Biðin er á enda – nú er ljóst hvernig dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves verður háttað þetta árið en nú eru aðeins þrjár vikur til stefnu, tuttugu nýir listamenn frá öllum heimshornum hafa nú bæst í hóp þeirra sem áður hafði verið tilkynnt um en þeir verða á annað hundrað talsins. Meðal þeirra tuttugu sem bætt var nú í hóp flytjenda eru nokkrir íslenskir en þeir eru í stafrófsröð Atli, Álfgrímur, digital ísland, GDRN, MAIAA, SCAM og slóra.
Rétt er að minna á að á miðnætti á föstudagskvöldið hækka öll miðaverð þannig að nú er rétta tækifærið að kaupa passa á hátíðina eða á stök kvöld. Miða er hægt að kaupa hér.














































