Afmælisbörn 21. ágúst 2023

Erling Ólafsson

Glatkistan hefur upplýsingar um fjögur tónlistartengd afmælisbörn þennan daginn:

Theódór Júlíusson leikari er sjötíu og fjögurra ára gamall í dag. Flestir tengja Theódór við leiklist og t.a.m. muna margir eftir honum í kvikmyndunum Mýrinni og Hrútum en hann hefur einnig sungið inn á margar plötur tengdar tónlist úr leikritum s.s. Evu Lúnu, Söngvaseið, Línu langsokk o.fl. Færri vita að á sínum tíma var Theódór söngvari hljómsveitarinnar Storma frá Siglufirði og trommuleikari Póla frá sama stað.

Guðrún Þórarinsdóttir lágfiðluleikari frá Akureyri fagnar í dag sextíu og tveggja ára afmæli sínu. Guðrún nam fyrir norðan og í Reykjavík auk framhaldsnáms í Þýskalandi, og hefur starfað með Íslensku hljómsveitinni, Kammersveit Akureyrar, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands svo dæmi séu nefnd. Þá hefur hún kennt bæði sunnan lands og norðan en einnig í Þýskalandi. Guðrún hefur leikið inn á fjölmargar plötur með popptónlistarfólki.

Erling Ólafsson baritónsöngvari hefði einnig átt afmæli á þessum degi. Erling fæddist 1910, hann var einn þriggja kunnra bræðra sem allir lögðu fyrir sig söng og tónlist, hinir voru Jónatan og Sigurður en frá þeim síðarnefnda eru kominn fjöldinn allur af þekktu tónlistarfólki. Erling nam söng hjá Sigurði Birkis og Einari Markan, söng með Karlakór Reykjavíkur og stundum einsöng með kórnum. Aukinheldur komu út tvær 78 snúninga plötur með söng Erlings, en einnig er söng hans að finna á plötu með Karlakór Reykjavíkur. Erling lést úr berklum árið 1934 aðeins tuttugu og fjögurra ára gamall, og við jarðarför hans var söngur hans leikinn á plötum en það var í fyrsta skipti á Íslandi sem slíkt var gert.

Og að síðustu er hér nefndur Hans Ploder (fæddur 1927) en hann var Austurríkismaður sem hingað kom um miðja síðustu öld og ílengdist hér. Hann var fagottleikari og lék hér með Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljómsveit Þjóðleikhússins og við ýmsar óperuuppfærslur, tónleika og fleira auk þess að leika inn á hljómplötur. Þá stjórnaði hann lengi Lúðrasveit Hafnarfjarðar og skólalúðrasveit á Seltjarnarnesi þar sem hann kenndi um tíma. Hans lést árið 2011.

Vissir þú að innan Skátafélags Reykjavíkur var eitt sinn starfandi kór sem hét Negrakórinn?