Afmælisbörn 3. ágúst 2024

Ásgrímur Angantýsson

Tvö afmælisbörn tengd íslenskri tónlist eru á skrá Glatkistunnar í dag:

Bjarki Sveinbjörnsson doktor í tónvísindum er sjötíu og eins árs gamall í dag. Bjarki starfaði fyrrum sem tónmenntakennari en eftir að hann lauk doktorsnámi sínu 1998 um tónlist á Íslandi á 20. öld með áherslu á upphaf og þróun elektrónískrar tónlistar á árunum 1960-90, hefur hann mestmegnis starfað á fræðasviðinu. Hann starfrækir m.a. með dr. Jóni Hrólfi Sigurjónssyni tónlistarvefina Músík.is og Ísmús.is, auk þess að hafa veitt Tónlistarsafni Íslands forstöðu.

Þá er Ásgrímur Angantýsson tónlistarmaður og prófessor í málvísindum fimmtíu og tveggja ára gamall á þessum degi. Ásgrímur hefur leikið á hljómborð, harmonikku og fleira með ýmsum hljómsveitum eins og Loftskeytamönnum, Antik, Karakter, Raufarhafnarbandinu, Ferlíki, Nefndinni og Sífrera, svo nokkur nöfn séu nefnd.

Vissir þú að Guðmundur Ingólfsson (síðar djasspíanisti) lék átta ára gamall frumsamda tónlist í Ríkisútvarpinu en Sigurður Ólafsson söngvari söng lögin við texta móður Guðmundar.