Afmælisbörn 20. janúar 2025

Ársæll Másson

Fimm afmælisbörn koma í dag við sögu á skrá Glatkistunnar yfir tónlistarfólk:

Ársæll Másson gítarleikari hefði fagnað sjötugs afmæli á þessum degi en hann lést fyrir stuttu. Ársæll lék með fjölmörgum og ólíkum hljómsveitum og þeirra á meðal má nefna Stórsveit Reykjavíkur, Bambinos, Strandhögg, Kennarabland MS, Úrkula vonar, Misgengið og Föruneyti Gísla Helgasonar. Ársæll gegndi starfi djasstónlistargagnrýnanda á DV um tíma.

Þórhallur Sigurðsson (Laddi) tónlistarmaður og skemmtikraftur er sjötíu og átta ára gamall í dag. Laddi er þekktastur fyrir grínið og hefur m.a. gefið út fjölmargar plötur einn og í félagi við aðra, en hefur einnig sungið alvarlegri tónlist. Hann var trymbill í hljómsveitum hér áður fyrr og spilaði hér heima sem erlendis með þeim. Fyrir fáeinum árum kom út bók um Ladda, Þróunarsaga mannsins sem kom okkur til að hlæja, skráð af Gísla Rúnari Jónssyni en áður hafði önnur bók komið út um hann.

Næstur á lista er Kristján Björn Snorrason en hann er sjötugur og á því stórafmæli á þessum degi. Kristján er líklega þekktastur fyrir að stofna og starfrækja hljómsveitina Upplyftingu þar sem hann hefur sungið og leikið á hljómborð og harmonikku, sú sveit hefur sent frá sér nokkrar plötur. Kristján hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Capital og Combói Kalla Skírnis.

Tónlistarmaðurinn Reynir Sigurðsson (1939-2023) hefði átt afmæli í dag. Reynir sem lék á ótal hljóðfæri s.s. slagverkshljóðfæri, víbrafón, harmonikku, píanó, bassa og margt fleira átti fjölbreyttan feril að baki, lék með miklum fjölda hljómsveita um ævina, lék inn á tugi hljómplatna, skrifaði kennslubækur, samdi og útsetti tónlist, kom að félagsmálum tónlistarmanna og þannig mætti áfram telja.

Og að síðustu er hér nefnd Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir bassaleikari hljómsveitarinnar Kælunnar miklu sem hefur vakið mikla athygli á síðustu árum fyrir tónlist sína og gefið út nokkrar breiðskífur og leikið á fjölda tónleika. Margrét Rósa fagnar þrjátíu og eins árs afmæli á þessum degi.

Vissir þú að harmonikkuleikararnir Rútur Hannesson og Þorsteinn Guðmundsson (Steini spil) voru bræðrasynir?