Afmælisbörn 11. júní 2024

Bragi Einarsson

Í dag eru afmælisbörn Glatkistunnar þrjú:

Jón Þór Hannesson framleiðandi fagnar stórafmæli en hann er áttræður í dag. Hann hóf sinn tónlistartengda feril með rekstri ólöglegrar útvarpsstöðvar 1962 ásamt Pétri Steingrímssyni og var handtekinn fyrir uppátækið. Jón Þór var einnig í hljómsveitinni Tónum um miðjan sjöunda áratuginn áður en hann sneri sér upptökufræðum, þar sem hann tók upp margar hljómplötur, varð síðar einn stofnenda og eigenda Hljóðrita í Hafnarfirði auk þess sem hann rak Hljómplötuútgáfuna samhliða störfum hjá Ríkissjónvarpinu. Síðar varð hann framleiðandi í auglýsingagerð og leiðandi afl í þeim fræðum hérlendis.

Kristinn T. Haraldsson eða Kiddi rót eins og hann er iðulega nefndur, fagnar líka stórafmæli á þessum degi en hann er sjötugur. Hann er þekktastur fyrir framlag sitt sem rótari hljómsveita, meðal annars fyrir Júdas. Kiddi komst einnig í fréttirnar síðar sem ráðherrabílstjóri og rekstraraðili veitingahússins Kaffi Kidda rót.

Bragi Einarsson (fæddur 1930) blásari átti þennan afmælisdag einnig en hann var þekktur saxófón- og klarinettuleikari og lék með fjölda hljómsveita af ýmsu tagi á árum áður, hér má nefna Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar, Hi gees (Hljómsveit Einars Loga), Hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar, Trad kompaníið, Hljómsveit Þorsteins Eiríkssonar, Þ.Ó. kvintettinn og Sveiflusextettinn svo dæmi séu tekin. Bragi lést árið 1994.

Vissir þú að Orri Harðar var byrjaður að troða upp sem trúbador 12 ára gamall?