Afmælisbörn 21. apríl 2025

Stephan Stephansen

Tvö tónlistartengd afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar á þessum degi:

Annað þeirra er dans- og raftónlistarmaðurinn Stephan Stephensen, sem einnig gegnir nafninu President Bongo og hefur gefið út plötu undir því nafni, en hann er fimmtíu og fjögurra ára gamall í dag. Stephan er kunnastur fyrir veru sína í Gus Gus en hefur einnig starfað í Gluteus Maximus auk þess að hafa verið bassaleikari í hljómsveitinni Tussuli fyrir margt löngu og reyndar komið mjög víða við í tónlistarsköpun sinni. Stephan hefur ennfremur starfrækt útgáfufyrirtækið Radio Bongo.

Hitt afmælisbarnið er Benedikt Benediktsson söngvari (1928-2011) sem einnig átti afmæli þennan dag. Benedikt starfaði sem kennari og skólastjóri mest alla sína tíð og var að mestu óskólagenginn í tónlist en söng með kórum, þar á meðal Þjóðleikhúskórnum í nokkrum óperu- og óperettuuppfærslum. Hann sendi frá sér einsöngsplötuna Nú ríkir kyrrð, árið 1997 með upptökum frá ýmsum tímum.

Vissir þú að Fílharmóníusveitin var tríó sem keppti í fyrstu Músíktilraununum haustið 1982 en hún skartaði m.a. bassaleikaranum Steini Ármanni Magnússyni?