Anya Shaddock gefur út breiðskífuna Inn í borgina

Anya Shaddock – Inn í borgina

Anya Hrund Shaddock gefur í dag út sína fyrstu breiðskífu en um er að ræða er átta laga plötu sem hefur hlotið nafnið Inn í borgina. Anya semur sjálf öll lög plötunnar, syngur, útsetur og annast upptökuþáttinn en hún fær með sér sérvalinn hóp tónlistarfólks til að ramma inn plötuna eins og segir í fréttatilkynningu.

Anya hefur verið að koma fram með sína eigin tónlist á síðustu árum, semja og taka upp en lögin og textarnir sem hún semur eru um hennar líf, upplifanir og erfiðleika og raunveruleikann sjálfan. Tónlist hennar mætti skilgreina sem blöndu af poppi, r&b, indie og jazz.

„Tónlistin stóð alltaf með mér í gegnum allt og ég notaði hana til að græða gömul sár og fá þá útrás sem ég þurfti til að halda áfram og fyrirgefa. Mér finnst gott að semja um það sem enginn eða fáir tala um því mig langar að hjálpa öðrum. Mig langar að gefa öðrum þann frið og þá hugarró sem ég finn þegar ég syng, spila eða hlusta á tónlist.” (Anya Shaddock)

Anya Shaddock er tuttugu og tveggja ára, fædd í Bandaríkjunum en uppalin á Fáskrúðsfirði. Hún vakti fyrst athygli árið 2017 þegar hún sigraði Samfés söngvakeppnina með frumsömdu lagi og svo Nótuna síðar sama ár. Hún gaf út sína fyrstu smáskífu – Sweet love, árið 2022 og ári síðar sendi hún frá sér smáskífuna Með von um nýjan dag, ásamt dirb og BNGRBOY, það sama ár var hún meðal keppenda í Idol stjörnuleitinni og komst þar í topp 18.

Fyrr í vor kom fyrsta smáskífan af nýju plötunni hennar – Til þín, og nú hefur breiðskífan Inn í borgina litið dagsins ljós. Plötuna má heyra hér.

Anya fagnar í kvöld útgáfunni á Gallerí Fló við Gufunesveg 17, 112 Reykjavík, þar verður hún með ókeypis útgáfutónleika og hvetur alla til að mæta, dansa, hlusta og njóta Inn í borgina með sér.