![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2019/01/Sólbjörg-Björnsdóttir1.jpg?w=247&h=300)
Sólbjörg Björnsdóttir
Í dag eru tvö afmælisbörn skráð hjá Glatkistunni:
Reynir Gunnarsson saxófónleikari úr Dúmbó og Steina frá Akranesi er sjötíu og sex ára gamall á þessum degi. Reynir kom auðvitað við sögu á plötum Dúmbós en hefur lítið fengist opinberlega við tónlist allra síðustu árin, saxófónleik hans má þó heyra í söngleiknum Hunangsflugur og villikettir sem Grundaskóli á Akranesi setti á svið en plata kom út því tengt.
Þá á óperusöngkonan Sólbjörg Björnsdóttir fjörutíu og eins árs afmæli í dag. Sólbjörg sem kemur upphaflega frá Akureyri nam söng og píanóleik hér heima á Íslandi, í Bretlandi og Hollandi en hún hefur búið í síðast nefnda landinu hin síðustu ár. Hún hefur sungið með ýmsum kórum og í óperuuppfærslum, og hefur sungið á ótal tónleikum hér heima og erlendis.
Vissir þú að fjöllistahópurinn Abbababb á Akranesi fæddi af sér nokkra þekkta tónlistarmenn?