Myrkvi sendir frá sér Sjálfsmynd

Tónlistarmaðurinn Myrkvi eða Magnús Thorlacius sendir í dag frá sér smáskífuna Sjálfsmynd en hún er af væntanlegri breiðskífu sem mun bera titilinn Rykfall. Sú skífa verður töluvert frábrugðin síðustu plötu, Early Warning sem Myrkvi sendi frá sér fyrir síðustu jól en þá plötu vann hann með Yngva Hólm og byggði á útsetningum fyrrum hljómsveitarmeðlima þeirra í Vio þar sem tónlistarferill Magnúsar hófst en sú sveit sigraði Músíktilraunir vorið 2014 og hlaut á sínum tíma tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Myrkvi leit hins vegar fyrst dagsins ljós árið 2020 með laginu Sér um sig, sem naut mikilla vinsælda.

Nýju smáskífuna, Sjálfsmynd má heyra hér á Spotify.