Afmælisbörn 15. mars 2025

Sigrún Grendal

Afmælisbörn dagsins eru þrjú að þessu sinni á Glatkistunni:

Sigurður Halldór Guðmundsson (Siggi Hjálmur) hinn ótrúlega fjölhæfi tónlistarmaður er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi en hann hefur leikið í mörgum af þekktustu sveitum íslenskrar tónlistarsögu, þar má nefna hljómsveitir eins og Hjálma, Senuþjófana, Baggalút, Memfísmafíuna, Tregasveitina og Skuggasveina en hann hefur einnig sungið og leikið á hljóðfæri á tugum ef ekki hundruðum platna síðustu árin. Sigurður er einnig útsetjari, upptökumaður og sjálfsagt eitthvað miklu meira.

Axel Kristjánsson gítar- og bassaleikari (fæddur 1927) átti afmæli á þessum degi en hann var af fyrstu kynslóð hljóðfæraleikara sem léku með danshljómsveitum víða um land. Axel lék bæði á bassa og gítar með ýmsum hljómsveitum og hér má nefna Tríó Jan Morávek, Tríó Kristjáns Magnússonar, H.G. sextett, Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar, Hljómsveit Jónatans Ólafssonar, Hljómsveit Björns R. Einarssonar og Dixielandhljómsveit Íslands en einnig starfrækti Axel hljómsveit í eigin nafni um tíma, bara svo fáeinar séu nefndar. Axel lést árið 2015.

Að síðustu er hér nefnd Sigrún Grendal Jóhannesdóttir píanóleikari, tónlistarkennari, kórstjórnandi og fleira en hún er fimmtíu og fimm ára gömul í dag. Sigrún hefur m.a. stjórnað kórum og sönghópum eins og Raddbandafélaginu og Góðir í boði en hefur jafnframt gegnt félagsstörfum í tónlistinni, s.s. sem formaður Félags tónlistarskólakennara.

Vissir þú að Högni Egilsson ásamt fleirum starfrækti hljómsveitina Blöðrukisi árið 2003?