
Guðmundur R. Gíslason
Á þessum degi eru tvö tónlistartengd afmælisbörn á lista Glatkistunnar:
Hanna Steina (Jóhanna Steinunn) Hjálmtýsdóttir söngkona fagnar sextíu og þriggja ára afmæli í dag. Eins og flestir vita er hún dóttir Hjálmtýs Hjálmtýssonar söngvara og þ.a.l. systir Páls Óskars og Diddúar en hún hefur sungið með fjölmörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þeirra á meðal eru sveitir eins og Dá, Jemm & Klanks, De Vunderfoolz, Október og Orgill en síðast talda sveitin gaf út plötu á sínum tíma. Hanna Steina hefur einnig sungið á plötum Mike Pollock, Possibillies, Huxun, Frakka og Bubba Morthens svo dæmi séu tekin.
Þá er hér einnig nefndur Norðfirðingurinn Guðmundur Rafnkell Gíslason tónlistarmaður en hann söng hér fyrrum með hljómsveitinni Súellen sem gerði garðinn frægan seint á síðustu öld en hefur einnig starfað með hljómsveitum eins og Gumma Sú og sívalningunum og Fiff. Hann hefur jafnframt sent frá sér nokkrar sólóplötur og m.a. unnið þar í samstarfi við hljómsveitina Coney island babies. Guðmundur er fimmtíu og fimm ára gamall á þessum degi.
Vissir þú að Haraldur Sigurðsson (Halli í Halla og Ladda) starfrækti hljómsveit vestur í Bandaríkjunum undir nafninu Halli and the hobos?














































