
Kraumsverðlaunahafar 2024
Kraumsverðlaunin verða afhent í sautjánda sinn síðar í þessum mánuði fyrir þær íslensku hljómplötur er þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika.
Dómnefnd verðlaunanna hefur nú valið þær plötur er hljóta tilnefningar til Kraumsverðlaunanna í ár, og skipa þar með Kraumslistann 2024. Mikil fjölbreytni einkennir tilnefningarnar í ár – þar sem sú gróska sem ríkir í íslensku tónlistarlífi á sviði popp, rokk, teknó, hip hop og tilraunatónlist er hampað. Stór hluti þeirra listamanna sem eru tilnefnd til Kraumsverðlaunanna 2024 eru að koma fram á sjónasviðið með sínar fyrstu breiðskífur.
Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa hátt í níutíu listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferlinum, frá því verðlaunin voru fyrst veitt árið 2008.
Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir plötur sínar eru; Agent Fresco, Anna Þorvaldsdóttir, Ásgeir, Bjarki, BSÍ, Cell7, Daníel Bjarnason, Elín Hall, FM Belfast, GKR, Grísalappalísa, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold kammersveit, JDFR, Kvikindi, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson. Samaris, Sing Fang, Sóley, Una Torfa og fjölmargir fleiri.
En Kraumslistinn 2024 (tilnefningar til Kraumsverðlaunanna) lítur svohljóðandi út:
-
Amor Vincit Omnia – bbr babe
-
Björg Brjánsdóttir – Growl Power
-
Iðunn Einars – Í hennar heim
-
JónBjörn – Gárur
-
Kaktus Einarsson – Lobster Coda
-
Katla Yamagata – Postulín
-
Kött Grá Pje & Fonetik Simbol – Dulræn Atferlismeðferð
-
MC MYASNOI – slugs are legal now
-
Múr – Múr
-
Saint Pete – Græni pakkinn
-
sideproject – sourcepond
-
Sigrún – Monster Milk
-
Sigtryggur Berg og Glupsk – Beyond Happy
-
Skorri – randyrtsport
-
Sunna Margrét – Finger on Tongue
-
Supersport – allt sem hefur gerst
-
Tonik Ensemble – Music Is Mass
-
Torfi Tómasson – Eitt
-
Xiupill – Mythology
-
Young Nazareth – 200 – 101 vol. 1
Kraumsverðlaunin 2024 eru valin af tólf manna dómnefnd skipuðu fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Birgitta Björg Guðmarsdóttir, Eldar Ástþórsson, Júlía Kröyer, Karólína Einars Maríudóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson, Vaka Orradóttir og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.














































