Tónlistarkonan Anna Richter gefur í dag út smáskífuna Out of here en framundan er útgáfa á fleiri lögum frá henni, hún semur lög sín og texta sjálf sem eiga rætur sínar að rekja til country/folk tónlistar en Anna bjó lengi í Bandaríkjunum.
„Ég er í grunninn country/folk stelpa. Ég hef stundum átt erfitt með að sætta mig við það að vera það en þegar ég lít til baka þá var fyrsta lagið sem ég samdi þegar ég bjó í Ameríku 12 ára alveg country lag í gegn sem hét Mississippi River.” (Anna Richter)
Framundan hjá Önnu eru frekari upptökur og útgáfur á eigin efni, og stefnir hún á að koma fram víðs vegar um landið til að kynna sig og tónlist sína.
Anna syngur og leikur á gítar í Out of here en upptökustjórn var í höndum Arnars Guðjónssonar – lagið má heyra hér á Spotify.














































