
Sólveig Matthildur
Tvö tónlistartengd afmælisbörn koma við sögu á lista Glatkistunnar í dag:
Tónlistarkonan Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir er tuttugu og níu ára gömul á þessum degi. Hún er hljómborðsleikari í hljómsveitinni Kælunni miklu sem sigraði Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins 2013 og hefur einnig gefið út nokkrar breiðskífur, Sólveig hefur einnig sjálf sent frá sér sólóplötur og fjölda smáskífna þrátt fyrir ungan aldur.
Ágúst Ragnarsson tónlistarmaður á sjötíu og eins árs afmæli í dag. Ágúst hefur sent frá sér sólóefni og plötu í samstarfi við bróður sinn undir nafninu Jarðlingar en fáir hafa líklega starfað með jafn mörgum hljómsveitum og Ágúst, hér eru nefndar fáeinar af handahófi: Start, Fánar, Dansbandið, Flashback, Bendix, Deildarbungubræður, Foss, Freeport, Rockola, Sálin, Landshornarokkarar, Ópera og Friður.
Vissir þú að Björgvin Halldórsson hlaut Heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna þegar þau voru veitt í fyrsta sinn?














































