Páll Óskar og Skrattar snúa bökum saman og koma fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum um verslunarmannahelgina 2. – 4. ágúst en hátíðin fer nú fram í miðborg Reykjavíkur í 21. sinn. Meðal annarra listamanna sem eru tilkynnt til leiks í fyrstu dagskrártilkynningu hátíðarinnar eru Bjartar sveiflur, ex.girls, Hatari, Hipsumhaps, Inspector Spacetime, Lúpína, Una Torfa og Vök.
Aðaldagskrá Innipúkans fer að sjálfsögðu fram innandyra eins og hefð er fyrir en hátíðin fer þriðja árið í röð fram fram í Gamla bíói og Röntgen þar sem boðið verður upp á tvö tónleikasvið ásamt hátíðarstemningu milli staðanna í Ingólfsstræti alla helgina.
Margir ástsælustu listamenn þjóðarinnar hafa komið fram á hátíðinni síðustu tuttugu ár og má þar nefna Bríet, Daða Freyr, Emmsjé Gauta, Eyjólf Kristjánsson, FM Belfast, GDRN, Hjaltalín, Hjálma, Lay Low, Möggu Stínu, Megas, Mínus, Mugison, Of Monsters and Men, Ólaf Arnalds, Ómar Ragnarsson, Ragga Bjarna, Siggu Beinteins, Sóleyju, Svölu, Trabant og Þú & ég.
Eftirfarandi listamenn hafa boðað komu sína á hátíðina:
-
Páll Óskar
-
Bjartar sveiflur
-
Ex.Girls
-
Hasar
-
Hatari
-
Hipsumhaps
-
Hekla
-
Hermigervill
-
Inspector Spacetime
-
Kött Grá Pjé & Fonteki Simbol
-
Lúpína
-
Skrattar
-
Una Torfa
-
Úlfur Úlfur
-
Volruptus
-
Vök
Tilkynnt verður um fleiri listamenn, hljómsveitir og plötusnúða á næstu vikum.
Miðasala á hátíðina fer fram á tix.is. Armband á hátíðina gildir alla helgina en einnig er hægt að kaupa miða á stök kvöld hátíðarinnar. Síðustu ár hefur verið uppselt á Innipúkann – og því um að gera tryggja sér miða í tíma. Miðaverð er kr. 10.990 (9.990 krónur fyrir þá fyrstu) fyrir þriggja daga hátíðarpassa en kr. 5.990 fyrir kvöldpassa.
Það er alltaf gott veður á Innipúkanum – og bara gaman!














































