
Eyjólfur Kristjánsso
Glatkistan hefur að geyma upplýsingar um tvö afmælisbörn í tónlistargeiranum á þessum degi:
Eyjólfur Kristjánsson söngvari, lagasmiður, gítarleikari og skemmtikraftur er sextíu og fjögurra ára gamall í dag. Eyfi var á tímabili áberandi í jólalaga- og söngvkeppnaflóðunum, söng t.a.m. lög eins eins og Gleðileg jól allir saman, Draum um Nínu og Álfheiði Björk sem allir þekkja en þekktastur er hann þó fyrir framlag sitt sem sólóisti og með Bítlavinafélaginu og Hálfu í hvoru þar sem hann vakti athygli fyrst. Hann hefur þó einnig sungið með fjölmörgum öðrum hljómsveitum fyrr og síðar, og má þar nefna sveitir eins og Púkó og Gumma, Andrómedíu, Texas tríóið, Vísnavini, Vox, Ullarhattana og Íslands einu von.
Stefán (Snædal) Bragason á einnig afmæli í dag en hann er sjötíu og tveggja ára gamall. Stefán gerði garðinn frægan hér á árum áður austur á Héraði með hljómsveitum eins og Völundi, Hljómsveit Stefáns Bragasonar, Mánatríóinu, Hitaveitunni, Tríói Sævars Ben, Skruggu, Hvað og Ásláki en í þeim lék hann yfirleitt á hljómborð.
Vissir þú að hljómsveitin Klassart úr Sandgerði hét upphaflega Mean Mr. Mustard and his sister Pam?














































