Afmælisbörn 2. júlí 2023

Gunnar Bjarni Ragnarsson

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar að þessu sinni:

Gunnar Bjarni Ragnarsson tónlistarmaður er fimmtíu og fjögurra ára á þessum degi. Margir muna eftir honum sem gítarleikara og lagahöfundi í hljómsveitinni Jet Black Joe sem fór mikinn upp úr 1990 en hann hefur einnig starfrækt fjöldann allan af hljómsveitum frá unga aldri, þar má nefna sveitir eins og Jetz, Allaballar, Bleeding volcano, Boneyard, Mary Poppins, Nirvana, Bootlegs, Deep Black Zeppelin og FROG.

Unnsteinn Manúel Stefánsson forsprakki Retro Stefson er þrjátíu og þriggja ára gamall í dag. Unnsteinn hefur sent frá sér töluvert af efni sem sólóisti en hefur einnig verið í hljómsveitum eins og Borealis band, Fallegum mönnum og Rapp 101, sent frá sér sólóefni undir nafninu Uni Stefson, auk þess að hafa starfað með ýmsu tónlistarfólki s.s. Benna Hemm Hemm, Reykjavík!, Emmsjé Gauta, Hermigervli, Hjaltalín, Immo og FM Belfast.

Vissir þú að söngvarinn sem söng lagið Minning um mann með Logum var Ólafur Bachmann trommuleikari sveitarinnar en hann er faðir Jóhanns Bachmann trommuleikara Skítamórals?