Afmælisbörn 2. janúar 2024

Pjetur Hallgrímsson

Glatkistan hefur tvö afmælisbörn á skrá sinni þennan annan dag ársins.

Trommuleikarinn Pjetur Sævar Hallgrímsson eða Pjetur í Tónspili er sjötíu og eins árs gamall í dag. Pjetur sem starfrækti verslunina Tónspil á Norðfirði til margra ára hefur leikið á trommur með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina en mest þó fyrir austan. Þeirra á meðal má nefna sveitir eins og Amon Ra, Lótus, Heimavarnarliðið, Bumburnar, Blúsbrot Garðars Harðar, Experiment, Martröð, Ósíris og Sjöttu pláguna.

Annar Austfirðingur, reyndar ættaður úr Mosfellsbænum, Þórhallur Árnason bassaleikari og lögreglumaður er fimmtíu og níu ára gamall í dag. Þórhallur lék með fjölda hljómsveita hér fyrrum en frægust þeirra hlýtur að teljast Gildran sem gaf út nokkrar plötur við nokkrar vinsældir, meðal annarra sveita hans má nefna Partý, Pass, Cosinus og Venus.

Vissir þú að á sjöunda áratug síðustu aldar starfaði hljómsveit í Reykholti í Borgarfirðinum undir nafninu Glaðir gæjar?