Afmælisbörn 20. janúar 2024

Margrét Rósa Dórudóttir Harrysdóttir

Fimm afmælisbörn koma í dag við sögu á skrá Glatkistunnar yfir tónlistarfólk:

Ársæll Másson gítarleikari er sextíu og níu ára gamall á þessum degi en hann hefur leikið með ýmsum og ólíkum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þeirra á meðal má nefna Stórsveit Reykjavíkur, Bambinos, Misgengið og Föruneyti Gísla Helgasonar. Ársæll gegndi starfi djasstónlistargagnrýnanda á DV um tíma.

Þórhallur Sigurðsson (Laddi) tónlistarmaður og skemmtikraftur er sjötíu og sjö ára gamall í dag. Laddi er þekktastur fyrir grínið og hefur m.a. gefið út fjölmargar plötur einn og í félagi við aðra, en hefur einnig sungið alvarlegri tónlist. Hann var trymbill í hljómsveitum hér áður fyrr og spilaði hér heima sem erlendis með þeim. Fyrir fáeinum árum kom út bók um Ladda, Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja, skráð af Gísla Rúnari Jónssyni en áður hafði önnur bók komið út um hann.

Næstur á lista er Kristján Björn Snorrason en hann er sextíu og níu ára gamall á þessum degi. Kristján er líklega þekktastur fyrir að stofna og starfrækja hljómsveitina Upplyftingu þar sem hann hefur sungið og leikið á hljómborð og harmonikku, sú sveit hefur sent frá sér nokkrar plötur. Kristján hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Capital og Combói Kalla Skírnis.

Tónlistarmaðurinn Reynir Sigurðsson (1939-2023) hefði átt afmæli í dag. Reynir sem lék á ótal hljóðfæri s.s. slagverkshljóðfæri, víbrafón, harmonikku, píanó, bassa og margt fleira átti fjölbreyttan feril að baki, lék með miklum fjölda hljómsveita um ævina, lék inn á tugi hljómplatna, skrifaði kennslubækur, samdi og útsetti tónlist, kom að félagsmálum tónlistarmanna og þannig mætti áfram telja.

Og að síðustu er hér nefnd Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir bassaleikari hljómsveitarinnar Kælunnar miklu sem hefur vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir tónlist sína og gefið út nokkrar breiðskífur og leikið á fjölda tónleika. Margrét Rósa fagnar stórafmæli því hún er þrítug á þessum degi.

Vissir þú að Helga Möller söng eitt sinn með hljómsveit sem hét Moldrok?