
Rúnar Þórisson
Þrjú afmælisbörn eru á lista Glatkistunnar í dag:
(Sæmundur) Rúnar Þórisson gítarleikari frá Ísafirði er sjötíu og eins árs í dag en hann hefur komið víða við á löngum tónlistarferli. Rúnar starfaði á árum áður með sveitum eins og Ýr, Danshljómsveit Vestfjarða, Grafík, Haukum, Dínamít og Dögg en henn vann einnig náið með Rafni Jónssyni á sólóplötum hans. Á síðari árum hefur Rúnar gefið út sólóplötur og plötur í félagi við aðra. Rúnar er faðir söngkvennanna Margrétar og Láru Rúnars.
Eyjamaðurinn Georg (Óskar) Ólafsson fagnar sextíu og níu ára afmæli sínu á þessum degi en hann hefur leikið á bassa og gítar í fjölmörgum hljómsveitum. Þekktust þeirra er án nokkurs vafa Papar en hann hefur einnig starfað með sveitum eins og Tilfinningu, Sótaranum, Qmen 7, Hröfnum (Keltum) og Lífsmarki svo fáeinar séu nefndar.
Og svo er það raftónlistarmaðurinn Pan Thorarensen sem einnig kallar sig Beatmakin Troopa en hann fagnar fjörutíu og fimm ára afmæli á þessum degi. Hann hefur gefið út plötur undir þessum nöfnum en einnig starfað með raf- og hiphop-sveitum eins og Stereo Hypnsis, Ambátt og Audio Improvement auk þess að halda utan um útgáfufyrirtæki og félagsskap eins og 3angle production og Electric Ethincs.














































