
Þröstur Jóhannesson
Glatkistan hefur þrjú afmælisbörn á skrá sinni þennan annan dag ársins.
Trommuleikarinn Pjetur Sævar Hallgrímsson eða Pjetur í Tónspili er sjötíu og tveggja ára gamall í dag. Pjetur sem starfrækti verslunina Tónspil á Norðfirði til margra ára hefur leikið á trommur með ótal hljómsveitum í gegnum tíðina en mest þó fyrir austan. Þeirra á meðal má nefna sveitir eins og Amon Ra, Lótus, Heimavarnarliðið, Bumburnar, Blúsbrot Garðars Harðar, Experiment, Martröð, Ósíris og Sjöttu pláguna.
Annar Austfirðingur, reyndar ættaður úr Mosfellsbænum, Þórhallur Árnason bassaleikari og lögreglumaður er sextugur og fagnar því stórafmæli í dag. Þórhallur lék með fjölda hljómsveita hér fyrrum en frægust þeirra hlýtur að teljast Gildran sem gaf út nokkrar plötur við nokkrar vinsældir, meðal annarra sveita hans má nefna Partý, Pass, Cosinus og Venus.
Og þá er hér nefndur keflvíski tónlistarmaðurinn Þröstur Jóhannesson en hann er fimmtíu og sex ára gamall á þessu degi. Þröstur hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og hér má nefna Hina guðdómlegu Neanderdalsmenn, Vonlausa tríóið, Trassana, Salerni, Unaðsdal, Texas Jesú og Ofris en hann á einnig að baki sólólplötur í eigin nafni.
Vissir þú að hljómsveitarúta frá Hofsósi brann til kaldra kola á Öxnadalsheiði vorið 1978?














































