
Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir
Glatkistan hefur eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá sinni á þessum degi:
Hjálmfríður Þöll Friðriksdóttir (Frida Fridriks) tónlistarkona er fimmtíu og sex ára gömul í dag. Hún er af tónlistarfólki komin og var ung farin að syngja í Barnakór Tónlistarskóla Rangæinga en hún söng einsöng með kórnum á plötu aðeins þrettán ára gömul. Hjálmfríður söng með fáeinum hljómsveitum og á plötum hér heima áður en hún fluttist til Danmerkur þar sem hún býr nú og kennir tónlist við listaháskóla. Hún hefur gefið út sólóbreiðskífur og starfar með hljómsveitum einnig ytra.
Vissir þú að ónefndur söngkennari við Miðbæjarskólann mun hafa samið „tralala-voff-voff“ við lagið um Snata og Óla á sínum tíma, stúlka ein sem neitaði að syngja línuna var rekin úr skólanum.














































