
Guðjón Matthíasson
Í dag eru fimm afmælisbörn á skrá Glatkistunnar. Þau eru öll látin:
Trommuleikarinn Stefán Ingimar Þóhallsson er fimmtíu og eins árs gamall á þessum degi. Stefán hefur lengst leikið með hljómsveitinni Á móti sól en hann var einnig trommuleikari Sólstrandagæjannar og hefur jafnframt leikið Djassbandi Suðurlands og fleiri hljómsveitum. Hann hefur leikið inn á fjölda platna í gegnum tíðina.
Klarinettuleikarinn Björn Guðleifur Jónsson (fæddur 1899) var þekktur í tónlistarheiminum fyrir félagsstörf sín en hann var m.a. framkvæmdastjóri Tónlistarfélagsins í Reykjavík, Hljómsveitar Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, hann lék einnig á klarinett m.a. með Lúðrasveit Reykjavíkur og Hljómsveit Reykjavíkur en hann hafði numið tónlist í Leipzig. Björn lést sumarið 1970.
Sigfús Ólafsson tónlistarmaður og -kennari (1944-2021) hefði átt afmæli í dag, hann sendi á sínum tíma frá sér plötuna Ég elska þig enn en á henni er að finna frumsamin lög eftir hann. Sjálfur lék Sigfús með fjölmörgum hljómsveitum hér áður fyrr og má þar nefna sveitir eins og Hljómsveit Óskars Guðmundssonar, Ása, Capella og Hljómsveit Gissurar Geirs. Sigfús gaf ennfremur út kennsluefni í tónlist.
Einnig hefði Guðjón Matthíasson harmonikkuleikari, lagasmiður og hljómsveitastjóri átt afmæli á þessum degi en hann fæddist 1919. Guðjón hóf sinn feril reyndar sem söngvari en starfrækti síðar harmonikkusveitir undir eigin nafni og fjölmargar plötur komu út með harmonikkuleik hans, hann samdi jafnframt lög sem m.a. unnu til verðlauna í dægurlagakeppnum SKT á árum áður. Margar af þessum plötum gaf hann út sjálfur undir merkjum GM-tóna. Guðjón lést árið 2003.
Og þá er að síðustu nefndur Ágúst Bjarnason gluntasöngvari (f. 1918) en gluntasöngvar eru sænskir stúdentasöngvar sem nutu vinsælda fyrrum, Ásgeir söng slíka söngva inn á nokkrar plötur með Jakob Hafstein á sjötta áratugnum. Hann söng einnig með karlakórum og var framarlega í félagsstarfi karlakóra, var víða í stjórn og gegndi um tíma m.a. formennsku í Sambandi íslenskra karlakóra. Ágúst lést 1994.
Vissir þú að Louise Ólafsdóttir var organisti í Hveragerði og Ölfusinu í yfir 60 ár?














































