![](https://glatkistan.com/wp-content/uploads/2018/05/c3b6rn-c3a1rnason1.jpeg?w=232&h=300)
Örn Árnason
Í dag er eitt tónlistartengt afmælisbarn á skrá Glatkistunnar:
Örn Árnason leikari og skemmtikraftur er sextíu og fjögurra ára gamall í dag en hann er einnig kunnur söngvari og hefur bæði sungið inn á fjölmargar plötur tengdar leiksýningum auk annars konar platna. Hann hefur til að mynda verið í hlutverki sögumanns og sungið á plötum sem Afi á Stöð 2, sem jólasveinn og einnig í eigin persónu. Örn gaf ennfremur út dúettaplötuna Yfirliðsbræður ásamt Óskari Péturssyni fyrir nokkrum árum.
Vissir þú að Kammersveit Vestfjarða var starfrækt á áttunda áratugnum og fram á þann níunda?