Afmælisbörn 1. október 2025

Óskar Þórisson

Fjögur afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar þennan fyrsta dag október mánaðar:

Þráinn Árni Baldvinsson gítarleikari og tónmenntakennari er fjörutíu og níu ára á þessum degi. Þráinn hefur komið víða við í fjölbreytileika tónlistarinnar síðan hann lék með unglingahljómsveitinni Pain en þar má nefna sveitir eins og Sága, Klamidía X, Blóð, Innvortis, Kalk, Moonboot, Sikk og Skálmöld sem er auðvitað með þekktustu sveitum landsins en hann hefur einnig leikið á plötum Baggalúts hópsins svo annars konar dæmi séu tekin.

Rósa Guðrún Sveinsdóttir tónlistarkona frá Akranesi er fjörutíu og fimm ára gömul í dag. Rósa er afar fjölhæf, syngur, semur lög og texta, stjórnar lúðrasveit, leikur á fjölda hljóðfæra s.s. saxófóna og starfar sem tónmenntakennari, hún hefur sent frá sér sólóefni og starfað með hljómsveitum eins og Ritvélum framtíðarinnar, 13 tunglum, Vítamín og Robert the roomate auk þess að hafa komið við sögu á fjölda platna þekktra tónlistarmanna og hljómsveita.

Tónlistarmaðurinn Óskar Þórisson sem áður var liðsmaður hljómsveita eins og Taugadeildinni og Mogo Homo fagnar í dag sextíu og sex ára afmæli sínu. Óskar söng og lék á hljómborð og saxófón jafnframt í sveitum eins og Prófessor X og Þetta er bara kraftaverk, og mun jafnvel hafa komið um tíma við sögu Fræbbblanna.

Og að lokum er hér nefndur trommuleikarinn Guðjón Ingi Sigurðsson en hann lést árið 2022. Guðjón Ingi sem var fæddur þennan dag árið 1936, lék á árum áður með hljómsveitum á borð við Orion, Hljómsveit Guðjóns Pálssonar, Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar, Hljómsveit Gunnars Ormslev, Hljómsveit Jóns Páls Bjarnasonar, Tríó Kristjáns Magnússonar og Icelandic All star.