
Rúnar Þórisson
Tvö afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag:
(Sæmundur) Rúnar Þórisson gítarleikari frá Ísafirði er sextíu og átta ára gamall í dag en hann hefur komið víða við á löngum tónlistarferli. Rúnar starfaði á árum áður með sveitum eins og Ýr, Danshljómsveit Vestfjarða, Grafík, Haukum, Dínamít og Dögg en henn vann einnig náið með Rafni Jónssyni á sólóplötum hans. Á síðari árum hefur Rúnar gefið út sólóplötur og plötur í félagi við aðra. Rúnar er faðir söngkvennanna Margrétar og Láru Rúnars.
Og svo er það raftónlistarmaðurinn Pan Thorarensen sem einnig kallar sig Beatmakin Troopa en hann fagnar fjörutíu og þriggja ára afmæli á þessum degi. Hann hefur gefið út plötur undir þessum nöfnum en einnig starfað með raf- og hiphop-sveitum eins og Stereo Hypnsis, Ambátt og Audio Improvement auk þess að halda utan um útgáfufyrirtæki og félagsskap eins og 3angle production og Electric Ethincs.
Vissir þú að Klara Ósk Elíasdóttir (síðar kennd við Nylon) var aðeins ellefu ára gömul þegar hún söng fyrst á plötu?














































