Afmælisbörn 24. ágúst 2025

Halla Soffía Jónasdóttir

Tvö afmælisbörn í íslenskri tónlistarsögu koma við sögu Glatkistunnar í dag:

Ólafur Haukur Símonarson er sjötíu og átta ára gamall í dag. Ólafur er fyrst og fremst laga- og textahöfundur og skipta lög hans hundruðum, oftar en ekki tengt leikhúsinu. Þarna má nefna t.d. Hatt og Fatt, Gauragang, Fólkið í blokkinni og Kötturinn fer sínar eigin leiðir en hann Ólafur hefur einnig samið texta fyrir aðra s.s. á plötu Gunnars Þórðarsonar, Borgarbrag sem innihélt m.a. lagið Gaggó Vest. Ólafur hefur einnig sungið sjálfur eigin lög, margir muna t.d. eftir laginu Allur á iði.

Sópran söngkonan Halla Soffía Jónasdóttir á í dag áttatíu og tveggja ára afmæli. Halla Soffía söng á yngri árum sínum með hljómsveit Hauks Þorsteinssonar á Sauðárkróki en nam síðan söng og gaf m.a.s. út plötu ásamt Fríði Sigurðardóttur auk þess að syngja einsöng á tónleikum ýmist ásamt Fríði eða með hinum og þessum kórum, en hún söng jafnframt með Skagfirsku söngsveitinni um árabil.