Afmælisbörn 1. júní 2024

Heiðrún Anna Björnsdóttir

Á þessum fyrsta degi júnímánaðar eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Ingólfur Guðjónsson hljómborðsleikari er sextíu og fimm ára gamall í dag. Ingólfur lék með fjölda þekktra og óþekktra sveita hér áður, fyrst með sveitum eins og Árbliki og Boy‘s brigade en síðar komu þekktari sveitir eins og Rikshaw, Loðin rotta (síðar Sköllótta músin), Pláhnetan og 3TO1.

Þórður Helgi Þórðarson (Doddi litli) dagskrárgerðarmaður úr Njarðvíkum er fimmtíu og fimm ára gamall. Þórður Helgi gengur einnig undir listamannsnafninu Love Guru og hefur gefið út nokkuð af tónlist undir því aukasjálfi en einnig var hann í hljómsveitum hér áður, s.s. Mullet sem sendi á sínum tíma frá sér plötu.

Heiðrún Anna Björnsdóttir söngkona á fimmtíu og eins árs afmæli í dag. Hún vakti hér athygli á sínum tíma með hljómsveitum eins og Cigarette sem naut nokkurra vinsælda auk þess sem hún var um tíma í Gus gus, þá sendi hún frá sér nokkur sólólög áður en hún fluttist til Bretlands þar sem hún hefur búið síðustu áratuginu, þar hefur hún starfaði með hljómsveitum eins og Gloss og Cicada en hefur einnig unnið þar að sólóefni.

Jón Örn Arnarson trommuleikari Jet Black Joe og Ensíma á stórafmæli en hann er fimmtugur í dag. Jón Örn var nokkuð áberandi á tíunda áratugnum með sveitunum tveimur, fyrst með Jet Black Joe og síðan Ensími en báðar sveitirnar nutu mikilla vinsælda á sínum tíma. Síðar var Jón Örn í hljómsveitinni Plast en hefur lítið verið áberandi í tónlist síðustu árin.

Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari (Jónsi í Í svörtum fötum) er fjörutíu og sjö ára gamall. Í svörtum fötum var feikilega vinsæl um og eftir aldamótin og um svipað leyti fór Jónsi sem fulltrúi Íslands í Eurovision til Istanbul með lagið Heaven. Hann söng einnig nokkuð í uppfærslum á söngleikjum um þetta leyti og gaf út sólóplötuna Jónsi árið 2005.

Snorri Helgason áður kenndur við Sprengjuhöllina en síðar sólóisti á stórafmæli í dag en hann er fertugur. Snorri varð landsþekktur með hljómsveit sinni, Sprengjuhöllinni, sem gaf út tvær plötur á sínum tíma en eftir að sú sveit leið undir lok hneigðist Snorri meir í átt að þjóðlagatónlist og hefur gefið út nokkrar sólóplötur í þeim dúrnum (og reyndar einnig eina barnaplötu), sem allar hafa hlotið ágætar viðtökur.

Vissir þú að Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur lék á selló á styrktarplötunni Hjálpum þeim?