
Ægir Sindri Bjarnason
Í dag eru sex tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Davíð Þór Jónsson er sextíu og eins árs gamall í dag, hann er fremur þekktur sem skemmtikraftur, fjölmiðlamaður, guðfræðingur og prestur, annar Radíus bræðra og sitthvað fleira en að vera tónlistarmaður. Hann var þó söngvari hljómsveitarinnar Faríseanna sem gaf út plötu 1996, samdi þar bæði lög og texta, en hefur aukinheldur samið fjölmarga söngtexta fyrir leikhús og aðra tónlistarmenn.
Kórstjórnandinn og organistinn Halldór Þórðarson fagnar í dag áttatíu og átta ára afmæli sínu. Halldór hefur í gegnum tíðina verið öflugur í tónlistarlífi Dalamanna sem kórstjóri og organisti í fjölmörgum kirkjum en hann hóf tónlistarferil sinn sem harmonikkuleikari og hefur verið öflugur í félagsstarfi þeirra í Dölunum. Hann var jafnframt lengi tónlistarkennari og -skólastjóri í Búðardal.
Þá á einnig Ægir Sindri Bjarnason trommuleikari afmæli en hann er þrjátíu og þriggja ára gamall á þessum degi. Hann hefur lamið trommusett með fjölda hljómsveita og meðal þeirra sveita eru hér nefndar Dead herring, World narcosis, Logn, Klikk og Electric playground.
Gyða Valtýsdóttir sellóleikari, tónskáld og margt annað er fjórða afmælisbarn dagsins en hún er fjörutíu og fjögurra ára gömul í dag. Gyða sem vann nýlega til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs vakti fyrst athygli með hljómsveitinni múm og hefur einnig starfað með kammerhópnum Krumma, en hún hefur jafnframt leikið á plötum fjölda annarra tónlistarmanna og hljómsveita s.s. Megasi, Slowblow, Úlfi Hanssyni og Kimono. Gyða hefur aukinheldur sent frá sér sólóplötur og starfað við kvikmyndatónlist.
Kristín Anna Valtýsdóttir píanóleikari, söngkona og tónskáld, tvíburasystir Gyðu á auðvitað einnig þennan afmælisdag og er því líka fjörutíu og fjögurra ára gömul. Hún starfaði einnig með hljómsveitinni múm og hefur starfað undir nafninu Kría Brekkan og gefið út nokkrar plötur undir því aukasjálfi, þá hefur hún starfað með Stórsveit Nix Noltes og komið við sögu á plötum Slowblow, Skúla Sverrissonar og fjölda annarra listamanna auk þess að hafa gefið út sólóefni.
Hlynur Þorsteinsson læknir fagnar á þessum degi sjötíu og þriggja ára afmæli sínu en hann var mjög afkastamikill um tíma og gaf út um fjörutíu plötur með frumsömdu efni undir ýmsum hljómsveitarnöfnum á um tíu ára tímabili en hann var þá á fimmtugs- og sextugsaldri. Þetta voru hljómsveitirnar Pósthúsið í Tuva, Spilaborgin, Dúskar, Contraband, Eggið, Heybrók, Hljóð, Sigurboginn og Úlfar, sem hann starfrækti með hinu og þessu tónlistarfólki.
Að lokum er hér nefndur Hilmar Arnar Hilmarsson gítarleikari sem einnig átti þennan afmælisdag en hann lést árið 1986. Hilmar Arnar (fæddur 1946) lék með nokkrum bæði þekktum og óþekktum hljómsveitum hér fyrir margt löngu og hér má nefna sveitir eins og Sóló, Sextett Jóns Sigurðsson og J.J. Quintet.














































