
Þorsteinn Ólafsson
Í dag eru afmælisbörnin fjögur í Glatkistunni:
Þorsteinn Konráð Ólafsson raftónlistarmaður, sem gengur undir nafninu Prins Valium í tónlistarsköpun sinni er fjörutíu og átta ára gamall í dag. Prins Valium hefur komið við sögu á mörgum safnplötum í rafgeiranum sem og splitplötum en hann hefur einnig gefið út plötur sjálfur síðan 2006. Hann var einnig í hljómsveitinni Semen, sem ekki fór hátt.
Páll Ragnar Pálsson gítarleikari og tónskáld er fjörutíu og sex ára gamall í dag. Páll vakti fyrst athygli með hljómsveitinni Maus sem sigraði Músíktilraunir vorið 1994, sveitin fór á heilmikið flug í kjölfarið og gaf út nokkrar plötur. Hann hafði lært bæði á gítar og píanó, en nam einnig raftónlist, tónfræði og tónlistarsögur áður hann lauk tónsmíðanámi. Páll hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir tónlist sína síðustu árin.
Annar gítarleikari, Stefnir Gunnarsson á einnig afmæli á þessum degi en hann er þrjátíu og sjö ára gamall í dag. Stefnir hefur leikið á gítar og sungið í hljómsveitum eins og Lada Sport og Big Kahuna en einnig fengist eitthvað við upptökuvinnslu.
Og þá er hér að síðustu nefndur Hrólfur Sæmundsson baritón söngvari sem fagnar stórafmæli í dag en hann er fimmtugur. Hrólfur sem hefur sungið fjölda óperuhlutverka nam hér heima og í Bandaríkjunum og hefur sungið inn á nokkrar plötur ennfremur, hann stofnaði Sumaróperu Reykjavíkur (síðar Óperu Reykjavíkur) og var í sönghópnum Rinascente en á yngri árum lék hann einnig á bassa með nokkrum hljómsveitum s.s. Pain killers, Það veit andskotinn, Il Nuovo Baldur og Stingandi strá.
Vissir þú að Þorsteinn Björnsson Fríkirkjuprestur (1909-91) söng inn á sex hljómplötur?














































