Kraumsverðlaunin 2025 afhent

Kraumsverðlaunahafar 2025

Alaska1867, Ásta, knackered, Kusk & Óviti, LucasJoshua og Rakel hljóta Kraumsverðlaunin í ár fyrir plötur sínar er þykja skara fram úr hvað varðar gæðimetnað og frumleika. Kraumsverðlaunin voru veitt í gærikvöldi í Pop-up verslun Sweet Salone – Aurora velgerðarsjóðs á Mýrargötu 41 í vesturbænum.

Þetta er í átjanda sinn sem Kraumsverðverðlaunin eru veitt, en dómnefnd verðlaunanna fór yfir hátt í 500 íslenskar plötur og útgáfur sem komu út á árinu við val á verðlaunaplötum ársins

Kraumsverðlaununin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Verðlaununum er ætlað að hampa og kynna plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita ár hvert. Alls hafa hátt í eitt hundrað listamenn og hljómsveitir hlotið Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferlinum.

Meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun fyrir plötur sínar eru; Agent Fresco, Ásgeir, Cell7, Daníel Bjarnason, Elín Hall, FM Belfast, GDRN, gugusar, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Ísafold kammersveit, JDFR, Kælan mikla, Lay Low, Mammút, Moses Hightower, Ojba Rasta, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Samaris, Sin Fang, Sóley, Supersport!, Una Torfa og fjölmörg fleiri.

Kraumsverðlaunin 2025 hlýtur eftirfarandi listafólk fyrir plötur sínar:

  • Alaska1867 – 222
  • Ásta – Blokkarbarn
  • knackered – fyi
  • KUSK & Óviti – RÍFAST
  • LucasJoshua – Meyja
  • RAKEL – a place to be