Sönglagakeppni Heklu – sambands norðlenskra karlakóra [tónlistarviðburður] (1956)

Haustið 1956 efndi Hekla, samband norðlenskra karlakóra til sönglagakeppni en árið á undan hafði Landsamband blandaðra kóra staðið fyrir sams konar keppni og var hugmyndin sjálfsagt að einhverju leyti þaðan komin. Um vorið 1956 hafði verið haldin söngtextakeppni um „Heklu“ og þar hafði texti eftir Jónas Tryggvason frá Finnstungu borið sigur úr býtum en keppendum í sönglagakeppninni var ætlað að semja lag við þann texta.

Átta lög bárust í sönglagakeppnina og sigurlagið samdi Áskell Snorrason tónskáld á Akureyri, Jóhann Ó. Haraldsson varð í öðru sæti og Jón Sigurgeirsson hafnaði í því þriðja. Lag Áskels, sem hlaut titilinn Heklusöngur var síðan frumflutt á söngmóti karlakórasambandsins af sameiginlegum kór kóranna innan Heklu en það kom svo út á plötunni Raddir að norðan sem Hekla gaf út árið 1965.