Hljómsveitin Myrkvi sendir í dag frá sér plötuna Early warning en það er önnur breiðskífa sveitarinnar. Það eru þeir Magnús Thorlacius og Yngvi Holm sem skipa Myrkva en þeir félagar voru áður hluti af hljómsveitinni Vio sem sigraði Músíktilraunir vorið 2014 og var ári síðar tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem „bjartasta vonin“, efni plötunnar var að hluta til upphaflega hugsað fyrir þá sveit og byggir á útsetningum með fyrrum meðlimum hennar, Kára Guðmundssyni og Pál Cecil Sævarssyni.
Platan er ákveðið uppgjör við fortíðina og markar þáttaskil í tónlistarferlum kumpánanna. Týndu árin, almennt óráð og alhugur eru þeim hugleikin en hljóðheimur uppvaxtaráranna, sitt hvorum megin við aldamótin, lifnaði við gerð plötunnar. Nafn hennar, Early Warning eða Snemmbúin viðvörun, vísar í það sem kraumar undir yfirborðinu og gæti sprungið út með látum. Plötuumslögin eru málverk eftir Freydísi Halldórsdóttur.
Breiðskífan var tekin upp í stúdíói þeirra í Mosfellsdal, þar sem þeir hafa eytt drjúgum tíma síðastliðinn áratug. Tónlistin er gítardrifin, líkt og allt annað frá þeim drengjum, en hljóðheimurinn er orðinn heilsteyptari og þróaðri. Hún var fullunnin á löngum tíma er þeirra vandaðasta verk til þessa. Indístrákar sem eru vaxnir úr grasi en eru á vissan hátt ennþá sömu álfarnir.
Lög plötunnar voru samin á hinum gríðarlega krefjandi tímabili í líftíma hvers bands, þegar sæluvíman frá upphaflega árangrinum er horfin og menn þurfa að stíga aftur niður á jörðina. Meðal umfjöllunarefni plötunnar eru óvissa um framtíðina, sú vitfirring að elta jafn óáreiðanlegan draum, og yfirvofandi sundrun hins upphaflega bands. Einnig má finna lög um vináttu, gleðskap og að gleyma sér í góðum stundum, ásamt ádeilu um lífskapphlaupið og glansmynd fólks, og að sjálfsögðu íslenskt þunglyndi og ást.
Það er engin tilviljun að Early warning skuli koma út á þessum tímapunkti en sveitin verður einmitt meðal flytjenda á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni sem fer fram eftir rétta viku, þar leikur sveitin á Gauknum á fimmtudagskvöldinu.














































