Afmælisbörn 15. júní 2023

Sigurjón Sighvatsson

Í dag eru fjögur afmælisbörn á lista Glatkistunnar:

Athafnamaðurinn Sigurjón Sighvatsson (iðulega kallaður Kútur hér áður fyrr) á sjötíu og eins árs afmæli í dag. Sigurjón var þekktur bassaleikari á tímum bítla og blómabarna og lék þá í hljómsveitum eins og Kjörnum, Mods, Falcon, Flowers, Ævintýri, Brimkló og Þokkabót áður en hann hélt til náms í Bandaríkjunum þar sem hann hefur verið með annan fótinn síðan, m.a. sem framleiðandi kvikmynda og sjónvarpsefnis.

Máni Svavarsson tónlistarmaður er fimmtíu og sex ára gamall í dag. Máni (sonur Svavars Gests og Ellyjar Vilhjálms) vakti athygli fyrir tónlist sína þegar hann sigraði fyrstu Músíktilraunirnar ásamt hljómsveit sinni DRON en síðar starfaði hann sem hljómborðsleikari og forritari með sveitum eins og Pís of keik, Cosa Nostra, Housebuilders og Tweety auk þess að vera viðloðandi tónlist í kvikmyndum og í sjónvarpsþáttum eins og Latabæ, sem hann samdi tónlistina fyrir.

Þorleifur Gíslason saxófónleikari átti afmæli á þessum degi en hann lést fyrr á þessu ári. Þorleifur (fæddur 1944) var kunnur saxófónleikari, lék inn á ógrynni hljómplatna auk þess að starfa með ýmsum hljómsveitum sem sumar hverjar voru djasstengdar – þar má nefna sveitir eins og Big band ´81, Flat 5, J.J. Quintet, Lúdó sextettinn, Tískuljónin, Pónik og Furstana.

Og hér er að síðustu nefndur tónlistarmaðurinn og gagnrýnandinn Ríkarður Örn Pálsson (1946-2021) en hann hefði átt afmæli á þessum degi. Ríkarður var lengi gagnrýnandi og blaðamaður á Morgunblaðinu en hann var jafnframt tónlistarmaður og tónskáld og skildi eftir sig eina plötu með frumsömdu efni, Medio tutissimus ibis: tónlist eftir Ríkarð Örn Pálsson, sem kom út árið 2006. Hann var kontrabassaleikari og starfaði m.a. um tíma með Þremur á palli þótt hann væri þar ekki fastur liðsmaður.

Vissir þú að Óskar Thorarensen raftónlistarmaður hefur gefið út tónlist undir nafninu Jafet Melge?