrjú talsins að þessu sinni en ekkert þeirra er á lífi: Sigurður Birkis óperusöngvari átti afmæli á þessum degi. Sigurður (1893-1960) var tenórsöngvari sem menntaði sig í list sinni í Danmörku og Ítalíu en sneri heim að því loknu og vann hér mikið brautryðjendastarf, stofnaði fjölda kirkjukóra, kenndi söng og gegndi fyrstur…

Afmælisbörn 8. ágúst 2017

Tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum eru á lista Glatkistunnar að þessu sinni: Sigrún Hjálmtýsdóttir eða bara Diddú á afmæli á þessum degi en hún er sextíu og tveggja ára gömul. Diddu vakti fyrst athygli með Spilverki þjóðanna og Brunaliðinu en síðan varð sólóferillinn öðru yfirsterkara. Hún hefur sungið í fjölmörgum óperuuppfærslum og tónleikum af ýmsu tagi,…

Afmælisbörn 7. ágúst 2017

Í dag koma tvö afmælisbörn við sögu Glatkistunnar: Rannveig Jóhannsdóttir er sextíu og átta ára gömul en margir hinna eldri muna eftir henni frá fyrstu árum Sjónvarpsins en hún sá þá um Stundina okkar ásamt hrafninum Krumma. Reyndar kom einnig út lítil plata með þeim Rannveigu og Krumma. Rannveig var lítið áberandi eftir þetta sjónvarpsævintýri…

Afmælisbörn 6. ágúst 2017

Þrjú afmælisbörn í tónlistargeiranum líta dagsins ljós að þessu sinni: Jóhann Helgason er sextíu og átta ára í dag. Jóhann er einn okkar fremsti lagahöfundur og söngvari og á ógrynni laga sem allir þekkja, meðal þeirra má nefna Söknuður, Seinna meir, Take your time og Karen svo fáein dæmi séu nefnd. Jóhann hefur starfað með…

Afmælisbörn 5. ágúst 2017

Tónlistartengdu afmælisbörnin eru fimm talsins á þessum degi: Haukur Heiðar Ingólfsson píanóleikari er sjötíu og fimm ára gamall. Haukur Heiðar hefur gefið út fjöldann allan af plötum þar sem hann leikur oftast instrumental lög í félagi við aðra, sem hvarvetna hafa fengið góða dóma. Haukur Heiðar var lengi þekktastur fyrir að vera undirleikari Ómars Ragnarssonar…

Afmælisbörn 3. ágúst 2017

Tvö afmælisbörn tengd íslenskri tónlist eru á skrá Glatkistunnar í dag: Bjarki Sveinbjörnsson doktor í tónvísindum er sextíu og fjögurra ára. Bjarki starfaði fyrrum sem tónmenntakennari en eftir að hann lauk doktorsnámi sínu 1998 um tónlist á Íslandi á 20. öld með áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90, hefur hann mestmegnis…

Afmælisbörn 1. ágúst 2017

Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni: Fyrstan skal nefna sjálfan Steina í Dúmbó, Skagamanninn Sigurstein Harald Hákonarson söngvara en hann er sjötugur í dag og á sannkallað stórafmæli. Sigursteinn er auðvitað þekktastur fyrir framlag sitt með Dúmbó, lög eins og Glaumbæ og Angelíu þekkja allir en einnig var Sigursteinn í Sönghópnum Sólarmegin…

Afmælisbörn 31. júlí 2017

Glatkistan hefur tvær tónlistarkonur á skrá sinni á þessum degi, þær eru nöfnur: Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari er sjötíu og tveggja ára í dag. Rut nam sína tónlist fyrst hér heima en síðan í Svíþjóð og Belgíu. Hún hefur starfað sem konsertmeistari m.a. með Karmmersveit Reykjavíkur en hefur einnig starfað í Sinfóníuhljómsveit Íslands, Pólýfónkórnum og með…

Afmælisbörn 29. júlí 2017

Þrír tónlistarmenn koma við sögu í afmælisdagbók Glatkistunnar að þessu sinni: Jón Gústafsson fyrrum tónlistar- og fjölmiðlamaður á fimmtíu og fjögurra ára afmæli í dag. Jón var þekktastur á níunda áratug síðust aldar sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi en hann sá um tónlistarþætti eins og Rokkarnir geta ekki þagnað og Popphólfið, hann lék einnig…

Þrír gæjar (1995)

Hljómsveitin Þrír gæjar var skipuð rokktónlistarmönnum í eldri kantinum með Garðar Guðmundsson söngvara (Rokkbræður, Gosar o.fl.) í fararbroddi. Ekki liggur fyrir hvort Garðar var einn hinna Þriggja gæja eða hvort um var að ræða tríó auk hans, alltént vantar upplýsingar um aðra meðlimi sveitarinnar sem starfaði árið 1995 og lék í nokkur skipti á dansstöðum…

Þrír á palli [2] (1999)

Engar upplýsingar er að finna um austfirsku þjóðlagasveitina Þrjá á palli en hún mun hafa starfað 1999. Allar upplýsingar um þessa sveit væru þ.a.l. vel þegnar.

Þrreyttirr þarrmarr (um 1995-2000)

Pönksveit sem bar heitið Þrreyttirr þarrmarr starfaði líklega um eða eftir miðjan tíunda áratug síðustu aldar, jafnvel nær aldamótunum. Litlar sem engar heimildir er að finna um sveitina en Einar Valur Bjarnason Maack gæti hafa verið gítarleikari í henni. Allar upplýsingar þ.a.l. má senda Glatkistunni.

Þrívídd (1986-88)

Ólafur Þórarinsson (Labbi í Glóru) starfrækti um tíma á níunda áratugnum hljómsveitina Þrívídd sem gerði út á sveitaböll á Suðurlandi en þar fór hann mikinn um það leyti, rak og var í sveitum eins og Kaktus og Karma einnig. Þrívídd var sett á laggirnar um vorið 1986 og í byrjun voru auk Labba sem lék…

Þríund [1] (1994-99)

Tríóið Þríund starfaði um árabil á Húsavík og lék á margs kyns skemmtunum og böllum nyrðra. Reyndar lék sveit með þessu nafni í nokkur skipti sunnan heiða á þessum en ekki er ljóst hvort um sömu sveit er að ræða. Það hlýtur þó að teljast líklegt. Meðlimir Þríundar voru bræðurnir Sigurður og Þórarinn Illugasyni gítar-…