
Sigurlaug Thorarensen
Í dag eru fjögur nöfn á afmælislista Glatkistunnar
Það er Sigurlaug Thorarensen sem einnig gengur undir sólólistanafninu Sillus en hún er þrjátíu og fimm ára gömul á þessum degi. Hún hefur gefið út tilraunakennt raftónlistarefni og unnið tónlist fyrir sjónvarp en einnig starfað með hljómsveitinni BSÍ á plötu sem og starfað með öðru tónlistarfólki s.s. Hermigervli, sem reyndar er bróðir hennar.
Jóhann (Ólafur) Ingvarsson hljómborðsleikari frá Akureyri fagnar á þessum degi fimmtíu og níu ára afmæli sínu. Jóhann lék með fjölda hljómsveita á sínum tíma og hér má m.a. nefna sveitir eins og Skriðjökla, Vini og syni, Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar, ½ 7 (Hálfsjö) og Hunang svo einhverjar séu nefndar.
Jósef Gottfreð Blöndal Magnússon flautuleikari átti einnig afmæli þennan dag en hann lést árið 2021. Jósef (f. 1933) sem var giftur Ruth L. Magnússon söngkonu, nam í London og fékkst lengi við tónlistarkennslu en lék jafnframt oft einleik á tónleikum m.a. með Musica da camera og Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hann starfaði lengi með. Hann kom aukinheldur við sögu á fjölda hljómplatna sem bæði höfðu að geyma klassíska tónlist og af léttara taginu.
Og að síðustu er hér nefndur Keflvíkingurinn Ingibergur Þór Kristinsson (fæddur á þessum degi 1949) en hann lést árið 2022. Ingibergur lék á árum áður á trommur en í seinni tíð á gítar og bassa í fjölmörgum hljómsveitum, hér má nefna sveitir eins og Júnísvítan, Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn, Hippar í handbremsu, Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar, Berkir og Útkjálkarnir.














































