Afmælisbörn 3. apríl 2025

Árni J. Óðinsson

Glatkistan hefur upplýsingar um tvö tónlistartengd afmælisbörn á þessum degi:

Silli Geirdal (Sigurður Geirdal Ragnarsson) bassaleikari fagnar fimmtíu og tveggja ára afmæli í dag. Silli hefur frá árinu 2004 verið þekktastur fyrir að starfa með sveit sinni Dimmu en hann hefur einnig leikið með hljómsveitum eins og Sign og Stripshow, færri vita að á bernskuárum sínum myndaði hann dúettinn Black diamond ásamt Geir Ólafssyni. Silli hefur aukinheldur starfað við upptökur.

Þá á Árni Jóhann Óðinsson gítarleikari sextíu og fjögurra ára afmæli á þessum degi. Árni Jóhann hefur leikið með fjölda hljómsveita á austanverðu landinu og hér má m.a. Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar, Eglu, Standard, Lucifer, Bergmál, Orfeus, Stemmingu og Hitaveitina svo nokkrar séu nefndar.

Vissir þú að Ragnar Zolberg lék á trommur á tónleikum í Borgarleikhúsinu með föður sínum Rafni Jónssyni þegar hann var aðeins 6 ára gamall?