Andlát – Orri Harðarson (1972-2025)

Orri Harðar

Skagamaðurinn og tónlistarmaðurinn Orri Harðarson (Orri Harðar) er látinn fimmtíu og tveggja ára gamall eftir baráttu við veikindi.

Orri var fæddur (haustið 1972) og uppalinn á Akranesi, og þar vakti hann fyrst athygli þegar hann tók þátt í hæfileikakeppni um tólf ára gamall en hann var þá byrjaður að semja tónlist og texta. Á unglingsárum sínum starfaði hann með fjöldanum öllum af hljómsveitum sem margar hverjar tóku þátt í Tónlistarkeppnum NFFA á Akranesi og Músíktilraunum Tónabæjar, og með ágætum árangri – hér má nefna sveitirnar Nöldur, Andartak, Óþekkt andlit, Tregablandina lífsgleði, 1001 nótt, Orra H. og Co., Bróður Darwins, Elohim og Frávik. Orri starfaði einnig um tíma með hljómsveitinni Pure pretend  í Danmörku en þar var hann í lýðháskóla, síðar átti hann eftir að búa í Danmörku um nokkurra ára skeið og rak þá m.a. hljóðverið Dynamic Productions. Enn síðar átti Orri eftir að starfa hér heim með hljómsveitum á borð við Lekkert, Geð og Ópal.

Orri sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu árið 1993 og bar hún titilinn Drög að heimkomu, og í kjölfarið hlaut hann nafnbótina Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaunum. Eftir það komu plöturnar Stóri draumurinn (1995), Tár (2002), Trú (2005) og Albúm (2010) auk þess sem hann hafði fullunnið plötuna Vín og víf árið 1999 en hún kom aldrei út – plötur hans fengu yfirleitt alltaf jákvæða dóma. Nokkrar smáskífur komu einnig út í hans nafni á tónlistarveitum síðustu árin.

Orri hafði einnig einbeitt sér að upptökustjórn og upptökuvinnu um árabil, starfaði þá með fjölmörgu tónlistarfólki og hljómsveitum og lék einnig inn á plötur þeirra – hér má nefna nöfn eins og Karl Hallgrímsson, Jónu Pöllu, Ívar Bjarklind, Abbababb, Ummhmm, Kristínu Eysteinsdóttur, Halla Melló og Önnu Halldórs.  Orri kom með ýmsum öðrum hætti að íslenskri tónlist, hann samdi töluvert af lögum og textum fyrir leikhús og var t.a.m. meðal þátttakenda í undankeppnum Eurovision, hann starfaði einnig lengi sem trúbador og hélt sem slíkur tónleika víða um land.

Orri fékkst við skriftir samhliða tónlistarstörfum og síðar tóku ritstörfin yfir, eftir hann liggja m.a. þýðingar m.a. á ævisögum Bono og George Best, og skáldsögur, hann starfaði jafnframt um tíma sem tónlistargagnrýnandi á Morgunblaðinu auk annarra ritstarfa. Hann bjó á Akureyri um skeið og var t.a.m. kjörinn bæjarlistamaður Akureyrar 2017.

Orri hafði glímt við krabbamein um skeið og voru nýverið haldnir styrktartónleikar á Akranesi fyrir hann, hann hefur nú lotið í lægra haldi fyrir veikindunum en hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.